Lélegt grínÉg rakst á skjal í Google Docs hjá mér um daginn, en þannig er mál með vexti að fyrir jólin í fyrra þegar allir voru að tala um eitthvað bankahrun og kreppu þá datt mér í hug að breyta aðeins jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum til að gera létt gys að þessu öllu. Ég komst svo aldrei lengra en að breyta fyrstu vísunni sem fjallar um Stekkjastaur, því rétt eftir þetta birtist mjög svipað grín í Fréttablaðinu sem fjallaði reyndar bara um einhverja viðskiptajöfra eins og Bjarna Ármannsson og Björgúlf Thor. Sem betur fer, því ég hefði líklega aldrei nennt að klára þetta hvort eð er og þetta hefði aldrei orðið neitt sérstaklega sniðugt grín.
Hér kemur þó þessi vísa um Stekkjastaur:
Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í bankann inn,
að láni tók sér fé.
Hann vildi stóran jeppa,
-þá stöðvuð'ann ei él.
Græjan var með þokuljós
og 1300 vél.
Ef einhver hagyrtur lesandi treystir sér til að bæta í sarpinn, þá er það alveg velkomið.
Fimmtudagurinn 3. desember 2009, kl. 23:58
Haffi

Engin athugasemd?! :'(
Þriðjudagurinn 8. desember 2009, kl. 12:54Bynni

Jájá væli væli.
Þetta er gott framtak og ég bíð spenntur eftir framhaldi. Kannski að Hlynur skjóti inn þeirri næstu...
Miðvikudagurinn 9. desember 2009, kl. 12:49Hlynur

Giljagaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
-Hann tók allt út á kredit
og ekkert lagði inn.
Hann faldi sig í bankanum
og sparnaðinum stal,
meðan gjaldkerarnir áttu
við verkalýðinn tal.
Nú má næsti hagyrðingur taka við.
Föstudagurinn 11. desember 2009, kl. 13:43