Haffi!


Góð auglýsing
Ég rak augun í ansi skemmtilega auglýsingu um daginn, þar sem verið var að auglýsa ýsu á lágu verði. Hér má sjá það sem gladdi mig sérstaklega við auglýsinguna:

Dauð ýsa

Eins og sjá má hefur umræðan á auglýsingastofunni verið á þessa leið:

Yfirmaður: „Jæja, gott fólk. Við þurfum að gera blaðaauglýsingu til að selja fólki fisk.“
Starfsmaður A: „Ég veit, tökum mynd af ýsuhræi, setjum bara kryddjurt ofan á það til að það líti út fyrir að vera girnilegt!“
Starfsmaður B: „Frábær hugmynd!“ * Klapp klapp *
Starfsmaður C: „Já, æðisleg hugmynd!“ * Klapp klapp *
Starfsmaður D: „Ég er fáviti, en mér finnst þetta samt rosa góð hugmynd!“ * Klapp klapp *
Yfirmaður: „Já, kýlum á þetta! Setjið upp gleraugun með þykku spangirnar, kveikið á Apple tölvunum og klárið þetta mál!“

Mér datt svo í hug að athuga hvernig ég myndi standa mig í auglýsingabransanum, þ.a. ég bjó til auglýsingu fyrir t.d. kjötvinnslu. Ég viðurkenni alveg að ég nýtti mér nokkrar hugmyndir úr hinni auglýsingunni:

Dauð belja

Mér finnst þetta hafa tekist bara nokkuð vel. Takið sérstaklega eftir því að steinseljan sem ég setti á hræið gerir þetta miklu lystugra! Maður fær bara vatn í munninn!

Ef einhver auglýsingastofa vill ráða mig til starfa þá er auðvelt að finna mig í símaskránni.
Föstudagurinn 20. mars 2009, kl. 22:51

Bynni
HAHAHA! Eðall!
Laugardagurinn 21. mars 2009, kl. 18:56

Hlynur
Ég fæ nú bara vatn í munninn
Mánudagurinn 23. mars 2009, kl. 14:32

Gunni
Vá hvað maður væri til í juicy steik núna
Fimmtudagurinn 26. mars 2009, kl. 16:26

Oggi
Hehe snilld, það var orðið mjög langt síðan ég kíkti seinast og var með smá kvíða yfir því að það væri ekkert nýtt og ef svo væri að það væri lélegt efni. En til mikillrar lukku sannar Haffi enn og aftur að húmorinn hans er alltaf góður!
Fimmtudagurinn 26. mars 2009, kl. 19:55

Haffi
Já, maður er ekkert dauður úr öllum æðum ennþá.
Föstudagurinn 27. mars 2009, kl. 10:28


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?