Haffi!


Glöggir lesendur

Glöggir lesendur taka líklega eftir því að nú er hafið nýtt ár. Þeir taka kannski einnig eftir því að þetta er fyrsta færslan sem pistlahöfundur skrifar á nýju ári. Undanfarið hefur höfundur legið undir ámæli fyrir að hafa svarta listann ekki alveg svartan, heldur ljósbláa stafi á svörtum grunni. Hér er spurning fyrir heimspekilega þenkjandi fólk: Þarf svartur listi að vera alveg svartur? Svör óskast.

Siggi er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram við afgreiðsluborðið. SIGGI! SIGGI!
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 7. janúar 2004

Þá hefur

Þá hefur undirritaður farið á eina æfingu með meistaraflokki Í.S. (Íþróttafélags stúdenta) í blaki. Skemmst er frá því að segja að undirritaður er afar þreyttur eftir það, því hann spilaði fyrst tæpan klukkutíma í bandý og svo tæpa tvo tíma í blaki beint á eftir, og þar af fór hálftími í körfubolta, sem spilaður var þvert yfir völlinn og með blaknetið strekkt yfir miðjuna. Var það einkar skrítið að þurfa alltaf að beygja sig við að fara yfir miðlínuna. Þá komst undirritaður að því að hann er alls ekki góður í blaki.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 7. janúar 2004

Til að

Til að sýna fram á fjölhæfni undirritaðs, eru hér sett fram tvö vers í rappi (e. rap). Rappið er á engilsaxnesku.

The irrigation
of the radio station
brought some condemnation
upon the Icelandic nation.

The contradiction
in the science-fiction
created heavy friction
for Richard Nixon.

Engin andsvör
Fimmtudagurinn 8. janúar 2004

Undirritaður fór

Undirritaður fór á skíði í gær og þótti það afar skemmtilegt og hressandi. Þá komst hann að því að skíði eru ekki eins erfið og hann hélt og vill brýna það fyrir lesendum að reyna ekki að renna sér á gönguskíðum niður brattar brekkur, svigskíðin eru hentugri í það. Ekki er ólíklegt að aftur verði farið í skíðaferð sem þessa síðar í vetur. Eftir skíðaiðkun er svo einkar þægilegt að skella sér í heita pottinn.
Engin andsvör
Mánudagurinn 12. janúar 2004

Þetta finnst

Þetta finnst mér mjög fyndið. „Enn gætir tortryggni.“ Brilliant!
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 14. janúar 2004

Þegar ég

Þegar ég gef út sjálfsævisögu, ætti hún þá að heita:

(a) Leitin að Sigurði
(b) Evróvisjónfarinn okkar
(c) Maðurinn á bak við Kúbollu
eða
(d) Hann var kallaður Haffi?

Grafskriftina er þegar búið að ákveða. Hún er:

„Hann lifði, þar til hann dó...“ (e. „He lived, until he died...“)
Engin andsvör
Föstudagurinn 16. janúar 2004

Hneysa!

Hvílík hneysa! Hvílík endemis dæmalaus gríðarleg vitleysa! Undirritaður fékk bréf í dag þess efnis að lag hans hefði ekki verið valið til þátttöku í Evróvisjónkeppnina árið 2004. Ekki nóg með það, heldur var lagið endursent til höfundar! ENDURSENT! Þó svo að þetta fólk í dómnefndinni hafi augljóslega engan smekk, þá hefði það átt að sjá sóma sinn í að setja lagið í spilun í útvarpinu eða gefa það til líknarmála! Svona skínandi perla þarf að fá að njóta sín! Lagið sem valið var í staðinn fyrir þetta frábæra lag hlýtur að vinna keppnina fyrst dómnefndin telur það taka lagi undirritaðs fram í gæðum. Ef það vinnur hins vegar ekki, þá er það smán fyrir dómnefndina og réttlátur dómur sögunnar yfir mistökum þeirra.
Nú verður haldin ljóðasamkeppni hér á vefsetrinu og í verðlaun er diskurinn með laginu góða. Diskurinn er fallega merktur með dulnefni höfundar og Evróvisjónkeppninni, og inniheldur hann einnig lifandi upptöku af laginu. Þá er umslagið um geisladiskinn einnig ákaflega fallegt, fyrir utan það að einn aðili úr dómnefndinni ákvað að skrifa sérstaklega á það með blýanti að lagið innihéldi hvorki söng né texta. Sá sem hlýtur diskinn í verðlaun getur þá strokað það út ef vilji er fyrir því. Ljóðin mega vera í hefbundnu formi eða atómljóð. Skilafrestur er til 30. janúar og ljóðum óskast skilað til undirritaðs á formi tölvupósts eða í formi bakflæðis hér fyrir neðan þegar það fer að virka. Þau verða svo öll birt hér þegar keppninni er lokið. Leyfilegt er að senda fleiri en eitt ljóð.
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 20. janúar 2004

