Haffi!


Atburðagagnrýni
Hvar: Fyrir utan heimili mitt
Hvenær: Kl. 5:30 þann 10. febrúar

Mig langar að taka fyrir smá söngatriði sem ég varð vitni að á mánudaginn. Þarna voru sungin ýmis þjóðlög sem ég kunni ekki deili á en þau hljómuðu nokkuð frumstæð en þó áhugaverð. Að því er ég best veit þá voru flytjendurnir tveir (eða fleiri) kettir. Það var greinilegt að þeir lifðu sig mjög inn í flutninginn og að ekkert var til sparað í að innlifunin skilaði sér til áheyrandans. Þess má geta að ég horfði ekki á atriðið því það var dregið fyrir gluggann í svefnherberginu en það gerði mér þó kleift að einbeita mér betur að því að hlusta á sönginn því eins og flestir vita þá örvast ýmis skynjun þegar lokað er á einhverja aðra skynjun (í þessu tilfelli sjónina því ég var með lokuð augun).
Atriðið sjálft tók u.þ.b. 15 mínútur og var því í styttra lagi en ég get þó ekki sett mikið út á það því þarna komst allt til skila sem þess þurfti. Ég verð þó að setja út á hljómburðinn því ég er viss um að það séu til betri staðir fyrir svona flutning en bakgarðurinn heima hjá mér en það bjargaði mér þó að vera með opinn glugga. Á köflum virtist einnig sem söngvararnir væru ekki alveg í fullri æfingu þar sem ýmsir tónar voru nokkuð falskir og stundum var hrynjandinni verulega ábótavant. Einnig verð ég að segja að ég hefði notið atriðisins betur ef það hefði verið á öðrum tíma, t.d. þegar ég er ekki sofandi.
Þrátt fyrir ýmsa annmarka þá verður ekki annað sagt en að allir komust klakklaust frá sínu og býst ég við að þessi söngskemmtun verði lengi í minnum höfð. Því gef ég þessari sýningu 37 stig af 49 mögulegum.
Miðvikudagurinn 12. mars 2008, kl. 19:46

Bynni
Ég hefi heyrt af tónleikum af þessum meiði en aldrei orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá þeirra notið í garði mínum.
Miðvikudagurinn 12. mars 2008, kl. 22:35

Hlynur
Ég bý nú í hverfi sem ekki skortir ketti og verð því var við slík söngatriði með reglulegu millibili.

Í flestum tilfellum er þetta tvíleikur þar sem aðeins annar syngur, nema fressinn sé þeim mun meiri leikmaður eða "player" eins og segir á frummálinu.
Þriðjudagurinn 18. mars 2008, kl. 17:08


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?