Haffi!


Hér er

Hér er alls ekki skrifað nóg.
Mörg andsvör (8)
Mánudagurinn 10. janúar 2005

Ókeypis hugbúnaður Nú

Ókeypis hugbúnaður

Nú þekkja margir samviskubitið (hahaha) sem fylgir því að nota „stolinn“ hugbúnað, s.s. Microsoft Office, Adobe Photoshop o.fl. Hægt er að losna við þetta samviskubit með því að nota ókeypis hugbúnað, og eru hér nefnd nokkur dæmi:

Opera: Tvímælalaust besti vafrinn. Að nota Internet Explorer eftir að maður hefur vanist Operu er eins og að nota gömlu bandýkylfurnar í HÍ eftir að hafa vanist alvöru kylfum.
Mozilla Firefox: Opera klónn, „Open Source“ hugbúnaður þannig að alvöru nördar geta breytt vafranum og bætt eftir sínu eigin höfði. Fyrir þá sem ekki sætta sig við litlu auglýsingarnar í Operu geta notað þennan vafra í staðinn, þó hann sé ekki ennþá alveg tilbúinn.
VLC VideoLAN: Besta forritið til að spila divx myndir. Open Source.
OpenOffice: Office klónn, það tekur smá tíma að venjast viðmótinu, en nokkuð öflugur pakki samt. Open Source.
Blender: Þrívíddarteikniforrit sem ég hef ekki prófað mikið, en kunnugir segja að það sé afar öflugt og þægilegt. Open Source.
ClamWin antivirus: Vírusvörn sem ég er að prófa, veit ekki hversu góð hún er en það koma þó uppfærslur á hverjum degi. Prófaði þetta eftir að Norton Antivirus brást illilega. Open Source.
Audacity: Mjög þægilegt hljóðvinnsluforrit, hægt er að gera nánast allt við hljóðskrár sem maður getur ímyndað sér, s.s. suðhreinsa, klippa saman, snúa við, spila hraðar og hægar o.s.frv. Afar þægilegt viðmót. Open Source.
GIMP (GNU Image Manipulation Program): Ágætis Photoshop klónn, hér er viðmót mjög svipað og í Photoshop nema að það er engin stika efst (File, edit o.s.frv.), heldur þarf aðeins að hægrismella á myndina til að fá listann upp. Open Source.
Mörg andsvör (8)
Föstudagurinn 14. janúar 2005

Nú er

Nú er komin mikil súrefnisframleiðsla í gang hér á heimilinu. Farið var í Blómaval og fest kaup á plöntu sem kallast „Drekakústur.“ Ef framleiðslan verður nógu mikil þarf aldrei að opna glugga aftur, og andvarinn innanhúss verður ferskur eins og á heitum sumardegi.
Höfundur tekur enga ábyrgð á að eitthvað af því sem nefnt er hér að ofan sé rangt.
Mörg andsvör (3)
Þriðjudagurinn 25. janúar 2005

Lýsi Fyrir nokkrum

Lýsi

Fyrir nokkrum mánuðum hóf undirritaður að taka inn lýsi að nýju, og það í perluformi. Skemmst er frá því að segja að þessir gullnu unaðsbelgir hafa komið sem stormsveipur inn í líf mitt og fært mér kraft og dugnað sem ég hafði ekki áður. Nýlega las ég um rannsókn sem benti til þess að Omega 3 fitusýrurnar í lýsinu hjálpuðu til við framleiðslu hamingjuefna í heilanum, þ.e. það eykur hamingju manns, sem er ekki verra svona í skammdeginu. Undirritaður mælir með því að sem flestir hefji inntöku á „gullnu olíunni“ við fyrsta tækifæri til að auka hamingju og kraft.
Mörg andsvör (16)
Fimmtudagurinn 27. janúar 2005

Ég verð

Ég verð bara að viðurkenna að ég hef alls enga hugmynd um hvað ég á að skrifa hérna og þess vegna ætla ég að endurvekja fyrirspurnavenjuna frá því í gamla daga. Fyrir þá sem ekki muna eftir því þá virkar það þannig að lesendur setja inn fyrirspurnir á korktöfluna hér til hliðar og undirritaður svarar þeim eins vel og hægt er. Nú þurfa allir að leggjast á eitt, hver einasti lesandi sem rambar inn á þessa síðu þarf að setja inn a.m.k. eina fyrirspurn. Það er ekki eins og þið séuð það gáfuð að þið þurfið aldrei að spyrja að neinu!
Mörg andsvör (4)
Fimmtudagurinn 10. febrúar 2005

Hlynur -

Hlynur - Af hverju eru bara 28 dagar í Febrúar?