Ég held

Ég held að það sé hægt að skipta þjóðfélaginu nokkurn veginn í fimm flokka.

1. Lúðar - Finnast tölvuleikir skemmtilegir, hlusta á rokk og klæðast lúðalega. (vildi ekki nota orðið „nörd“ hér því það er búið að glata merkingu sinni)
2. Hnakkar - Hlusta á FM, fíla Scooter í botn, keyra á hallærislegum bílum og halda að þeir séu fallega fólkið.
3. Fallega fólkið - Er alltaf á síðum Séð & Heyrt, segist fíla Sigur Rós og kaupir dýr tískuföt. („Fallega fólkið“ er hugtak fundið upp af Jóni nokkrum Gnarr)
4. Börn - Augljóst.
5. Gamlingjar - Nokkuð augljóst, nema að fólk getur verið orðið gamlingjar fyrir aldur fram, sbr. stjórnmálamenn.

Flestir ættu að geta fundið sér stað í þessari flokkun. Undirritaður tilheyrir að öllum líkindum fyrsta flokknum. Oft er rígur á milli hinna ýmsu flokka, en þó mest á milli lúða, hnakka og fallega fólksins og stundum á milli barna og gamlingja. Sem lúða finnst mér mjög leiðinlegt þegar hnakkarnir taka hljómsveitirnar mínar af mér, eins og þeir virðast ætla að gera með White Stripes. Fyrir þá sem ekki vita er White Stripes dúett systkina sem spila hressandi og einfalt rokk. Þó eru uppi einhverjar vangaveltur um hvort þau séu systkini eða hjón eða bæði. En allavega, lögin þeirra innihalda aðeins gítar og trommur og eru allar upptökur mjög hráar, þ.e. ekki yfirpródúseraðar eins og mest tónlist er í dag. Ég man þegar ég setti diskinn White Blood Cells fyrst á fóninn, það hríslaðist um mig einhver ánægjutilfinning þegar ég heyrði fyrsta lagið byrja á miklu „feedbacki“ (bakflæði?) og minnti það mig á þá tíma þegar ég hlustaði mikið á Nirvana, sem voru þekktir fyrir mikið „feedback“ í lögum sínum og voru eiginlega fyrsta hljómsveitin sem ég byrjaði að hlusta á á ævinni. Eins og er nú að gerast með White Stripes, þá gerðist það með Nirvana að hnakkar og fallegt fólk fór á sínum tíma að lýsa því yfir í unnvörpum að það fílaði Nirvana og varð það síðar til þess að margir lúðar snéru baki við hljómsveitinni. Enginn skilur hins vegar af hverju hnakkar og fallegt fólk þóttist fíla Nirvana, því hljómsveitin lagði engan metnað í að gera lög sem höfðuðu til þessara hópa. Sama er í gangi með White Stripes, upptökurnar hjá þeim kosta einhverja smáaura og eru ekki unnar að neinu leyti í tölvum, lögin eru öll samin af sama manninum og markaðsfræðingar hafa (vonandi) ekkert með þessa hljómsveit að gera. Ef svo heldur fram sem horfir, þá munu lúðar fara snúa baki við hljómsveitinni fyrr en síðar. Best þekkta dæmið um þetta er reyndar Metallica, en þar er þó sá munur á að hljómsveitin tók mikla stefnubreytingu um 1990 sem laðaði til sín hnakka og fallegt fólk og varð til þess að lúðar segjast ekki hlusta á það efni sem hljómsveitin gaf út eftir 1990. Í tilfelli Nirvana var það hins vegar stefna þeirra að gera lögin sín óáheyrilegri fyrir hnakka og fallegt fólk eftir því sem á leið, eins og Incesticide og In Utero sanna, en svo kom reyndar Unplugged diskurinn og hnakkarnir og fallega fólkið hóf að sverja hollustu sína að nýju. Reyndar er þessi þróun með White Stripes ekki alveg búin að skila sér til Íslands ennþá, en t.d. spilar MTV þessa hljómsveit alveg á fullu, og í dag er MTV aðeins fyrir hnakka (á árum áður höfðaði hún til lúða, hnakka og fallega fóksins). Ég veit a.m.k. ekki hvað ég geri ef Popptíví fer að spila White Stripes. Ég vil bara vera einn í mínu horni að hlusta á þetta!

