Ég þarf að skrifa þetta einhvers staðar niður svo það sé auðvelt að rifja þetta upp aftur. Hér er sem sagt uppskrift að ágætri heimatilbúinni pizzu.
Deigið
Uppskriftin að ítölsku pizzadeigi er einföld:
500 g hveiti
2 tsk salt
1 tsk þurrger
325 ml volgt vatn
Þurrefnunum er hrært saman í skál og gerið leyst upp í vatninu. Sîðan er öllu hrært saman og deigið hnoðað og síðan leyft að hefast. Þetta gerir ca. tvær 12" pizzur. Auk þess hægt að gera deigið aðeins minna ítalskt með því að bæta í það 1 msk af matarolíu og 1 msk af sykri, þá verður það mýkra. Það borgar sig að gera deigið a.m.k. einum degi áður en það er eldað svo það fái tíma til að þroskast almennilega. Það er t.d. fínt að setja deigið í lítinn plastpoka og svo í ísskápinn, það þroskast vel við það hitastig.
Sósan
1 dós af tómötum
1 dós af tómatpúrru (ekki pínulitlu dósirnar heldur þessar aðeins hærri)
1 hvítlauksgeiri (Ath. hér er undantekning á reglunni "Alltaf setja meiri hvítlauk en uppskriftin segir til um" því það er ekki gott að hafa of mikið hvítlauksbragð af sósunni)
Smá matarolía
Krydd eftir smekk, t.d. heitt pizzakrydd, oreganó, pipar o.s.frv.
Allt maukað með töfrasprota og þá er sósan tilbúin! Þetta gerir reyndar sósu fyrir u.þ.b. 5 pizzur þ.a. ef það er hægt þá borgar sig að gera minna í einu því þetta geymist ekki lengi.
Svo er bara að setja ost og góð álegg á pizzuna. Það er einnig sniðugt að setja hana á sérstaka pizzagrind sem fæst í IKEA áður en hún fer í ofninn.
Hér er svo mikilvægasta reglan varðandi pizzagerð:
Pizzuna á að elda við eins mikinn hita og hægt er! Það á að setja ofninn alveg í botn, í honum eiga að brenna eldar líkt og í dýpstu dýflissum Múspells! Pizzan fer svo ekki inn fyrr en ofninn er orðinn funheitur og þá þarf hún ekki að vera nema í ca. 10 mínútur, en það gæti verið misjafnt eftir ofnum. Þannig verður deigið stökkt að utan en mjúkt að innan í staðinn fyrir að það verði eins og kex. Einnig finnst mér best að baka hana neðst í ofninum, sérstaklega ef það er undirhiti en það eru víst skiptar skoðanir um það. Síðan er það hvítlauksolían sem er ómissandi. Þá er einfaldlega nóg að pressa hvítlauk í skál með hvítlaukspressu, setja olíu yfir (helst ekki extra virgin) og svo krydd að eigin vali (t.d. heitt pizzakrydd, cayenne pipar o.s.frv.).
P.S. Það er í fínu lagi að kaupa deigið tilbúið, enda sömu hráefni, og eins er sósan alveg jafngóð út úr búð (nema Bónus pizzasósa, hún er ekki góð). Það sem skiptir höfuðmáli er að baka pizzuna við mikinn hita. Og það á að gera pizzuna hringlaga, ekki kassalaga! Það er eitthvað svo rangt við kassalaga pizzu. Mörg andsvör (2) Þriðjudagurinn 25. október 2011, kl. 16:31
Síðasta lag vikunnar: The Presidents of the U.S.A - Feather Pluckn
Það hefur lítið verið að gerast hér undanfarið vegna þess að höfundur hefur haft mikið að gera í öðru. Nú hefur aðeins hægst um þ.a. ég ætla hér að setja inn lag vikunnar í síðasta skipti. Það má segja að þessi tilraun með að setja inn lag í hverri viku hafi verið misheppnuð, því lesendum fjölgaði ekkert í allan vetur (þeir eru ennþá u.þ.b. þrír) og lítið skilaði sér af athugasemdum frá lesendum.
