Uppskriftabókin mínÉg var að fá alveg magnaða hugmynd að uppskriftabók sem ég vil endilega deila með tryggum lesendum mínum. Hugmyndin gengur sem sagt út á það sem ég vil kalla
víxluppskriftir. Víxluppskrift er sem sagt uppskrift þar sem búið er að taka einhverja þekkta uppskrift og víxla nöfnunum til að fá eitthvað alveg nýtt út. Það þekkja til dæmis flestir bananabrauð. Ef það er gott, af hverju að prófa þá ekki brauðbanana?
Hér eru dæmi um nokkrar uppskriftir sem myndu vera í bókinni:
Bananabrauð? Nei, brauðbanani.
1 stk. banani.
Brauðdeig að eigin vali.
Opnið eina mjóa rönd á bananann og takið „kjötið“ úr. Setjið brauðdeig inn í bananahýðið og bakið í ofni þar til brauðið er tilbúið. Voilà, brauðbananinn er tilbúinn!
Kjúklingapasta? Nei, pastakjúklingur.
1 stk. heill kjúklingur
Pasta
Pastasósa
Sjóðið pastað og setjið síðan sósuna út á það. Troðið pastanu inn í kjúklinginn og steikið hann í ofni þar til kjötið er fulleldað.
Kokkteilsósa? Nei, sósukokkteill.
1 stk. Bernaisesósa
1 stk. Sveppasósa
Blandið sósunum saman og út kemur eitthvað sem enginn hefur smakkað áður. Hér er tilvalið að prófa önnur tilbrigði og það er ekkert því til fyrirstöðu að blanda fleiri sósum saman.
Hafa lesendur hugmyndir að fleiri réttum í bókina?
Fimmtudagurinn 13. maí 2010, kl. 22:05
Bynni

Þetta er mjög fróðlegt en ég hef ekkert til að bæta við þetta.
Sunnudagurinn 16. maí 2010, kl. 00:36Haffi

Ég hef fengið miklu færri símtöl frá bókaútgáfum en ég bjóst við. Kannski er þetta út af efnahagsástandinu.
Miðvikudagurinn 19. maí 2010, kl. 13:35Bynni

Ég held að það sé tilkomið vegna kosninganna. Þetta kemur með sumrinu ;)
Föstudagurinn 21. maí 2010, kl. 01:41