Notkun sviga með brosköllumÉg hef stundum lent í vandræðum með sviga og broskalla, t.d. þegar ég er að skrifa tölvupóst og þarf nauðsynlega að nota broskall til að koma því á framfæri að eitthvað sé ekki sagt í fullri alvöru.
Skoðum dæmi (svona er þetta málfræðilega réttast):
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :))
Hér sjáum við að broskallinn lítur furðulega út þar sem hann virðist vera með tvo munna. Við gætum sett bil á eftir munninum og þá liti þetta svona út:
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :) )
Þetta lítur frekar einkennilega út þ.a. við verðum að finna betri leið. Nú þekkja þeir sem hafa komið hafa nálægt forritun að maður skal aldrei láta sviga standa ólokaðan eða loka sviga sem aldrei var opnaður, þ.a. við myndum skrifa þetta á þennan hátt:
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :)
Hér er aðeins einn svigi opnaður og einum lokað og þetta lítur bara nokkuð smekklega út, þ.a. allir góðir menn leysa þetta á þennan hátt.
Sunnudagurinn 25. apríl 2010, kl. 16:24
Oggi

Þar sem sviginn á greinilega ekki við tvípunktinn heldur við fyrri svigan verð ég að spyrja: er ekki asnalegt að enda með tvípunkti?
Miðvikudagurinn 28. apríl 2010, kl. 11:35Haffi

Þakka þér fyrir spurninguna.
Þetta er réttmæt ábending hjá þér, því þarna er ég að láta svigann gegna tvöföldu hlutverki. Ég lít þó frekar á það sem góða nýtingu heldur en hitt, en það er mögulegt að einhverjir gætu ruglast og séð aðeins tvípunkt í lausu lofti þarna.
Miðvikudagurinn 28. apríl 2010, kl. 13:08Bynni

Ég hallast að því að (-insert áhugverð staðreynd- ;) sé besta leiðin.
Fimmtudagurinn 6. maí 2010, kl. 21:50Haffi

Ég er samt pínu svekktur yfir því að enginn hafi tekið eftir fýlubroskallinum sem ég laumaði þarna inn í textann.
Fimmtudagurinn 13. maí 2010, kl. 22:08Bynni

Ég tók alveg eftir honum... en skilgreindi hann ekki sem fýlukall heldur sem sviga og svo tvípunkt.
Sunnudagurinn 16. maí 2010, kl. 00:36