Af gefnu tilefni má taka það fram að höfundur greinarinnar er afar hress og í mjög góðum gír þrátt fyrir það að greina megi örlitla neikvæðni í pistlinum hér fyrir ofan. Hann þurfti bara að koma þessu frá sér. Því má einnig bæta við að höfundur hefur alls enga andúð á öðrum flokkum heldur telur þá þvert á móti nauðsynlega fyrir þjóðfélagið. Þá eru þessir flokkar alls ekki tæmandi.
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 27. janúar 2004

Eftirfarandi er

Eftirfarandi er tekið af mbl.is. Einkar sniðugt.

Búrhvelið sprakk í tætlur á Taiwan

Dautt búrhveli sprakk er ætlunin var að afhenda það rannsóknarmiðstöð við borgina Tainan á Taiwan. Spýttist blóð og flygsur úr dýrinu yfir viðstadda og vegfarendur er sprengingin varð, en hún er rakin til rotnunar í dýrinu. Komið var með hvalinn á vörubílspalli og átti atvikið sér stað er hann var að koma upp að rannsóknarmiðstöðinni. Ætlunin var að nota leifar dýrsins í þágu fræðslu um hvali og vakti koma dýrsins mikla athygli og fjöldi manns var viðstaddur við stöðina er komið var með það.
Sjávarlíffræðingur kennir gasmyndun í iðrum hvalsins um hvernig fór. Þeyttist blóð og tæjur úr dýrinu í allar áttir og yfir tugi manna og bíla og utan á verslanir og aðrar byggingar í nágrenninu.
Um var að ræða gamlan tarf sem lauslega áætlað var um 50 tonn á þyngd og 17 metra langur. Er það stærsti hvalur sem sést hefur á eða við Taiwan. Vegna stærðar skepnunnar tók það þrjá stóra lyftara og 50 manns um 13 stundir að koma henni upp á vörubílspallinn sem flutti hana lokaspölinn í rannsóknarmiðstöðina.


Að öðru: Hverjir eru þessir skemmtielgar og hallæriselgar? Hef oft séð þetta skrifað í þessu samhengi:

Hann er hallæriselgur!
Rosa skemmtielgur!


Skil ekkert í þessu, hef a.m.k. ekki rekist á þessa elga, hvað þá venjulega elga. Hef reyndar einnig heyrt minnst á gleðielga. Þeir eru líklega alltaf á fylleríi eða eitthvað...
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 29. janúar 2004

Stærðfræði

Undirritaður fékk hugljómun í stærðfræðitíma nú í vikunni. Hann getur útskýrt muninn á því að keyra bíl á Íslandi eða í Hollandi með hreinni stærðfræði:

Ef við hugsum okkur leiðina sem við keyrum sem stikaðan feril r(t), þá væri k(t), þ.e. krappinn (e. crap), ávallt breytilegur hvort sem er í Hollandi eða á Íslandi en T(t), eða vindingurinn (e. torsion), er alltaf nálægt núlli í Hollandi þar sem þar eru engar brekkur. Á Íslandi er T(t) hins vegar á miklu breiðara bili.

Að öðru: Af hverju segir maður á Íslandi en í Hollandi eða í Englandi?
Mörg andsvör (9)
Föstudagurinn 30. janúar 2004

Upphaf símaskrárinnar

„En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara um að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var upphaf símaskrárinnar.“ Lúkas 2:1
Mörg andsvör (3)
Þriðjudagurinn 3. febrúar 2004

The Bible II: Jesus re-returns.

