HTML5 myndbönd Ég er aðeins búinn að vera að fikta í HTML5 myndböndum, þ.e. að setja myndbönd beint inn í HTML-ið (á sama hátt og venjulegar myndir) í staðinn fyrir að notast við Flash. Ég var að bæta þessari virkni inn á Sveigur.net og það virðist virka ágætlega. Það þarf reyndar að setja myndbandið á tvö snið til að þau virki í öllum vöfrum, þ.e. OGG og MP4. Hér er smá sýnishorn af því hvernig þetta lítur út:
P.S. Þegar ég horfi á þetta myndband núna skil ég ekki alveg hvað ég var að hugsa þegar ég bjó það til. En svona erum við listamenn víst, algjörlega óútreiknanlegir. Laugardagurinn 1. maí 2010, kl. 22:19 Bynni Þetta er enn stórbrotið 5 árum eftir að þetta var gert! Fimmtudagurinn 6. maí 2010, kl. 21:53