Jæja, lag vikunnar í dag er einstaklega hressandi enda fjallar það um alls kyns dýr og þeirra uppátæki. Mér finnst að allir sem eru enskumælandi ættu að nota hugtakið „Feather pluckin'“ í staðinn fyrir hið margfræga F-orð.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 25. maí 2011, kl. 12:59
Tónlist eða músík?
Ég býst við að flestir hafi tekið eftir þessu en það búa tveir hópar á Íslandi; þeir sem tala um að hlusta á músík og þeir sem tala um að hlusta á tónlist. Nú tilheyri ég að seinni hópnum enda fæddur í byrjun níunda áratugarins. Ég hef samt lengi velt fyrir mér hvenær þessi umskipti urðu, hvenær hætti fólk að tala um músík?
Ég held ég geti slegið því föstu að fólk fætt alveg til 1970 tali um músík og við vitum að fólk fætt upp úr 1980 talar um tónlist, þ.a. líklega breyttist þetta einhvern tímann á áttunda áratugnum. En hvaða ár gerðist það og af hverju? Ef einhver sem hefur áhuga á hugvísindum les þessa grein þá er öllum velkomið að nota þessa hugmynd í rannsóknarverkefni.
P.S. Ég hef líka tekið eftir því að þeir sem tala um músík skiptast í tvo hópa; þeir sem bera það fram „mússík“ og þeir sem bera það fram „músík.“ Ég er nokkuð viss um að almennt eru þeir sem segja „mússík“ eldri en þeir sem tilheyra seinni hópnum. Engin andsvör Fimmtudagurinn 14. apríl 2011, kl. 11:04
Leiðbeiningar fyrir Icesave kosningar
Þegar þú ferð inn í kjörklefann þá átt þú að kjósa eftir eigin sannfæringu. Þetta er líklega erfið ákvörðun, þar sem það er alls ekki hægt að segja að önnur afstaðan sé alröng og hin rétt. Ef þú heldur að þeir sem ætla að kjósa hinn valkostinn hafi ekkert til síns máls þá ertu mögulega á villigötum og ættir að þá kynna þér málstaðinn betur.
Meira þarftu ekki að vita. Mörg andsvör (3) Fimmtudagurinn 7. apríl 2011, kl. 10:27
Lag vikunnar: In Extremo - Óskasteinar
Það var örlítil umfjöllun um þessa hljómsveit í Morgunblaðinu í byrjun síðasta áratugar þegar hún ákvað að gera metal-útgáfur af Krummavísum og Óskasteinum. Þessi hljómsveit er víst aðallega þekkt fyrir að gera ábreiður á þjóðlög ýmissa landa og syngja þau ávallt á frummálinu, sem er alveg virðingarvert framtak.
Það hafa flestir heyrt Krummavísur enda held ég að það hafi fengið einhverja spilun í útvarpi en ég býst við að færri hafi heyrt þetta lag enda með eindæmum illa heppnuð ábreiða. Framburðurinn er ekki alveg eins vandaður og í Krummavísum og svo er melódían mikið breytt til hins verra. Hér eru a.m.k. herlegheitin:
Engin andsvör Föstudagurinn 1. apríl 2011, kl. 15:18
Þú hefur hlaupið apríl!
Ég tilkynnti fyrr í dag að það yrði ekkert aprílgabb í ár, en það var aprílgabb, þ.a. það var sannarlega aprílgabb á boðstólum í ár! Þú misstir þar með af fríum pylsum og alls kyns herlegheitum. Þó það finnist öllum leiðinlegt að hlaupa apríl þá vona ég að lesendur skilji að þetta er bara til gamans gert. Engin andsvör Föstudagurinn 1. apríl 2011, kl. 12:16
Það verður ekkert aprílgabb í ár
Eins og lesendur muna vel eftir þá snerist aprílgabb þessarar síðu árið 2009 um að það yrði tilkynnt um aprílgabb síðar sama dag en svo kom í ljós að það var ekkert gabb! Það féllu ansi margir fyrir þessu skemmtilega gabbi það árið og ég vona að enginn hafi orðið mjög sár.
