Skemmtileg gátaEigandi vefsíðunnar er á leiðinni til útlanda yfir jólin og því verður fátt um skrif hér fyrr en eftir áramótin. Duglegir lesendur geta þó kíkt hér inn reglulega yfir jólin, t.d. athugað hvort nýjungarnar virki sem skyldi og skrafað um jólin og áramótin á spjallkerfinu. Þá má einnig geta þess að það er komið nýtt lag vikunnar. Þá er ég búinn að taka aðeins til í hlekkjunum og bæta við Gumma bandýmanni, en ég hvet alla til að skrifa á síðuna hans að hann eigi að asnast til að mæta í bandý á næsta ári.
Smá þraut fyrir þá sem hafa ekkert að geraFékk þessa þraut á prófi sem ég var í um daginn, og leysti hana nokkuð skjótt og örugglega. Þrautin hljóðar svo:
Þetta er samlagning í tugakerfinu þar sem hver bókstafur stendur fyrir sitthvorn tölustafinn. Þið eigið að finna alla tölustafina.
   RACE
+ RACE
---------
  THERE
Ég vil ekkert fá svarið í bakflæðinu, þetta er bara svona ykkur til skemmtunar.
Miðvikudagurinn 21. desember 2005
Hlynur Vá! Ég fékk líka þessa spurningu á prófi um daginn.
Miðvikudagurinn 21. desember 2005, kl. 18:32Bynni Mér gæti ekki verið meira sama um svarið... en ég get þó sagt að svarið væri allt annað ef spurningin væri á íslensku :
Kappakstur
+ Kappakstur
------------
Þarna
Miðvikudagurinn 21. desember 2005, kl. 19:18Sveinbjörn Pétur Ég má nú til með að vera örlítið smámunasamur:
.KAPP
+KAPP
-----
ÞARNA
Akstur held ég að sé ekki endilega málið :)
Lausnin á þessari íslensku útgáfu þrautarnnar er ... tja, hér er trikkið að ekki er gefið hve margar ef einhverjar lausnir þetta hefur og þá bæði með eða án þess að gera það að skilyrði að tölustafur hafi bara einn bókstaf ;)
Fimmtudagurinn 22. desember 2005, kl. 21:21Bynni Ég reikna fastlega með að það sé kappakstur... þetta gæti líka verið kynþáttur samt.
Fimmtudagurinn 22. desember 2005, kl. 22:00Sveinbjörn Pétur Já auðvitað: "to get THERE you've got to bring the RACEs together" ;)
Djúpvitur andrasísk speki :)
Mánudagurinn 26. desember 2005, kl. 21:36Haffi Öss, það var ein villa í jólaskriptinu!
Miðvikudagurinn 4. janúar 2006, kl. 16:14Sveinbjörn Pétur Vei! "það eru jól!" mikið rosalega er ég sáttur við það ;)
Fimmtudagurinn 5. janúar 2006, kl. 06:49Gummi Ég verð nú að segja að ég þykist vera búinn að leysa þessa þaut, væri þó gaman að bera bækur saman.
Annars hefur mannskapurinn verið óþarflega latur við að hvetja mann til að mæta í bandý, við gylfi vorum þó að spá í að mæta á miðvikudögum í vetur.. þeas ef einhverjir mæta!
Þriðjudagurinn 10. janúar 2006, kl. 21:16Gunni Já við biðjumst innilega afsökunar á letinni í OKKUR. Þetta mun ekki koma fyrir aftur. Þið eruð hér með hvattir til að mæta og spila bandý sem aldrei fyrr!
Miðvikudagurinn 11. janúar 2006, kl. 09:13Haffi Já, það sem Gunni sagði.
Miðvikudagurinn 11. janúar 2006, kl. 10:13Haffi Hmmm, ég virðist vera í sömu vandræðum og Bynni, þ.e. ég get ekki sett inn nýja pósta. Annað hvort er eitthvað að blogger eða herðubreið.
Föstudagurinn 13. janúar 2006, kl. 13:56Hlynur Ég myndi giska á að blogger.com sé ekki hleypt inn á rhi. Ekki íslensk ip-tala og örugglega ekki white-listuð.
Mæli með að þið hafið samband við kerfisstjórana og sjáið hvort þeir geti eitthvað hjálpað ykkur. En þeir munu eflaust bara hlægja að ykkur og skamma ykkur fyrir að treysta erlendri síðu fyrir hi.is lykilorðunum ykkar.
Föstudagurinn 13. janúar 2006, kl. 15:06Haffi Ég var að pæla í að setja upp ssh eða ftp server á minni tölvu, publisha þangað, og scp-a það svo bara inn á herðubreið. Vonandi virkar það.
Laugardagurinn 14. janúar 2006, kl. 11:34Bynni Eh?
Þetta er eins og að segjast ætla floofa klangið og spræta höndlið.
Laugardagurinn 14. janúar 2006, kl. 13:56Sveinbjörn Pétur Bara að hálfu leiti rétt hjá þér Bynni því eins og alþjóð veit þá á þetta svo sem alveg við í tilfellinu "floofa klangið" eða svo við höfum það alveg rétt "floofa klöngin" en hins vega á "spræta höndlið" ekkert eða þá mjög lítið skylt við þetta en tengist hins vegar pælingum um tölvugrafík!
Laugardagurinn 14. janúar 2006, kl. 19:13Bynni Ég hef aldrei rangt fyrir mér Sveppi, svo þetta er alfarið rétt hjá mér.
Mánudagurinn 31. júlí 2006, kl. 03:13n bvnxxg

hgthytr tyswhjk ju fkn fddhdfsdhgfh
Mánudagurinn 21. desember 2009, kl. 22:49