Haffi!


Botnleðja - Ave Maria
Ég hef tekið eftir því, með hjálp vefgreininga, að á síðuna koma u.þ.b. 10 manns á mánuði sem eru að leita að laginu Ave Maria með Botnleðju sem ég setti inn fyrir löngu síðan í þessari færslu. Nú veit ég ekki nákvæmlega hversu margir sækja svo lagið en gera má ráð fyrir að ég hafi hjálpað a.m.k. nokkrum tugum Íslendinga að eiga áhyggjulaus og ánægjuleg jól.
Mér sýnist sem mín síða komi fyrst upp ef maður slær inn leitarorðin "Botnleðja Ave Maria" á Google og þessi færsla ætti að tryggja það að síðan haldist áfram ofarlega. Annars vil ég bara biðja þá sem sækja lagið um að kvitta í gestabókina og segja frá í stuttu máli hvernig þetta bjargaði jólunum fyrir þeim.

Lagið má finna hér:
Botnleðja - Ave Maria.mp3
Miðvikudagurinn 8. október 2008, kl. 19:39

Haffi
Ég endurtek: Þú getur fundið lagið Ave Maria sem hljómsveitin Botnleðja gerði frægt á MP3 formi hér fyrir ofan.
Miðvikudagurinn 8. október 2008, kl. 19:47

Bynni
Ave Maria hefur oft og títt glatt mig á jólunum með þvi að minna mig á hvað Kaþólsk jól hljóta að vera leiðinleg.
Mánudagurinn 13. október 2008, kl. 21:34

Bjartmar
Þessu lagi hef ég leitað að í mörg ár.....og loksins er það fundið. Takk fyrir
Föstudagurinn 12. desember 2008, kl. 22:56

Haffi
Verði þér að góðu.
Laugardagurinn 13. desember 2008, kl. 16:30

Hannes
Danke schön. Var einmitt að leita að þessu lagi fyrir jólalistann minn:
http://www.officialstation.com/2008/12/18/kul-jolalog
Ég fékk líka eitt annað lag lánað hjá þér - skila því við tækifæri ;)
Fimmtudagurinn 18. desember 2008, kl. 23:21

Haffi
Já, það er eins gott!
Föstudagurinn 19. desember 2008, kl. 14:25

Gunnar
Þú bjargaðir jólunum mínum
Ég var orðinn óþreyjufullur eftir að heyra þetta á ljósvökunum og farinn að halda að jólin kæmu jafnvel ekki í ár
En þú herra
Þú ert hetja
Föstudagurinn 19. desember 2008, kl. 16:39

dAL
Takk æðislega fyrir þetta Haffi :D
Mánudagurinn 22. desember 2008, kl. 16:49

Birgir
TAKK TAKK ég byrjað jólin alltaf á því að hlusta á þetta lag síðan ég heyrði það fyrst held ég 2002 x-mass eða fyrr og ég var orðinn hræddur að jólin myndu ekki koma. þetta í Alvöru bjargaði mínum jólum. =) Meistari


Þriðjudagurinn 23. desember 2008, kl. 01:43

Bynni
Spes....
Þriðjudagurinn 23. desember 2008, kl. 18:08

gumim
þetta er snilld, snilldin eina
Fimmtudagurinn 17. desember 2009, kl. 18:45

Björninn
Ég skal ekki segja að þetta hafi bjargað jólunum mínum (ennþá) en ég kann afskaplega vel að meta þetta, takk fyrir.

-b.
Föstudagurinn 18. desember 2009, kl. 12:52

Krissi
Takk fyrir mig þá eru jólinn kominn
Mánudagurinn 21. desember 2009, kl. 19:28

Oggi
Vá nú get ég loksins haldið jólin! Er búinn að leita af þessu lagi í nokkra mánuði, þetta reddar alveg jólunum fyrir mér!
Föstudagurinn 9. apríl 2010, kl. 12:32

Haffi
Vá, ertu búinn að bíða síðan síðasta desember? Eða er kannski enn lengra síðan?
Föstudagurinn 9. apríl 2010, kl. 15:00

Oggi
Ég er búinn að bíða frá því í desember í fyrra eða hittífyrra, orðið svo langt síðan að það er farið að renna saman í eitt..
Laugardagurinn 10. apríl 2010, kl. 15:26


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?