Æviágrip Vladimirs Stavrov
Vladimir Stavrov er einn af mikilvægustu vísindamönnum síðari tíma. Hann fæddist í Pétursborg árið 1857 við mikla fátækt. Þar bjó hann þar til hann varð 20 ára, en þá fluttist hann til Þýskalands til að læra sjávarlíffræði. Þaðan útskrifaðist hann nokkrum árum síðar, en lokaverkefni hans fjallaði um það hvernig afkvæmi ýsa og þorskur myndu eignast, ef þau gætu parast. Engin tilraun hans til þess heppnaðist, þar sem hann reyndi alltaf að láta tvo karlkyns fiska parast. Þetta olli honum miklum vonbrigðum, og sneri hann baki við sjávarlíffræði. Einn fallegan vetrardag í Berlín rakst hann á bók sem var prentuð af Gutenberg. Þessi bók innihélt heimilisföng hjá mörgum af ríkustu mönnum Berlínar. Hann tók eftir því að nöfnin í bókinni voru ekki í neinni röð, þannig að ef hann vildi leita einhvern ákveðinn mann uppi, þá þurfti hann að lesa sig í gegnum alla bókina. Þetta fannst honum afar óhentugt, og vildi hann finna einhverja leið til að raða nöfnunum í einhverja lógíska röð. Eftir margra ára hugmyndavinnu og prófanir kom hann upp með afar góða en einfalda leið til að raða nöfnunum í röð. Þessi uppgötvun hans leiddi til þess að í dag er notast við hina svokölluðu Stavrov's-röð í öllum símaskrám í heiminum, og einnig er bókum á flestum bókasöfnum raðað eftir höfundanöfnum í Stavrov's-röð. Vladimir Stavrov lést árið 1899, fátækur, einmana og einfættur.
Þriðjudagurinn 23. nóvember 2004
Gunni Þetta er alveg svakalegt æviágrip hjá þér Haffi, mér finnst bara eins og ég hafi þekkt náungann.
Þriðjudagurinn 23. nóvember 2004, kl. 16:47Bynni Snilld! Stavorv's - röð... AHAHAHAA :)
Þriðjudagurinn 23. nóvember 2004, kl. 21:26Bynni Stavrov's röð... úff ;)
Þriðjudagurinn 23. nóvember 2004, kl. 21:26eva hrund Af hverju var greyjið maðurinn einfættur??
Miðvikudagurinn 24. nóvember 2004, kl. 12:08Haffi Hann lenti í hræðilegu skákslysi.
Miðvikudagurinn 24. nóvember 2004, kl. 16:26Gunni Ég lenti einu sinni í hræðilegu skákslysi, án efa mín versta lífsreynsla, veröldin verður aldrei söm aftur
Fimmtudagurinn 25. nóvember 2004, kl. 14:33Bynni Hljómar eins og alvarlegt skákslys!
Fimmtudagurinn 25. nóvember 2004, kl. 17:42Gunni Það var það, ég fæ enn martraðir
Laugardagurinn 27. nóvember 2004, kl. 15:51Bynni Öss!
Sunnudagurinn 28. nóvember 2004, kl. 13:13