PrímusÉg er loksins búinn að finna nafn á nýju bandýkylfuna mína. Hún mun heita Prímus, og er nafnið tekið úr latínu, sbr.
primus inter pares, en það þýðir, eins og flestir vita, „fremstur á meðal jafningja“.
Prímus vivat, crescat floreat! (Prímus lifi, dafni og blómstri!)
Laugardagurinn 4. febrúar 2006
Gummi Til lukku með gripinn laxmaður!
Sunnudagurinn 5. febrúar 2006, kl. 22:15Haffi Takk fyrir það.
Mánudagurinn 6. febrúar 2006, kl. 10:36Sveinbjörn Pétur Og ekki nema ársþriðjungur síðan þú beittir síðast kylfu með nafni ;)
Ekki veit ég hvort það teljist gott að blóm taki upp á því að springa út á svona verkfæri en ég tek hins vegar undir þetta með lífið, vonandi slær hún fyrirrennara sínum við í líftíma :)
Miðvikudagurinn 8. febrúar 2006, kl. 11:23