Ástæður þess
Ástæður þess að ég hefi ei bloggað sem skyldi undanfarið eru þær að ég hef verið upptekinn að blogga inn á síðu knattspyrnuliðs míns, FC Kársness. Þó sé ég fram á að ég muni geta nýtt nokkrar glufur í þéttri stundatöflu minni til að skrifa hér örstutta pistla um daginn,veginn og veðrið. Þó mun ég leggja minnsta áherslu á að skrifa um veginn, því það er afar óáhugavert viðfangsefni og ég veit heldur ekki hvaða veg ég gæti skrifað um, með þeirri undantekningu þó að það eru til nokkrir gríðarlega áhugaverðir vegir út á landi. Augljóst er að veður og dagar eru bæði áhugaverð viðfangsefni á sinn hátt.
Í dag er miðvikudagur.
Veður ágætt. Úrkoma í grennd. Skyggni ekkert spes.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 29. janúar 2003
Blogg mitt
Blogg mitt hefur verið endurvakið!
Engin andsvör Miðvikudagurinn 29. janúar 2003
Ég tel
Ég tel það ekki ólíklegt að ég muni aldrei nokkurntímann eiga það eftir ógert að blogga ekkert mikið meira á þessa síðu en hingað til, en það er á hinn bóginn heldur ekkert ólíklegt að ég muni ekki eiga það eftir ógert að blogga ekkert mikið minna.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 29. janúar 2003
Vá sáuð
Vá sáuð þið markið hans Eiðs Smára? Eitt flottasta mark leiktíðarinnar án vafa. Loksins er kominn fram knattspyrnumaður sem gæti velt mér úr sessi sem besti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar. Ég treysti mér allavega ekki til að skora svona glæsilegt mark í dag, sökum aldurs.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 29. janúar 2003
Stafasúpa
A FASTEN HENS IRON SIN
A FATNESS SINNER HI NO
A FATNESS HEN IS IN RON
A FASTNESS HEN RIO INN
A FATHERS NINNIES SON
SEASE A FINNS HORN TIN
A TERESA FISH INNS NON
A HASTENER FINNS IS ON
Þessar setningar hér að ofan eiga það allar sameiginlegt að vera myndaðar úr stöfunum í nafninu mínu.
Prófið þetta á
Stafasúpa.comEngin andsvör Fimmtudagurinn 30. janúar 2003
Ein pæling...
Hvort
Ein pæling...
Hvort hljómar betur:
Stairway To Heaven með Led Zeppelin?
eða
Hairway To Steven með Zed Leppelin?
Engin andsvör Fimmtudagurinn 30. janúar 2003
Hobbitanafnið mitt
Hobbitanafnið mitt væri Posco Hardbottle ef ég ætti heima í Skíri (The Shire). Ef ég væri álfur hinsvegar, héti ég Tathar Elanessë. Já það eru til ótrúlegustu heimasíður á netinu...
hér er linkurinn ef þið hafið áhuga á að vita hver hobbita- og álfanöfnin ykkar eru:
Álfa- og Hobbitanöfn.comEngin andsvör Fimmtudagurinn 30. janúar 2003
Smá pæling
Smá pæling sem ég verð að koma frá mér. Þið hafið örugglega heyrt um það þegar skip þurfa að senda út neyðarkall. Ég sá svona fyrirsögn í Mogganum um daginn, "Skip sendir út neyðarkall." Þá fór ég að pæla, hvort það sé einhver svona kista í öllum skipum merkt "Neyðarkallinn" og svo þegar skipið lendir í háska þá er kistan opnuð og úr henni kemur svona dvergur í ofurhetjufötum sem hoppar útbyrðis með reipi og öskrar "Neyðarkallinn til bjargar!" og syndir eitthvert eftir hjálp eða bindur skipið í næsta sker. Svo gæti kannski verið að einn meðlimur í áhöfn skipsins sé tilnefndur neyðarkall í upphafi ferðar og svo ef skipið lendir í einhverri hættu þá fer sá aðili í Neyðarkallsfötin og hoppar útbyrðis? Spyr sá sem ekki veit.
P.s.