Hvernig væri Biblían ef hún hefði átt sér stað ofarlega á norðurhveli jarðar?

Jesús sagði við holdsveika manninn: „Tak sæng þína og gakk. Ekki gleyma úlpunni. Og endilega settu á þig húfu. Og góðan trefil!“

Þetta hefði reyndar tekið allt fúttið úr sögunni þar sem Jesú gekk á frosna vatninu.

Annars er undirritaður langt kominn með að skrifa bókina Biblían II: Jesús snýr aftur, aftur (Seinna fyrra testamentið) og Hneyksli á Gólanhæð (Seinna seinna testamentið)

Aths. frá ritstjórn: Pistlahöfundur sá er ritaði greinina hér fyrir ofan hefur ekki fundið Jesú. Hann er ennþá týndur.
Eitt andsvar
Fimmtudagurinn 5. febrúar 2004

Anna: Hvernig

Anna: Hvernig er stjörnuspáin mín fyrir þennan mánuð?

Nær allur mánuðurinn mun einkennast af skóla, en þó er líklegt að í lok mánaðarins verði einhvers konar skemmtun uppi á teningnum, og er hún líklega í tilefni af afmæli eða einhverju þvíumlíku.
Eitt andsvar
Þriðjudagurinn 10. febrúar 2004

Hildur: Minns

Hildur: Minns vill líka stjörnuspá!

Þar sem tunglið er í áttunda húsi vatnsberans um þessar mundir er einkar líklegt að þessi mánuður muni einkennast af skóla að mestu leyti. Þar sem þú ert í steinkrabbavatnsvogarmerkinu þá er einnig afar líklegt að í lok mánaðarins verði mjög merkilegur atburður sem aðeins á sér stað á fjögurra ára fresti.

Heimildir: Venus, Neptúnus, Mars og Snickers.
Mörg andsvör (4)
Miðvikudagurinn 11. febrúar 2004

Brakúla greifi

Mér finnst að allir eigi að vita hver Brakúla greifi er!

Upphafstextinn:
...Með stiku í hjartað eða beinu sólarljósi en hægt er að lífga þá við aðeins einu sinni á öld þegar tunglið er í áttunda húsi vatnsberans... Leðurblökublóð. Ég skal sækja það!

Upphafslagið:
Á fornum fjallatindi
...
á endanum kom ættarskömmin.
Þó beitt hafi hann bit,
þá brestur hann vit
og víðsfjarri er vampírusmit.
...
Ef leið er þín lund,
þá leit á hans fund,
... uppátæki.
...


Ef einhver man eitthvað meira af þessum texta þá væri gaman ef sá hinn sami myndi deila því með okkur.
Mörg andsvör (10)
Föstudagurinn 13. febrúar 2004

Líkfundur á

Líkfundur á Neskaupstað

En ég mætti ekki.
Eitt andsvar
Mánudagurinn 16. febrúar 2004

Þetta er

Þetta er alveg mögnuð síða. Þetta er heimasíða samkynhneigðu mörgæsarinnar sem er í forsetaframboði í Bandaríkjunum. Hér er smá úrdráttur:

Gay Penguin Campaigns In Wisconsin

Today Gay Penguin made his first campaign stop in front of thousands of supporters. Entering the Gymnasium to his campaign song, "Milkshake" by Kelis, the crowd waved signs and yelled in support. Gay Penguins remarks were limited, but he wandered around and was patted by supporters for over an hour.
"I would totally vote for Gay Penguin!" said Tom Zamecki, who had previously been leaning towards Wesley Clark.
At his speech, Gay Penguin, though saying nothing but "scraaaawk" for over a half an hour, underlined the distinctions between himself and incumbent President, George W Bush.
"I know he didn't say anything, because he's only a penguin with no speaking ability whatsoever," remarked Jessica Kac, a local student, "But he ran circles around Bush on 'Meet the Press' last week. And Gay Penguins policies make a lot more sense."
During the Question and Answer Period, Gay Penguin was asked, "What would you do to ensure our nation gets to Mars by 2025?" Gay Penguin was silent for over five minutes, until the audience burst into applause.
Asked about his enthusiasm, Chris Rogers, a retired auto mechanic, remarked, "That's exactly what the President should have said. I'm glad we've finally got a leader that makes sense!"