Í ár verður því miður ekkert aprílgabb á boðstólum, og engar fríar pylsur. Ég reyni kannski að bæta úr því á næsta ári.
Hér eru svo önnur gömul aprílgöbb frá þessari síðu: 2008 og 2006. Engin andsvör Föstudagurinn 1. apríl 2011, kl. 09:52
Spádómur um Icesave
Hér eru mínir spádómar um hvað mun gerast ef Icesave lögin verða felld eða staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
Ef Icesave verður fellt 9. apríl þá gerist þetta:
Krónan mun ekki falla
Já-sinnar verða örlítið fúlir
Umheiminum verður nokk sama (líka Bretum og Hollendingum)
Spár um að allt fari í kaldakol munu ekki rætast
Ef Icesave verður samþykkt 9. apríl þá gerist þetta:
Krónan mun ekki styrkjast að ráði
Nei-sinnar verða brjálaðir
Umheiminum verður nokk sama (líka Bretum og Hollendingum)
Spár um að auknar skuldir muni setja ríkissjóð á hausinn rætast ekki
Ég gæti samt alveg haft rangt fyrir mér, það kemur í ljós. Mörg andsvör (2) Þriðjudagurinn 29. mars 2011, kl. 12:33
Lög vikunnar: Public Enemy/Anthrax og Boo-Ya T.R.I.B.E./Faith no more
Ég man enn vel eftir því þegar Nói var stanslaust að blasta Public Enemy plötunni ca. '92, og þá sérstaklega heyrðist lagið hér að neðan oft. Þetta lag varð mjög vinsælt og svo kom stuttu seinna hitt lagið og ruddu þau brautina fyrir nýja tónlistarstefnu sem kallaðist NuMetal (því miður). Þessi lög voru alveg ágæt ein og sér en því miður þá leiddu þau til stórslysa í tónlistarsögunni eins og Papa Roach, POD og fleira í þeim dúr. En það breytir ekki öllu, hér eru lögin:
Ætli Mike Patton hafi hlustað eitthvað á HAM áður en hann söng inn á þetta lag? Engin andsvör Föstudagurinn 25. mars 2011, kl. 10:06
Skemtilegar Google leitir
Ég hef áður sett inn skemmtileg leitarorð sem skilar fólki á þessa síðu, til dæmis komu þrír í síðasta mánuði sem voru að leita að Gunna, en aðeins fimm allt í allt síðasta árið, þ.a. vinsældir hans hafa aukist hratt þennan mánuð.
Svo koma alltaf einhverjir eftir að hafa leitað að Isabella farting en það er víst eitthvað vinsælt dæmi sem ég ætla ekki að leita uppi. Hér skilar það fólki bara á frábæra smásögu. Síðan koma ansi margir sem eru að leita að textanum við upphafslag Brakúla greifa.
Hér er a.m.k. smá listi yfir leitarorð, sem hvert og eitt skilaði reyndar bara einni heimsókn, þ.a. þetta er ekki mikill fjöldi en samt áhugavert.
"góður brandari" [leitin skilaði þessum eðalbrandara] hvar fær maður þokulúður
hvar get ég keypt handjárn
hvernig er hægt að vera nörd
vond lög [mín lög?] heimsmet í dvergakasti
hjátrú um lúðu
hvað er samúræi
hvenær kemur pósturinn
híbýli krókódíla
looked my ice песня скачать
samfaramyndir
vísur um sósur
ég strapon Mörg andsvör (2) Fimmtudagurinn 24. mars 2011, kl. 14:18