Ef það er einhver sjómaður þarna úti sem veit svarið við þessu þá endilega sendu mér rafpóst.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 30. janúar 2003
Landslið
Ég hef ákveðið að gefa hér með kost á mér í knattspyrnulandslið Íslands, Japans og Hollands. Ég veit að með mig innanborðs munu öll þessi eiga von á því að vinna a.m.k. Suður-Ameríku Bikarinn, ef ekki heimsmeistarakeppnina. Svo vil ég einnig taka það fram að ég hef samið mjög frambærilegt lag til að taka þátt í Eurovision keppninni á næsta ári, og mér er nokk sama fyrir hvaða land ég keppi. Sendið mér bara póst...
Mörg andsvör (3) Laugardagurinn 1. febrúar 2003
UPPSKRIFTAHORNIÐ
Gnorp
1 ml
UPPSKRIFTAHORNIÐ
Gnorp
1 ml flamm
3 msk grapp
7 dl klóperfen
137 cm lúkerfól
7 mg heklóklóterópliff
Setjið flammið, grappið og lúkerfólið í krúpp. Hrærið með sneif í 15 mínútur, og bætið klóperfeninu við smátt og smátt. Smyrjið svo heklóklóterópliffinu á gnorpið með snerpli. Bætið við júmeróflompi eftir smekk. Berið fram með grópenóflanvíni.
Engin andsvör Sunnudagurinn 2. febrúar 2003
Ég gerði
Ég gerði ekki neitt þessa helgi annað en að læra! Hversu ömurlegt er það? Ég vil einnig geta þess að hráefnin í uppskriftina hér að neðan fást í Bnóróklanbúðinni við Júfnerplókgötu.
Engin andsvör Sunnudagurinn 2. febrúar 2003
Vegna margra
Vegna margra fyrirspurna sé ég mig tilneyddan til að taka það fram að uppskriftin hér að neðan er bull.
Engin andsvör Mánudagurinn 3. febrúar 2003
Kosningar
Jæja þá eru kosningar í nánd og við sjáum fram á að kosningabaráttan verði alveg jafn leiðinleg og áður. Ég hef lengi beðið eftir því að stjórnmálamenn fari að verða heiðarlegir í svona spjallþáttum, því þeir eru alltaf að reyna að vera málefnalegir og kurteisir og segjast jafnvel bera virðingu fyrir andstæðingum þeirra! Þvílík hræsni! Ég bíð spenntur eftir því að einhver stjórnmálamaðurinn sleppi fram af sér beislinu og frussi á andstæðinga sína í spjallþáttum og kalli þá asna og vitleysinga (sem er þeirra raunverulega skoðun). Svo væri ekki verra ef hinir stjórnmálamennirnir tækju upp á því að spegla það sem hinn segir, og þá myndi hann spegla það tvöfalt á móti. Þó er einn stjórnmálamaður í dag sem er ansi nálægt þessu með frussið og speglið, en það er hann Davíð Oddson, hæstvirtur (?) forsætisráðherra. Mér líkar þó ekki við það hvað hann reynir að halda aftur af sér því hann ætti auðvitað að láta þetta allt flakka. Það sést oft mjög vel á svipnum á honum hvað hann langar til að frussa og kalla fólk heimskingja og fitubollur.
Hér er eitt dæmi um það sem þingmaður gæti sagt þegar hann stígur upp í pontu á Alþingi hinu háa: "Ég vil taka það fram að hæstvirtur fjórði þingmaður Sneiðarfjarðar er sjálfur asni og ég spegla allt hitt sem hann sagði um mig!"
Og þá gæti hinn svarað: "Ég spegla allt sem hæstvirtur áttugasti og níundi þingmaður Kleprasýslu tvöfalt og bæti því við að hann er algjör fitubolla og gleraugnaglámur!"
Já, stjórnmál gætu verið miklu skemmtilegri en þau eru í dag...
Engin andsvör Þriðjudagurinn 4. febrúar 2003
Ef þið
Ef þið borðið ekki viðbjóðslegan súrmat sem hinn háværi minnihluti á Íslandi stærir sig af að borða á þorranum, skráið ykkur þá í
Samtök Gegn Súrmeti.com. Loksins eru komin fram samtök á Íslandi með raunveruleg og mannbætandi markmið.
