Fordómar?Ég sá
þessa frétt á mbl.is um daginn:
Sinueldur í Köldukinn„Gömul Lada skemmdist þegar eldur varð laus í sinu í gömlu túni við Gvendarstaði í Köldukinn í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var verið að nota Löduna við að smala kindahópi eftir túninu þegar eldur kviknaði í sinunni, hugsanlega út frá Lödunni. Það hefur þó ekki verið staðfest og verður ekki rannsakað frekar. Þrír bílar frá Slökkviliði Þingeyjarsveitar komu á vettvang og aðstoðuðu bóndann við að slökkva eldinn.“Nú telst það góður siður meðal blaðamanna að nefna ekki uppruna fólks í fréttum nema það sé aðalatriði fréttarinnar. Nú hefði örugglega heyrst hljóð úr horni ef fréttin hefði verið skrifuð svona:
Sinueldur í Köldukinn„Gamall tælenskur bóndi slasaðist þegar eldur varð laus í sinu í gömlu túni við Gvendarstaði í Köldukinn í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var gamli tælenski bóndinn að smala kindahópi eftir túninu þegar eldur kviknaði í sinunni, hugsanlega vegna bjánaskapar hjá gamla tælenska bóndanum. Það hefur þó ekki verið staðfest og verður ekki rannsakað frekar. Þrír bílar frá Slökkviliði Þingeyjarsveitar komu á vettvang og aðstoðuðu bóndann við að slökkva eldinn.“Nú er spurningin bara hvort það hafi komið fréttinni við hvaða tegundar bíllinn er. Til dæmis er þess aldrei getið þegar um árekstra eða bílveltur er að ræða. Flestir lesendur vita þó auðvitað hversu miklir eðalbílar Lödurnar eru og að þær myndu ekki gera eigendum sínum þann grikk að kveikja í sinu.
Föstudagurinn 10. júní 2005
Bynni Viska Hafsteins er gríðarleg!
Föstudagurinn 10. júní 2005, kl. 15:09Gunni Er það rétt til getið hjá mér að þú hafir tekið þessa frétt dálítið nærri þér Haffi?
Föstudagurinn 10. júní 2005, kl. 16:18Haffi Hárrétt, ég tek allt svona nærri mér.
Föstudagurinn 10. júní 2005, kl. 18:12Bynni Enda er Haffi mjúkur mjög og metró.
Laugardagurinn 11. júní 2005, kl. 17:02Haffi Ain´t we all?
Mánudagurinn 13. júní 2005, kl. 14:43Bynni Nei, Haffi... Við verum ekki allir.
Mánudagurinn 13. júní 2005, kl. 19:23Oggi Alveg hreint ekki allir
Þriðjudagurinn 14. júní 2005, kl. 00:45Haffi Ég held við ættum að stofna heimasíðuna www.metro.is eða www.metromenn.is, þar sem við erum svo rosalega metró allir, ég meina, sjáið bara Gunna og Ogga.
Þriðjudagurinn 14. júní 2005, kl. 12:48Bynni Hlynur er sko líka metró! jafnvel meira metró en sjálfur Beckham.
Miðvikudagurinn 15. júní 2005, kl. 03:56Bynni Þér eruð latir herra Hafsteinn.
Laugardagurinn 18. júní 2005, kl. 06:23Haffi Rosalega er drengurinn duglegur að skrifa pósta
Mánudagurinn 20. júní 2005, kl. 18:11Bynni Þokkalega... jafnvel klukkan 5.50 á morgnana!
Þriðjudagurinn 21. júní 2005, kl. 07:06Bynni En ég ku vera manna duglegastur við að pósta á þessa blessuðu pósta yðar vegna þess að enginn annar getur fengið það af sér að segja eitthvað jákvætt um þetta rusl...
Þriðjudagurinn 21. júní 2005, kl. 14:18Haffi Ég skrifaði reyndar ekki þessa færslu þarna ofar, flestir vita að ég kann punktasetningu.
Þriðjudagurinn 21. júní 2005, kl. 16:37Bynni E. punctuation
Þriðjudagurinn 21. júní 2005, kl. 22:04Bynni Annars hefi ég eitt til að setja út á þennan annars ágæta póst, en það er að það ku vera afskaplega fátítt á Íslandi að gamlir tælendingar séu hér bændur... en höfundur vissi það líklega ekki og verður því ekki skammaður fyrir þau mistök.
En óraunhæf dæmi eru ekki góð!
Mánudagurinn 27. júní 2005, kl. 18:58Haffi Ég hélt að allir vissu hver Dong Huang De Marco frá Efri Staðarstað væri.
Þriðjudagurinn 28. júní 2005, kl. 16:53