Haffi!


Misræmi milli skilta við þjóðveginn
Nú er mér gjörsamlega nóg boðið! Hafið þið tekið eftir skiltum sem þessum við þjóðvegina?


Myndin er tekin í bíl á ferð og því ekki í neitt sérstökum gæðum, en það skiptir ekki öllu máli.

Þetta skilti þýðir sem sagt að framundan sé notalegur bekkur til að sitja við og tré í næsta nágrenni.
Eini gallinn er að það er bara aldrei neitt fjárans tré við bekkinn! Til hvers í skrambanum er verið að teikna þetta bjánalega tré á skiltið ef það er svo ekkert árans tré?! Væri það ekki bara þjóðráð að planta einu fjandans tré við hvern bévítans bekk? Ellegar þarf að eyða fullt af peningum í að afmá þessi déskotans tré af skrattans skiltunum!

Ef þessi ósköp eru ekki nóg til að gera lesendur bandbrjálaða af reiði þá skuluð þið búa ykkur undir það versta, því þetta er sko ekki búið enn. Ónei. Til að bæta gráu ofan á svart þá er misræmi á milli skiltanna að auki! Við skulum skoða aðra mynd af skilti sem finna má í Húnavatnssýslu:



Sjáið þið þetta?! Tréð hallar á myndinni! Og hvað haldið þið svo? Það var ekkert bölvað tré við fjandans bekkinn! Til hvers í fjáranum er verið að setja mynd af hallandi tré á skilti þegar það er svo ekkert fjárans tré?!

Lausleg könnun við þjóðveg 1 leiddi í ljós að meirihluti skiltanna (þegar farið er rangsælis kringum landið) er af fyrri gerðinni, en minna er um skiltin af seinni gerðinni. Flest skiltanna með hallandi tré eru á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ætli trén séu eitthvað öðruvísi í þeim landshluta?! NEI, ÞVÍ ÞAÐ ERU ENGIN FJANDANS TRÉ VIÐ FJANDANS BEKKINA!
Þriðjudagurinn 22. júní 2010, kl. 23:16

Oggi
Ég á ekki til orð til að lýsa hneykslun minni á þessum skiltum!!

En ég á orð til að lýsa því hvað ég er ánægður með þig að taka eftir þessu og það með fjölskylduna í bílnum! Það þarf sterkann einstakling til að láta ekki konu og næstum nýfædd barn trufla sig frá því að telja og skoða skilti!
Haffi þú ert rosalegur!

Að lokum. Verður þú ekki að fara skipta um mynd af kisunum. Þeir eru örugglega ekki lengur kettlingar..
Föstudagurinn 2. júlí 2010, kl. 10:16

Bynni
Minn kæri Hafsteinn, vælubíllinn er á leiðinni til þín!
Miðvikudagurinn 7. júlí 2010, kl. 00:26

Haffi
Mennirnir í vælubílnum komu áðan og þeir voru ekki sáttir við að lenda í svona gabbútkalli. Þeir héldu að allir vissu að vælubíllinn sinnir ekki útköllum vegna reiði.
Miðvikudagurinn 7. júlí 2010, kl. 13:01

Bynni
Kæri Hafsteinn,

Ég rita þessa athugasemd með þungu hjarta. Það sem þér kallið "reiði" er i raun "væll".

Yðar einlægi vinur,
Bynni.

p.s við Magga vorum mikið að spá í þessu þegar við fórum hringinn!
Föstudagurinn 30. júlí 2010, kl. 00:48

Haffi
Já, og urðuð þið ekki alveg brjáluð? Ef þið sáuð beyglað skilti á leiðinni þá er það eftir eitt reiðikastið mitt.
Föstudagurinn 30. júlí 2010, kl. 09:52


Nafn:

Heimasíða:

Texti:


Hvar eru kettlingarnir?