Engin andsvör Föstudagurinn 7. febrúar 2003
Hér kemur
Hér kemur ein lítil ferskeytla sem mér flaug í hug nýlega, þar sem nú stendur yfir mikil hátíð súrmetisætna sem oft er kölluð Þorri.
Þorrann þreyja gamlir menn,
þráamat þeir eta.
Þeir sem ungir teljast enn,
allt mögulegt geta.
Engin andsvör Sunnudagurinn 9. febrúar 2003
Ég er
Ég er að pæla í því að kalla þessa síðu „Menningarvef Haffa“ af augljósum ástæðum. Ég þyrfti aðeins að bæta við smá myndlistar- og leikhúsgagnrýni og þá væri ég kominn með stærsta menningarvef á landinu!
Engin andsvör Mánudagurinn 10. febrúar 2003
Þar sem
Þar sem ég hef fengið gífurleg viðbrögð (auðvitað jákvæð) við kveðskap mínum, hef ég ákveðið að kasta hér fram einum fyrripart, sem þið getið svo leikið ykkur að botna í „shout out“ dótinu. Veitt verða verðlaun fyrir fallegasta seinnipartinn. Athygli er vakin á því að gerðar eru kröfur um fallega stuðlasetningu og höfuðstafi.
Hallgrímskirkja er afar há,
hoppa þaðan fáir.
Engin andsvör Mánudagurinn 10. febrúar 2003
Listgagnrýni
Nýlega kíkti
Listgagnrýni
Nýlega kíkti ég á
sýningu á verkum Svövu Björnsdóttur í Listasafni Íslands á Netinu. Skemmst er frá því að segja þessi sýning er afar smekkleg og ljóst að Svava er upprennandi listakona og gæti hæglega skákað mönnum eins og Picrasso og Van Cough í framtíðinni. Sýning þessi er auðsjáanlega beitt ádeila á efnahags- og fiskveiðistjórnunina á Íslandi í dag. Listakonan er greinilega undir áhrifum frá Senegölsku expressjónistunum frá 15. öld, því þarna er mikið um geómetrískar abstraksjónir með „dash“ af hýperbólskri andhyggjustefnu. Að mínu mati er þessi sýning því mikið augnakonfekt og vel þess virði að leggja leið sína á rafrænan hluta þessarar sýningar. Þó öll verkin séu afar falleg þá er eitt sem stendur upp úr og heitir það því viðeigandi nafni „Án titils“.
Einkunn: 31 af 37 mögulegum.Engin andsvör Þriðjudagurinn 11. febrúar 2003
Nýjung! Nú
Nýjung! Nú er hægt að senda höfundi svokallaðan rafpóst með með
einum músarsmelli (og smá lyklaborðsáslætti)! Rafpósturinn svokallaði er ný tækni sem ég spái að æ fleiri netverjar munu nýta sér í náinni framtíð. Allar ábendingar um prent- eða stafsetningarvillur eru vel þegnar og einnig um málfar.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 11. febrúar 2003
Á vel
Á vel við mig held ég nema að ég er ekki með svona marga á msn...
Sjáðu hvaða týpa þú ert
Engin andsvör Miðvikudagurinn 12. febrúar 2003
Flott mynd...
Flott mynd...
Engin andsvör Föstudagurinn 14. febrúar 2003
Bingó!
Mig langar svo að prófa að fara á bingó í Vinabæ en ég er bara svo hræddur við að breytast í bingófíkil! Ég hef heyrt að fólkið sem fer í bingóvítið í Vinabæ, eins og ég vil kalla það, sé upp til hópa djúpt sokknir bingófíklar á ellilífeyri... Þið munið líklega eftir knattspyrnumanninum sem viðurkenndi það nýlega að hafa tapað 50 milljónum íslenskra króna á bingófíkn sinni... Ég held að maður ætti ekkert að vera að prófa þetta...
Engin andsvör Föstudagurinn 14. febrúar 2003
Hversu margir
Hversu margir eru tilbúnir til að fara í raftingferð í sumar?
