Hugmynd fyrir hlaupið að áriEins og einhverjir vita tók ég þátt í 10 km hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 22. ágúst síðastliðinn. Árangurinn var ekkert til að hrópa húrra fyrir en þó skárri en ég átti von á eftir að hafa ekkert hreyft mig í sumar.
Í sumar var bryddað upp á þeirri nýbreytni að hafa s.k. héra eða hraðastjóra sem hlauparar gátu elt til að ná ákveðnum tíma. Þannig var einn hraðastjóri með helíumblöðru sem var merkt 55 mínútur þ.a. þeir sem vildu vera 55 mínútur að hlaupa gátu séð blöðruna úr fjarska og elt hana.
Þetta gaf mér stórsniðuga hugmynd! Á næsta ári gæti ég fest í mig einhvern góðan slatta af blöðrum til að létta mig og þannig væri hlaupið ekkert mál! Nú þarf bara að fara að reikna hversu mikið helíum ég þyrfti til að létta mig án þess þó að ég lyftist of mikið frá jörðinni.
Þess má geta að eftir að ég sá kvikmyndina
Up í bíó nýlega þá sá ég að þessi hugmynd er algerlega raunhæf þar sem ef þetta var hægt þar þá ætti ég að geta gert eitthvað svipað.
Fimmtudagurinn 3. september 2009, kl. 12:57
Gunni

Já fínasta hugmynd, hér er smá tillaga að betrumbætingu. Þú festir nógu mikið af helíumblöðrum við þig til að þú lyftist vel upp frá jörðinni en festir sjálfan þig samt áður við fólkið sem hleypur með blöðrurnar með lægstu tölunni (40 held ég að það sé) og lætur þau um að koma þér yfir endalínuna. Taktu samt teygjubyssu með þér eða eitthvað slíkt ef að fólkið ákveður að losa þig frá sér svo þú hverfir ekki eins og 17. júní blaðra.
Sem leiðir mig að öðru, hvert fara allar 17.júní blöðrurnar? Eru þær enn á sporbraut um jörðu einhvers staðar í heiðhvolfinu eða? Þarf Nasa að gera ráð fyrir þeim þegar gervihnöttum er skotið á loft? Spyr sá sem ekki veit.
Fimmtudagurinn 3. september 2009, kl. 15:05Haffi

Þetta er góð ábending Gunni. Spurning hvort maður hafi ekki meiri metnað og festi sig þá í einhvern sem er líklegur til að vera í efstu sætunum?
Svo veit ég þetta með 17. júní blöðrurnar; þær enda allar á norðurpólnum og skekkja segulsvið jarðar þ.a. segulnorður er ekki akkúrat á landfræðilega norðurpólnum.
Fimmtudagurinn 3. september 2009, kl. 22:17Bynni

Þetta þykja mér áhugaverðar pælingar.
Þriðjudagurinn 8. september 2009, kl. 21:52