Haffi!


Limra - Víkingar
Á vígstöðvum knattspyrnuvalla
kljást Víkingar við aðra kalla
Þeir berjast oft vel
þó dynji á él
en andskotinn, við munum falla
Mánudagurinn 24. september 2007, kl. 20:55

Bynni
Hahaha, geðveikar myndir!

Víkingar munu falla!
Þriðjudagurinn 25. september 2007, kl. 21:29

Gunni
Limrur og dýraklám. Hvað er eiginlega að gerast hérna. Ég efast um að ég þori nokkurn tímann að opna þessa síðu aftur af ótta við hvað kemur næst.
Miðvikudagurinn 26. september 2007, kl. 10:32

Oggi
Jæja sko, þarna ertu kominn á hættulegar slóðir þegar þú lætur saklausa kettlingana í þá aðstöðu að allir haldi að þér séu mestu sorar dýraríkisins og geri ekkert annað en að horfa á dýraklám!
Miðvikudagurinn 26. september 2007, kl. 10:56

Haffi
Dýraklám? Þetta eru bara krúttlegir kettlingar og svo myndir af öðrum dýrum að leika sér. Þetta er eingöngu sett upp til að passa upp á að vélmenni skrifi ekki athugasemdir hérna, enda hafa þau ekki vit til að greina þarna á milli.
Ég vil nú bara minna á málsháttinn: Oft er sorinn í sjáandans huga.
Miðvikudagurinn 26. september 2007, kl. 11:27


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?