Engin andsvör Mánudagurinn 17. febrúar 2003
Grænmetisætur
Ég hef alltaf haldið að ég sé mjög víðsýnn og fordómalaus ungur drengur, en nýlega uppgötvaði ég það að ég hef andúð á einum þjóðfélagshóp, sem eru grænmetisætur. Hver getur svo sem skilið það að vilja ekki borða t.d. beikon? Ekki ég allavega. Ég hef oft keyrt um þjóðvegi landsins og séð hin ýmsu dýr étandi gras, og hugsað með mér að þessi dýr gætu orðið dýrindis lambalæri, sviðahaus eða pulsa. Einnig hef ég komist í návígi við kindur og hesta, og það skín úr andlitum þeirra löngunin til að láta slátra sér og borða sig. Hvaða kind vill t.d. ekki verða pulsa eftir dauðann? En aftur að grænmetisætum. Pælið í nafninu aðeins. Hljómar mjög líkt mannætu er það ekki? (Og rímar við vænfletisspætu) Ég held að í náinni framtíð eigi grænmetisætur eftir að rísa upp á afturlappirnar út af öllu þessu aðkasti sem þær verða fyrir og stofna einhverskonar baráttusamtök (Grænu Khmerarnir?) sem berjast fyrir réttindum grænmetisætna um land allt. Einnig er líklegt að haldin verði styrktarsöfnun fyrir samtökin á öllum sjónvarpsstöðvum þar sem margir frægir skemmtikraftar munu koma fram, og svo verður árleg skrúðganga grænmetisætna, þar sem grænmetisætur geta gengið niður Laugaveginn með kröfuspjöld eins og t.d. „Grænmetisætur eru líka fólk!“, „Beljur eru vondar!“ og „Pulsur fyrir plebba!“. En þar sem ég er mjög víðsýnn ungur drengur þá lít ég ekki lengur svo á að grænmetisætur séu 3. flokks þjóðfélagsþegnar heldur hafa þær færst í 2. flokk.
Öll hryðjuverk vegna skoðana minna eru afþökkuð.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 18. febrúar 2003
Ég henti
Ég henti þessari ljótu tekílamynd út!
Engin andsvör Fimmtudagurinn 20. febrúar 2003
Hér með
Hér með tilkynnist opinberlega að Þórunn M. Ingvarsdóttir og Hildur J. Friðriksdóttir munu hljóta verðlaun fyrir besta seinnipartinn í kveðskaparkeppni sem haldin var hér á vefsetri mínu fyrir skömmu. Hljóta þær að launum dökkgrænan Extra tyggigúmmípakka (eucalyptus) Pakki þessi inniheldur undraefnið xylitol sem er allra meina bót. (Varúð: Ofneysla á Extra tyggigúmmíi getur haft laxerandi áhrif)
Engin andsvör Fimmtudagurinn 27. febrúar 2003
Miskunnsami samúræjinn
Smásaga dagsins:
Miskunnsami Samúræinn
Jón: Sýndu mér miskunn þú mikli samúræi! Ekki höggva af mér hausinn!
Miskunnsami Samúræinn: Ókei.
Engin andsvör Föstudagurinn 28. febrúar 2003
Hverjir eru
Hverjir eru til í að taka sér frí fyrir hádegi á miðvikudag, leigja sér nunnu- eða hestabúning og fara með mér að syngja fyrir nammi og fleiru í fyrirtækjum?
Engin andsvör Mánudagurinn 3. mars 2003
Ef Bandaríkjamenn
Ef Bandaríkjamenn myndu halda þorrablót, væri það þá kallað Fear Factor?
