Haffi!


Grín
Kannist þið við það þegar þið eruð þátttakendur í einhverjum umræðum þar sem fleiri en tveir eru að ræða saman að ykkur dettur eitthvað fyndið í hug til að segja en svo nær einhver annar orðinu og þið gleymið hvað það var sem þið ætluðuð að segja? Þá verður til einhvers konar þrýstingur innra með manni sem langar að komast út. Þetta getur verið mjög óþægilegt.
Stundum man maður þetta fyndna og nær að koma því út en stundum gengur það ekki. Þá minnkar þrýstingurinn smátt og smátt en ég held að hann hverfi aldrei alveg þ.a. með tíð og tíma safnast upp þessi þrýstingur sem einhvern veginn þarf að hleypa út.
Þetta getur komið sér mjög illa því þegar þessi þrýstingur kemst út þá getur hann komið út sem svokallaður „grínkippur“ þ.e. þá lendir maður í því að segja eitthvað fyndið á algerlega óviðeigandi augnabliki. Enn verra eru svo s.k. „grínflog“ en þá kemur út fullt af gríni algerlega án fyrirvara. Ég vil biðja fólk um að vara sig á þessu.
Föstudagurinn 17. júlí 2009, kl. 19:46

Gunni
Það endar vanalega með því að ég segi þennan "fyndna" hlut sem mér hafði dottið í hug en þá er moment-ið löngu farið og enginn hlær. Betra en að birgja þetta allt inni og fá flogakast seinna segi ég samt.
Föstudagurinn 17. júlí 2009, kl. 22:48

Bynni
Jaeja! Timi til kominn ad Haffinn riti nyja faerslu!
Mánudagurinn 10. ágúst 2009, kl. 22:52

Haffi
Hvaða hvaða.
Þriðjudagurinn 11. ágúst 2009, kl. 14:11

Oggi
Hehe
Sunnudagurinn 13. desember 2009, kl. 22:37


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?