Haffi!


Góð ráð til Hollendinga fyrir landsleikinn
Ég mæli með því að þeir tapi leiknum eða geri jafntefli við okkur, því í ljósi sögunnar þá gæti það gert þá að heimsmeisturum á næsta ári.
Við unnum Ítali 2-0 hér fyrir nokkrum árum og eftir það tap þá tapaði ítalska landsliðið ekki leik fyrr en eftir að hafa unnið HM. Næst má svo nefna Spánverja sem gerðu jafnetfli við okkur hérna heima og stóðu svo uppi sem Evrópumeistarar stuttu síðar.
Annars ætla ég að skella mér á leikinn á morgun og að sjálfsögðu held ég með Íslandi þó ég sé 1/4 Hollendingur eins og oft hefur komið fram. Ég verð með jólasveinahúfu og 17. júní fána í eystri (austari) stúkunni ef einhver vill hitta mig á svæðinu.
Föstudagurinn 5. júní 2009, kl. 14:57

Bynni
Ég mun sennilega kíkja á þig... við getum farið í keppni og reynt að sjá Hlyn á vellinum!
Föstudagurinn 5. júní 2009, kl. 15:02

Oggi
hvað kostar á svona leik? og er eitthvað vit í að fara á svona leik?
Föstudagurinn 5. júní 2009, kl. 15:43

Eva Hrund
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=76812
Held það kosti 1.500 kr.
Veit ekki hvort það sé eitthvað vit í þessu...held ekki...en örugglega gaman samt:)
Föstudagurinn 5. júní 2009, kl. 16:26

Bynni
Ég vann! Ég sá Hlyn veifa treflinum sínum!
Laugardagurinn 6. júní 2009, kl. 21:45


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?