Haffi!


Söngur
Hingað til hefur líf mitt snúist um allt annað en að syngja. Það má jafnvel orða það þannig að ég hafi lifað lífinu án söngs. Í leikskóla og grunnskóla var oft reynt að fá mann til að syngja en ég hreyfði oftast bara varirnar (og komst upp með það). Ég hef alltaf verið nokkuð viss um það að veröldin væri ekki betri staður ef ég væri alltaf syngjandi, þ.e.a.s. ég held að söngrödd mín sé ekki það góð að einhver vilji virkilega heyra mig syngja. Samt hefur ákveðin óvissa alltaf nagað mig, því hvað ef ég er rosalega góður söngvari? Kannski hefur blundað í mér lítill Pavarotti, kannski hef ég alltaf haft hinn hreina tón í mér?
Það voru því blendnar tilfinningar í brjósti mér þegar ég var valinn til að keppa í Singstar á jólaskemmtun á vinnustaðnum mínum síðustu helgi.
Lagið sem ég þurfti að syngja? Wake Me up before you go-go.

Hjartað sló.

Átti ég eftir að uppgötva gríðarlega hæfileika mína? Var þetta upphafið á glæstum söngferli mínum?

Jitterbug. Jitterbug. Jitterbug.
Hjartað sló hraðar...

Ég man ekki mikið eftir því hvað gerðist næstu mínútur, en ég man óljóst eftir að hafa séð orðið „awful“ á skjánum. Ég rankaði svo við mér þegar ég fékk að sjá einkunnina fyrir sönginn. 960 stig. Keppinautur minn fékk 1630, þannig að ég hafði tapað. Ég áttaði mig á því að ég væri gersneyddur öllum sönghæfileikum. Ég var enginn George Michael. Óvissunni hafði verið eytt.

Á þessu augnabliki vissi ég að ég gæti haldið áfram að lifa lífinu án þess að syngja.
Fimmtudagurinn 21. desember 2006

Haffi
Þess má reyndar geta að ég söng eitthvað meira seinna um kvöldið (maður varð náttúrulega að vera viss), en það var haldið utan um stigin og ég var með lægstu meðaleinkunnina. Þar með var það alveg neglt niður...
Fimmtudagurinn 21. desember 2006, kl. 11:11

Hlynur
Ég hef aldrei prófað singstar en ég get alveg fullvissað þig um það að ég er verri söngvari. Nema hugsanlega ef um er að ræða forníslenskan hrynjanda eða klósettaríur.
Fimmtudagurinn 21. desember 2006, kl. 15:06

Halli
Ég hef náð upp í Wannabe
Fimmtudagurinn 21. desember 2006, kl. 20:54

Bynni
Ég hugsa að Hlynur sé verri en Haffi... þó veit ég um einn enn verri en Hlyn, en þar sem hann er ekki netverji er engin ástæða til að nefna hann á nafn.
Föstudagurinn 22. desember 2006, kl. 01:01

Gunni
Ég prófaði nú einu sinni þetta Singstar dót og mig minnti að maður gæti fengið 10.000 stig max fyrir lagið. Hve illa varstu eiginlega að syngja drengur? Er ekki örugglega til upptaka af þessu sem við getum hlustað á? Hvenær ætlum við svo að keppa í Singstar?
Föstudagurinn 22. desember 2006, kl. 10:53

Haffi
Við skulum bara segja að ég hafi sungið mjög illa. Annars virtist það vera mjög misjafnt eftir lögum hversu há einkunnin er. Sumir sem sungu mikið fengu allt frá 1000 upp í 7000. Til dæmis var einkunnin fyrir næsta lag sem ég söng a.m.k. mikið betri (án þess að ég hafi sungið eitthvað betur).
Við keppum í Singstar þegar þú reddar þannig og heldur partý!
Föstudagurinn 22. desember 2006, kl. 11:17

Hlynur
Hversu ölvaður þarf maður að vera til að taka þátt í svona singstar? Er til einhver opinber mælikvarði?

Svo held ég að Gunni þurfi líka að kaupa guitar heroes þegar hann fær sér xbox 360.

Ég hef orðið fyrir sárum vonbrygðum með úrvalið af fyllerístölvuleikjum heima hjá Gunna og legg ég til að hann geri bót á þeim málum.
Föstudagurinn 22. desember 2006, kl. 15:56

Sveinbjörn Pétur
Þetta er e.t.v. bara mótþrói, þú vilt ekki keppa í því að falla sem best inn í mótið af öðrum, frumsamið efni hentar þér líklega betur :)
Þriðjudagurinn 26. desember 2006, kl. 22:12

Haffi
Árans teljarinn virðist hafa núllast yfir jólin... Man einhver hvað hann var kominn í? Ég veit að hann var a.m.k. kominn í 42 eða 43 þúsund.
Miðvikudagurinn 27. desember 2006, kl. 10:53

Bynni
11301... amk ekki meira en 12201.
Fimmtudagurinn 28. desember 2006, kl. 01:20


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?