Mín hugmynd að kvikmyndÉg teiknaði um daginn mynd í
Inkscape af unganum Fiðriki, og þessi mynd gaf mér hugmynd að þrívíddarteiknimynd sem gæti orðið ansi vinsæl.
Myndin fjallar sem sagt um u.þ.b. mannhæðarháan páskaunga sem kemur allt í einu út úr risastóru páskaeggi í Kringlunni einn góðan veðurdag. Þetta er samt enginn venjulegur ungi, ó nei!
Þessi ungi er nefnilega lifandi dauður og hefur aðeins lyst á mannakjöti og er því réttilega kallaður Náunginn. Hann byrjar á því að fara út úr Kringlunni og í næsta kirkjugarð til að ná sér í smá næringu en einnig á hann það til að drepa fólk sér til matar. Síðan smíðar hann sér greni, eða nágreni, í Öskjuhlíðinni úr spýtum og laufblöðum þar sem hann hefst við á meðan hann er ekki úti að veiða. Síðan kemur víkingasveitin og reynir að drepa hann en sú tilraun fer út um þúfur. Restina af handritinu á ég svo eftir að hugsa betur, en a.m.k. endar allt nokkuð vel.
Hér er svo myndin sem ég teiknaði, þetta gæti verið veggspjaldið sem væri notað til kynningar:
Hvað segið þið, eru einhverjir fjárfestar tilbúnir í þetta verkefni? Ætti maður kannski að tala við Nýsköpunarmiðstöð?
Föstudagurinn 22. maí 2009, kl. 10:18
Bynni

Þetta er verkefni sem ég myndi glaður fjárfesta í! Alger snilld Haffi!
Föstudagurinn 22. maí 2009, kl. 10:22Oggi

hehe
Laugardagurinn 23. maí 2009, kl. 21:55Hlynur

Hvenær fáum við að sjá rough sketch í gerðan blender sem þú sendir síðan til fjárfesta?
Mánudagurinn 25. maí 2009, kl. 13:18Haffi

Hmmm, það er spurning. Ég held ég sé ekki nógu góður í Blender til að gera þetta sjálfur.
Þriðjudagurinn 26. maí 2009, kl. 11:06Oggi

Þetta gæti verið sett upp sem svona stuttmynda sería á netinu, sjá Circledrawers, sé það alveg fyrir mér og myndi setja það inn í Readerinn hjá mér og jafnvel á Fésbók ef það er hægt og ef ég mun einhverntíma fara á Fésbókina.
Þriðjudagurinn 26. maí 2009, kl. 20:35