Engin andsvör Fimmtudagurinn 6. mars 2003
Kvikmyndarýni
Fyrir ekki
Kvikmyndarýni
Fyrir ekki svo löngu skrapp ég í bíó í Kópavogi og sá þar mynd sem kallast Hættupúkinn (e. Daredevil). Fjallar sú mynd um ævintýri manns sem er blindur lögfræðingur á daginn en verður blindur lögfræðingur í leðurbúningi á nóttunni. Berst hann við ýmis ill öfl dag sem dimma nótt og virðist blinda hans ekki hamla honum en ástæðan fyrir því er sú að hann lenti ungur í slysi á mjólkurbýli, þar sem mikið magn af mjólk helltist yfir hann þannig að hann missti sjónina, en allt kalkið í mjólkinni styrkti beinin og örvaði heyrnina, þannig að hún virkar sem ratsjá. Stuttu eftir slys þetta hóf hann að læra karate og ýmsar aðrar bardagalistir með hjálp blindraleturssjálfshjálparbóka og hjálpar það honum mikið í baráttu sinni við viðskotailla dóttur auðkýfings og mjög markvissan pílukastara. Endar þessi saga mjög vel eins og við er að búast. Mynd þessi er prýðisskemmtun, myndataka ágæt, leikstjórn prýðileg og brellur býsna vel útfærðar. Þó stelur ungur leikari, arabískur drengur að nafni Mohammad Bin Affleck, senunni með prýðisgóðum leik og ekki væri ég hissa þó hann léti meira að sér kveða í framtíðinni.
65 stjörnur af 84 mögulegumEngin andsvör Mánudagurinn 10. mars 2003
Lesið þessa
Lesið
þessa mögnuðu frétt.
Ímyndið ykkur ef Bandaríkjamenn myndu ákveða, í ljósi þess að mikill meirihluti almennings á Íslandi er á móti stríði í Írak, að kalla hesta innflutta frá Íslandi ekki lengur íslenska hesta, heldur frelsishesta (e. freedom horses) eða ameríska hesta (e. American horses). Jafnvel myndu þeir líka hætta að kalla goshveri Geysers (sem er auðvitað komið af hinum víðfræga Geysi í Haukadal) og kalla þá frelsishveri (e. freedom hotsprings) eða ameríska hveri (e. American hotsprings).
En í alvöru talað, Bandaríkin og Frakkland hafa verið bandalags- og vinaþjóðir nokkurnveginn frá stofnun Bandaríkjanna (og það er sko ekki hægt að segja um margar aðrar Evrópuþjóðir) og núna er einhver hópur stríðsæsingamanna í Bandaríkjunum að ala á hatri á Frökkum, eins og oft hefur sést í þáttum á borð við spjallþætti Jay Leno, bara vegna þess að þeir eru ósammála þeim í einu máli á alþjóðlegum vettvangi. Eiga Sameinuðu Þjóðirnar, sem samtök, ekki að gegna því hlutverki að vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir ýmissa ríkja heims í mikilvægum málum sem snerta hagsmuni allra þjóða heims, og ef ein þjóð vill fara í stríð einhversstaðar, en flestar aðrar þjóðir eru ósammála því, á þá ekki að virða skoðun meirihlutans? Mér þætti a.m.k. eðlilegast að Bandaríkin beygðu sig undir vilja meirihluta þjóða heims því annað gæti verið enn alvarlegri ógn við stöðugleikann í heiminum en t.d. Saddam Hussein.
Svo er eitt hugtak sem fer mjög svo í taugarnar á mér, en það er hugtakið Anti-Americanism (Bandaríkjahatur?) sem er notað yfir alla þá sem eru að einhverju leyti ósammála stefnu Bandaríkjanna í hinum ýmsu málum, þ.e. þeir sem gagnrýna þau hljóta að hata þau og allt sem þeim tengist, er það ekki?
Engin andsvör Fimmtudagurinn 13. mars 2003
Ég veit
Ég veit ekki hvað kom yfir mig og fékk mig til að skrifa greinina hér fyrir neðan. Það er svo ólíkt mér að hafa skoðanir (a.m.k. án þess að það sé í kaldhæðni). Ég lofa að passa mig á þessu í framtíðinni. Svo sá ég að einhver
Benedikt hermdi eftir þessari grein og það áður en ég skrifaði mína!
Engin andsvör Föstudagurinn 14. mars 2003
Uppskriftahornið
Súkkulaðiterta
Hráefni:
1 stk.
Uppskriftahornið
Súkkulaðiterta
Hráefni:
1 stk. terta án krems
300 g súkkulaðikrem
Smyrjið súkkulaðikreminu á tertuna, og þá er súkkulaðitertan tilbúin. Berið fram með kaldri mjólk eða kókómalti.
Engin andsvör Mánudagurinn 17. mars 2003
Ljóðahornið
Hér er
Ljóðahornið
Hér er lítil ferskeytla, fallega stuðluð og með innrími.
