Nýjar gæsalappir hjá mbl.isÍ
þessari grein á mbl.is má sjá í texta undir mynd að þeir eru að nota gæsalappir
* sem kallast
Guillemets sem ég hef ekki áður séð notaðar í íslensku máli en ég minnist þess hins vegar að hafa séð þetta í kennslubókum í dönsku (ekki mjög sællar minningar) í gamla daga. Ástæðan fyrir því að ég hnaut um þetta er að ég hef séð þær mjög nýlega í annarri grein á sama vefsvæði, þ.a. maður hlýtur að spyrja sig hvort þetta sé sérstök stefna hjá þeim eða hvort það sé bara kominn nýr blaðamaður hjá þeim sem er alinn upp í Danmörku.
Einhvern tímann hefði það a.m.k. þótt saga til næsta bæjar að Morgunblaðið (þar sem ennþá má sjá z-una notaða í sumum greinum) væri að taka upp nýjar gæsalappir, en ætli fólk sé ekki uppteknara af öðrum hlutum í dag.
*Það er kannski ekki rétt að kalla þetta gæsalappir þar sem þetta líkist ekki beint gæsalöppum, nema þá ef téð gæs væri pínulítið vansköpuð. Fimmtudagurinn 18. júní 2009, kl. 13:27
Gunni

Æi eins og gæsalappir hafi ekki verið nógu flóknar fyrir að þá er verið að bæta þessu ofan á allt saman! Hvar endar þetta brjálæði eiginlega?
Fimmtudagurinn 18. júní 2009, kl. 16:35Bynni

Ég hef ekkert um þetta mál að segja.
Mánudagurinn 22. júní 2009, kl. 13:09