Uppskriftahornið: SaltÞað er allt of langt síðan ég setti uppskrift á þessa síðu. Hér er uppskrift að salti:
Salt fyrir sex til átta manns
20 g malað salt
Berið fram með t.d. poppkorni eða frönskum kartöflum.
Mánudagurinn 26. janúar 2009, kl. 23:30
Bynni

Ég prófaði þetta og OMG ÞETTA ER ÆÐI!!!
Þriðjudagurinn 27. janúar 2009, kl. 11:46Gunni

Passar líka vel með sítrónu og smá skvettu af tekíla
Þriðjudagurinn 27. janúar 2009, kl. 21:37Oggi

Ertu búinn að prófa þessa uppskrift? Er 20 g af möluðu salti nóg fyrir 6-8 manns?
Ertu að tala um gróf malað salt eða fín malað salt?
Miðvikudagurinn 28. janúar 2009, kl. 13:20Gunni

Ráðlagður dagskammtur af salti er 2400 milligrömm þannig að þetta ætti að duga fyrir nákvæmlega 8 1/3 manns.
Miðvikudagurinn 28. janúar 2009, kl. 14:08Haffi

Ég vil þakka Gunna fyrir að hafa rannsakað málið afar gaumgæfilega og fyrir að setja niðurstöður sínar fram með svo skýrum hætti.
Til að svara spurningu sem kom fram hér fyrir ofan, þá fer það eftir smekk hversu mikið mulið saltið á að vera. Á föstudögum er oft gott að bryðja mjög grófmalað götusalt, en t.d. á mánudögum vilja margir heldur fínmalað borðsalt.
Miðvikudagurinn 28. janúar 2009, kl. 16:15