Ég mæli einnig með því að fólk smelli á „Biography“ á þessari síðu.
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 17. febrúar 2004

Oggi: Afhverju

Oggi: Afhverju sett ég ekki inn fyrirspurn í gær?
Kannski settirðu hana inn í gær. Þessi árans korktafla sýnir engar upplýsingar um hvenær fyrirspurnin kom inn!

Oggi: Afhverju geri ég svona mikið af innsláttar vitleysum og stafsetningarvillum?
Þetta stafar af því að þú vandar þig ekki nógu mikið. Þú verður að taka þér tíma til að koma hlutunum frá þér á prenti.

Oggi: Afhverju eru oftast notuð hvít blöð en ekki svört?
Þessu er auðvelt að svara: Hvítt blek er dýrara en svart, og svört blöð eru dýrari en hvít. Hins vegar væri það ágæt gróðahugmynd að framleiða svartan pappír og hvítt blek og kalla það lúxuspappír og lúxusblek. Ríka fólkið hlýtur að gleypa við því.

Oggi: Hey ég er með fyrirspurn, hvaða merkingu hefur draumur sem snýst um að gefa fátæku fólki peninga?
Aldrei gefa fátæku fólki peninga! Nema mér auðvitað...

Oggi: Ég er með aðra fyrirspurn: á hvaða tíma er tunglið í áttunda húsi vatnsberans?
Stuttu eftir að Tunglið er í sjöunda húsi vatnsberans. Á sama tíma er Mars í fimmta fellihýsi bréfberans.

Oggi: Hvað er líkt með flóðhesti og kanínu?
Bæði dýrin eru álíka krúttleg.

Oggi: Og ein loka fyrirspurn: ertu búinn að fá nógu margar fyrirspurnir í bili?
Já, og ég þakka kærlega fyrir að einhver nenni loksins að setja hér inn fyrirspurnir.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 25. febrúar 2004

Blekkingar

Í mörg ár hefur mér verið talin trú um að ég hafi gengið um með s.k. bleyju þegar ég var lítill og að ég hafi jafnvel gert þarfir mínar í svona bleyju. Nú er hins vegar nóg komið að þessum lygum! Ég man ekki eftir að hafa nokkurntíma íklæðst bleyju og hvað þá gert þarfir mínar í hana! Til að sannfæra mig hafa mér verið sýndar myndir af einhverju smábarni sem klæðist bleyju og mér sagt að þetta sé ég. Hvílík vitleysa! Ekki man ég eftir að hafa verið svona lítill, og svo eru þessar myndir augljóslega mjög illa falsaðar í Photoshop, ekki hefur einu sinni verið haft fyrir því að setja hausinn á mér á myndina heldur bara eitthvað smábarn! Ég mun ekki halda áfram að lifa í blekkingu!
Mörg andsvör (2)
Laugardagurinn 6. mars 2004

Tannlæknar og tæki

Hafið þið einhverntímann farið til tannlæknis og þurft að láta taka röntgenmynd af tönnunum? Það fer þannig fram að tannlæknirinn setur á mann skothelt vesti, miðar stóru og líklega rándýru tæki á andlitið á manni og svo fara hann og aðstoðardaman inn í annað herbergi með fjarstýringu þannig að maður er einn inni í herberginu með skothelt vesti og stórt tæki við andlitið. Svo halda þau fyrir eyrun og ýta varlega á takka á fjarstýringunni og ekkert heyrist. Þá kíkja þau varlega inn í herbergið til að athuga hvort ekki sé óhætt að koma aftur inn, og láta eins og ekkert hafi gerst. Af hverju ætli þetta sé? Ætli það komi stundum byssukúla eða sprengja út úr þessari græju? Springur allt í loft upp í hundraðasta hvert skipti? Spyr sá sem ekki veit.
Mörg andsvör (4)
Miðvikudagurinn 10. mars 2004