Langur var listi en Nonni gisti,
þó leikinn visti hann fær ei nisti,
í mat mig lysti á mínum þristi,
Moggann missti en fiskinn frysti.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 19. mars 2003
Ég hef
Ég hef heyrt um það að fólk, sem telur sig ekki nógu gott í einhverjum tungumálum, flytji til þess lands sem tungumálið er upprunnið í stuttan tíma til að læra tungumálið betur. Er hægt, fyrir okkur sem eiga auðvelt með tungumál en erfitt með stærðfræði, að flytja til Stærðfræðilands í stuttan tíma til að læra hana betur?
Engin andsvör Þriðjudagurinn 25. mars 2003
Jæja, þá
Jæja, þá er bara hálft ár í að ég geti skilað inn lögunum mínum fyrir Eurovision-söngvakepppnina árið 2004. Ég vona a.m.k. að stúlkan sem keppir fyrir Íslands hönd í ár nái Eurovision-lágmarki þannig að Ísland fái þáttökurétt árið 2004, svo ég geti gert garðinn frægan í Rússlandi þegar þar að kemur (það er víst búið að ákveða að einhver rússneskur dúett vinni keppnina í ár). Hvet ég dygga lesendur mína til að stofna aðdáendaklúbb um mig og lögin mín sem fyrst því það er ekkert ólíklegt að ég muni redda aðdáendum mínum flugmiða til Rússlands til að þeir geti stutt mig þar...
Engin andsvör Miðvikudagurinn 26. mars 2003
Hver getur
Hver getur sagt mér ástæðuna fyrir því að morð framin með byssum á ári eru 381 í Þýskalandi, 255 í Frakklandi, 165 í Kanada, 68 í Bretlandi, 65 í Ástralíu, 39 í Japan en 11,127 í Bandaríkjunum?
Engin andsvör Fimmtudagurinn 27. mars 2003
Einelti
Ég þarf að viðurkenna eitt í sambandi við fortíð mína. Ég var gerandi í einelti. Já, ég lagði einu sinni allan bekkinn minn í einelti, ég einn. Ég gerði það þannig að ég „frysti“ stundum alla hina í bekknum, og hélt oft partý einn, án þess að bjóða hinum. Ég vona að þau fyrirgefi mér en ég efast samt um að þetta hafi haft mikil varanleg áhrif á þau.
Skoðanir Haffa þurfa ekki að endurspegla skoðanir einhverja annarraEngin andsvör Föstudagurinn 28. mars 2003
Langveiki og langlega
Hvaða sjúkdómar eru eiginlega langveiki og langlega? Ég hef a.m.k. oft heyrt um langlegusjúklinga og langveik börn, án þess að vita nokkuð um einkenni þessa sjúkdóma. Eru þeir smitandi? Hver eru einkennin? Geta dvergar fengið langlegusjúkdóm? Spyr sá sem ekki veit.
Mörg andsvör (3) Mánudagurinn 31. mars 2003
Hillan
Ókei. Nú er oft talað um að hinn og þessi íþróttamaður leggi skóna á hilluna og að hinn og þessi tennisleikari leggi spaðann á hilluna og að tölvunördar og bloggarar leggi takkaborðið á hilluna. Allt gott og blessað. En hvar í andskotanum er þessi hilla?!
Engin andsvör Mánudagurinn 31. mars 2003
Það er
Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið ómerkilegt. Einhver vitleysingur á
Pressunni stal brandara sem ég var fyrstur með og breytti honum og notaði hann svo í
grein í veftímariti sínu! Þess má geta að upprunalega útgáfan á þessu var sú að ég hafði hugsað mér að búa til teiknimyndasögur um baráttu Baugfingurs (góði kallinn) við Bláu Höndina (vondi kallinn), en eina ástæðan fyrir því að ég var ekki búinn að því ennþá er sú að ég kann ekki að teikna. Ef ég sé þennan mann einhverntíma úti á götu þá mun ég líklega reyna að frussa í áttina að honum án þess að hann taki eftir því og hlæja svo hátt og vel...
Engin andsvör Mánudagurinn 31. mars 2003