Sköpunargleði eða hæfileikar?Ég fór að pæla í því um daginn hvað ég hef verið duglegur að skapa hluti hérna á þessu vefsvæði í gegnum tíðina.
Dæmi:
Tónlist,
skrítla,
Flash-myndband,
þrívíddarmyndbönd,
pappírsbíll,
panorama mynd,
vektormyndir,
andbrandari,
uppskriftir,
auglýsingagerð,
saga fyrir börn,
gagnrýni,
aktívismi,
ljóðagerð,
æviágrip og margt fleira.
Ég held að það sé sem sagt óumdeilt að ég sé duglegur að skapa. Hins vegar virðist ég ekki hafa úr miklum hæfileikum að spila eins og sömu dæmi sýna glögglega, auk þess að það er augljóst að ég hef ekki náð að fókusa þessum litlu hæfileikum á eitthvað eitt svið.
Hér er smá graf til að skýra þetta betur:
Hvað get ég gert til að bæta úr þessu?
Föstudagurinn 29. maí 2009, kl. 10:59
Bynni

Þú gætir farið þá leið að pósta mun sjaldnar og vanda verkin þeim mun meira.
Föstudagurinn 29. maí 2009, kl. 11:26Haffi

Þá fæ ég yfir mig skæðadrífu af neikvæðum athugasemdum um hvað ég er latur og skrifa lítið!
Föstudagurinn 29. maí 2009, kl. 11:45Bynni

Ég skal lofa að vera ekki með athugasemdir, þá færðu bara athugasemdir frá einum lesanda... og slíka pressu þolirðu sennilega.
Laugardagurinn 30. maí 2009, kl. 16:53Haffi

Ja, hinn lesandinn hefur hrósað mér fyrir meiri virkni nýlega þannig að ég ætla að halda mig við magn umfram gæði.
Sunnudagurinn 31. maí 2009, kl. 01:58Oggi

Magn umfram gæði það er málið í dag!
Gæði umfram magn er svo mikið 2007-8 þegar allir áttu gæða peninga, Rovera og flatskjái...eða var stemminginn þá magn og gæði?
Sunnudagurinn 31. maí 2009, kl. 10:47