Stærðfræðigrín

Hafið þið tekið eftir því að stærðfræðikennurum finnst stærðfræði alls ekki fyndin? Ef þeir slysast til að segja eitthvað fyndið í stærðfræðitíma þá er það eitthvað gjörsamlega ótengt stærðfræðinni því hún er náttúrulega háalvarlegt mál! Til dæmis væri svolítið fyndið ef kennarinn deildi með núlli í gríni, en ef það myndi gerast þá væri strax búið að hringja í neyðarlínuna og tilkynna almannavörnum um málið. Önnur dæmi um stærðfræðilegan húmor væri að skilgreina 1 sem prímtölu, diffra e í x-ta og fá eitthvað annað en e í x-ta út og segja pí sé bara einhver tala sem var skálduð upp á fylleríi og hafi engan praktískan tilgang. Þetta finnst stærðfræðingum hins vegar ekki fyndið. Þeir líta á þetta sem gálgahúmor.
Mér finnst heildun alveg bráðfyndin. Til dæmis á ég mjög erfitt með að varnast hlátri þegar kennarinn er að heilda kvaðratrætur.

Ótengt mál: Ég heyrði um að norska konan Lotta Pussi og Englendingurinn Ben Dover væru að hugsa um að skipta um nöfn af því að það væri alltaf verið að gera grín að nöfnunum þeirra. Af hverju ætli það sé?
Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 19. mars 2004

How much

How much wood could Chuck Woods' woodchuck chuck, if Chuck Woods' woodchuck could and would chuck wood? If Chuck Woods' woodchuck could and would chuck wood, how much wood could and would Chuck Woods' woodchuck chuck? Chuck Woods' woodchuck would chuck, he would, as much as he could, and chuck as much wood as any woodchuck would, if a woodchuck could and would chuck wood.
Mörg andsvör (2)
Laugardagurinn 27. mars 2004

Lesið þetta

Lesið þetta hratt, upphátt:

I'm a mother pheasant plucker.
I pluck mother pheasants.
I'm the pleasantest mother pheasant plucker,
That ever plucked a mother pheasant.
Actually, ...
I'm not the pheasant plucker,
I'm the pheasant plucker's son.
But I'll stay and pluck the pheasants
Till the pheasant plucking 's done!

Mörg andsvör (2)
Laugardagurinn 27. mars 2004

Varúð! Eftirfarandi

Varúð! Eftirfarandi pistill er aðeins fyrir nörda!

Samanburður á Opera 7.22 og Mozilla Firefox 0.8:

Firefox er með frekar óþægilegt viðmót, þrátt fyrir að það sé allt stolið frá Opera, og fliparnir eru klunnalegir í virkni. Lenti strax í því að íslenskir stafir virkuðu ekki alls staðar, sem er stór mínus. Músaraðgerðirnar, sem er eitt það besta við Opera, eru frekar lélegar í Mozilla, í fyrsta lagi þarf að setja þær upp sér sem viðbót, og svo vantar nokkrar af þeim þægilegustu, eins og t.d. hægri takki + niður + hægri til að loka glugga. Þá lenti ég í einhverjum vandræðum með að reyna að draga flipa yfir í hlekkjastikuna og að henda öðrum tökkum út af henni. Það eina sem Firefox hefur yfir Opera er að stikurnar taka minna pláss frá vafraglugganum sjálfum og það er enginn Hotlist í honum (það er þó ekki flókið að henda honum út úr Opera).
Opera vafrinn er hraðvirkari, þægilegri, og hefur færri bögga en Firefox. Ég mæli því miklu frekar með Opera vafranum fyrir þá sem vilja hraðvirkan og öflugan vafra. Fyrir þá sem ekki hafa ennþá kynnt sér Opera vafrann, þá er hægt að sækja hann á www.opera.com og mæli ég með því að fólk kynni sér hvernig flipakerfið virkar, það er miklu þægilegra en að hafa alltaf marga glugga opna í IE, og músaraðgerðirnar (Mouse gestures) sem eru alveg magnaðar. Þannig er t.d. hægt að loka glugga með því að halda niðri hægri músartakka og hreyfa hana niður og til hægri. Einnig eru þarna ýmsar lyklaborðsaðgerðir (Keyboard gestures) sem eru mjög þægilegar.

Opera. Simply the best Internet Experience!
Mörg andsvör (11)
Mánudagurinn 29. mars 2004