AktívismiÉg var í 10-11 nýlega við innkaup. Aðalástæða innkaupanna var að kaupa kókómjólk til drykkjar. Þegar ég teygði mig í MS kókómjólkina var mér bent á að MS hefur í áratugi stundað einokun á íslenskum mjólkurvörumarkaði og hlotið til þess ríkisstyrki, og að ég ætti að kaupa frekar Kappa frá Mjólku til að styðja samkeppni. Ég hugsaði með mér að það væri nú ekki mikið mál þannig að ég ákvað að kaupa mér Kappa.
Þá vandaðist aldeilis málið, því aðeins var í boði að kaupa þrjá Kappa í pakka, en ég hafði aðeins hug á að kaupa mér tvær fernur. Einnig var Kappi ekki í kæli, þannig að hann var frekar volgur, og að auki hefur mér alltaf fundist gamla MS kókómjólkin bragðbetri.
Á þessari stundu ákvað ég að láta mig hafa það að kaupa þrjár fernur, þó þær væru volgar og kókómjólkin ekki eins bragðgóð.
Þarna notaði ég athafnir mínar til að reyna að breyta heiminum. Ég var orðinn svolítið eins og nútíma-Gandhi.
Ef Gandhi væri á lífi í dag mynda hann bara kaupa Kappa kókómjólk, og ekki bara þrjár, heldur kannski sex eða níu fernur, og það þó þær væru alveg gríðarlega volgar.
Þegar ég stóð í röðinni leið mér svolítið eins og Martin Luther King. Ég lagði á mig erfiði til að breyta heiminum til að gera hann að betri stað fyrir mig og alla í mínum sporum. Ég hugsaði til allra sem drekka MS kókómjólk að staðaldri, allra sem hafa látið hneppa sig í þrældóm brúnnar einokunarmjólkur sem kemur úr ríkisstyrktum spenum.
Ég borgaði með bros á vör, sæll og glaður yfir því að hafa lagt mitt að mörkum. Ég var orðinn
aktívisti.
Þegar ég sat og drakk volgu kókómjólkina sem er ekki eins bragðgóð og hin, ákvað ég að það væri komið nóg af aktívisma í bili.
Mánudagurinn 13. ágúst 2007, kl. 14:33
Bynni

Haffi ; píslarvottur neysluhyggju samtímans.
Mánudagurinn 13. ágúst 2007, kl. 16:00Eva

Greyjið að þurfa vera aktívisti :(
Þriðjudagurinn 14. ágúst 2007, kl. 10:14Gunni

Ég vissi ekki að það væri svona flókið að drekka kókómjólk
Þriðjudagurinn 14. ágúst 2007, kl. 13:24Oggi

Sama er mér þó ríkið hafi látið MS í té ríkisstyrki árum áður, þessir styrkir urðu þess valdandi að ein besta afurð sem framleidd hefur verið á Íslandi leit dagsins ljós.
Og loksins þegar einhverjum peningakallinum hefur dottið í hug að búa til nýtt mjólkurfyrirtæki og stæla þessa vöru, og það á lélegan máta, þá dettur mér ekki í hug að kaupa þessa eftirlíkingu og sérílagi ekki þegar maður er neyddur til að kaupa 3 fernur í pakka og það VOLGAR. Ég bendi á að sjálfum bloggeiganda finnst hin eina sanna kókómjólk betri en lélega eftirlíkingin Garpur.
Til eru mörg dæmi um rekstur sem einungis er hægt að framkvæma með ríkisstyrkjum eða með ríkisrekstri til að byrja með. Sem dæmi mætti nefna lagningu rafnetsins yfir Ísland og vegakerfisins. Uppsetningu símkerfisins o.s.frv.
Áður fyrr var það þannig að jarðgöng voru gerð með ríkisstyrkjum en nú þegar þekkingin er fyrir hendi er farið að láta þess háttar vinnu í hendur einkafyrirtækja, sem dæmi Spölur hf.
Ég er ekki svo viss um að ég myndi fíla það að Spölur hf. eða annað "mjólkurfyrirtæki/spenafyrirtæki" myndi fara byggja allar nýjar samgönguæðar og maður þyrfti að greiða fyrir að fara í gegnum/yfir hverja brú/göng/slaufu.
Ég vill ekki að mínir skattar sem ég borga með glöðu geði og vildi helst borga meira af séu notaðir til að búa til þekkingu/vöru sem aðrir tækifærissinnar geta svo stolið og skrumskælt og grætt á.
.
.
.
.
.
.
.
Þar sem að allt sem maður les er lygi skal ekki rýna í þetta andsvar til að átta sig á raunverulegum skoðunum andsvaranda.
Miðvikudagurinn 15. ágúst 2007, kl. 00:59Haffi

Það er alveg óþarfi að vorkenna mér. Þetta er kannski erfitt tímabil núna, en ég mun verða heimsfrægur þegar þetta allt er yfirstaðið, svipað og Nelson Mandela.
Fimmtudagurinn 16. ágúst 2007, kl. 11:39