AndbrandariBólivíumaður, Rússi og Íslendingur ganga inn á bar. Þegar þeir setjast sjá þeir að það situr önd á barborðinu. Bólivíumaðurinn pantar sér bjór og segir: „Í Bólivíu er ekki mikið um endur, en við erum t.d. með kólibrífugla sem geta flogið aftur á bak.“
Rússinn pantar sér Vodka og segir: „Iss, í Rússlandi erum við með albatrossa sem eru með eitt mesta vænghaf í heimi!“
Íslendingurinn pantar sér vatnsglas og segir: „Á Íslandi er ekkert voðalega mikið af fuglum, en stundum má sjá gæsir á túnum og það er þónokkuð um endur á Tjörninni. Svo koma stundum mávar á Tjörnina til að næla sér í brauð.“
Íslendingurinn klárar síðan vatnsglasið og fer heim til sín. Þar setur hann spólu með gömlum Derrick þáttum í myndbandstækið og horfir á. Þættirnir eru það eina sem veitir honum einhverja gleði í annars innihaldssnauðu lífi hans. Hann hafði áður mjög gaman að dansi og mannamótum en eftir að konan fór frá honum og hundurinn dó þá hefur hann alveg misst áhugann á því, fyrir utan það að fara stundum á barinn og fá sér vatnsglas á leiðinni heim úr vinnunni. Þar spjallar hann stundum við ferðamenn sem koma á barinn af hótelinu í næsta húsi til að fá sér t.d. bjór eða aðra hressingu.
Þetta er sem sagt andbrandari (e. anti-joke). Mig langaði bara að prófa að semja einn slíkan eftir að ég rakst á þannig á netinu um daginn. Þetta þýðir náttúrulega ekki að ég sé hættur að segja aulabrandara.
Mánudagurinn 4. maí 2009, kl. 16:50
Oggi

Vá þetta var alvöru andbrandari.
Mér líst ágætlega á þennann aukna metnað sem lagður hefur verið í fjölda pistla. En jafnframt fer ég að velta því fyrir mér hvað veldur.. Ertu með einhverjar skýringar á reiðum höndum um þessa skyndilegu aukningu pistla?
Mánudagurinn 4. maí 2009, kl. 17:36Bynni

Áhugavert, ég mun fylgjast grannt með þróun mála.
Mánudagurinn 4. maí 2009, kl. 18:10Bynni

Á þessum nótum væri ég gjarnan til í að vita hvernig aulaandbrandari væri!
Mánudagurinn 4. maí 2009, kl. 18:14Hlynur

Mamma þín er virðuleg og góð kona í alla staði.
Þriðjudagurinn 5. maí 2009, kl. 13:02Haffi

Hehe, góður.
Þriðjudagurinn 5. maí 2009, kl. 13:47Haffi

Varðandi aukinn fjölda pistla sem þú nefnir Oggi, þá er það rétt hjá þér að ég er að reyna að auka fjöldann, það er bara verst að gæðin minnka að sama skapi. Ég ætla samt að reyna að halda mínu striki.
Þriðjudagurinn 5. maí 2009, kl. 13:49