Afar góð spurning. Þegar Súmerar, Mesópótamíumenn og Gallar voru að koma sér saman um nýtt dagatal sem átti að taka við af gamla lúmeríanska dagatalinu, settu Súmerar fram þá ósk að einn mánuðurinn héti febrúar, til heiðurs keisara þeirra sem hét Fa'Bruahr. Þessi ósk kom nokkuð seint í ferlinu því á þessum tíma voru Súmerar ekki komnir með faxtæki og því átti bara eftir að úthluta 28 dögum í árinu. Þeir sættu sig þó við þetta, sérstaklega eftir að þeim var lofað auka degi fjórða hvert ár, nema á aldamótum. Þetta kerfi hefur svo haldist óbreytt allar götur síðan. Þess má svo geta að þetta svar er alger vitleysa.
Mörg andsvör (2)
Sunnudagurinn 13. febrúar 2005

Kvalir (fyrirspurn)

Bynni - Haffi, eru hvalir holdgervingar kvala?

Ekki beint, heldur eru kvalir meira holdgervingar hvala. Svo eru til hvalir sem eru haldnir bæði hvalalosta og kvalalosta og þurfa að líða vítiskvalir fyrir það og eru oft kallaðir kvalahvalir. Þá er til hópur hvala sem kallast vítishvalir en þeir eru aðeins haldnir kvalalosta og líða engar vítiskvalir fyrir það. Hvalir með kvalalosta eru á hverfanda hveli.
Mörg andsvör (2)
Mánudagurinn 14. febrúar 2005

Góðvinur minn

Góðvinur minn Oddgeir sendi mér hlekk á þessa síðu þar sem maður getur sett inn mynd af sér og séð hvernig maður lítur út t.d. þegar maður er orðinn gamall eða sem blökkumaður.
Ég lét tilleiðast og lét forritið búa til nokkrar útgáfur af mér: (Ég skil ekki af hverju þessi eyða kemur hér fyrir neðan!)













Gamall maður

5 ára barn

Blökkumaður

Kínverji

Smábarn

Manga teiknimynd

Ég held að það sé kominn tími til að ég fari að nota húðkrem. Ég vil allavega ekki verða svona rosalega hrukkóttur sem gamalmenni!
Mörg andsvör (4)
Föstudagurinn 18. febrúar 2005

Bynni -

Bynni - Nú kannast allir við stafina A umlaut og U umlaut, en af hverju er hvorugur þeirra í orðinu "umlaut"?

Jú, því ef Ä (A umlaut) væri í umlaut, þá væri hér komin óendanleg endurkvæmni, sem er alls ekki gott. Sama gildir auðvitað um Ü (U umlaut).
Mörg andsvör (5)
Þriðjudagurinn 22. febrúar 2005

Gunni -

Gunni - Haffi, af hverju skrifar Hlynur febrúar með stórum staf og af hverju segir hann alltaf ég vill í staðinn fyrir ég vil? Er hann eitthvað brjálaður?

Eins og spyrjandi getur sér til, þá virðist sem ástæður þessa hafa eitthvað með geðheilbrigði Hlyns að gera. Nú veit ég ekki til þess að einhver fylgni sé milli þess að skrifa febrúar með stórum staf og að vera snarbrjálaður, þ.e. ég býst ekki við því að búið sé að rannsaka það. Annars verða lesendur (allir þrír) að dæma um það sjálfir hvort hann sé snargeðveikur:

Mörg andsvör (22)
Þriðjudagurinn 22. febrúar 2005

Árans. Nú

Árans. Nú er búið að loka á korktöfluna mína nema ég borgi fyrir hana. Fyrst ég get líklega ekki sett upp MySQUEEL þjón á HÍ heimasvæðinu þá verður engin korktafla þarna þangað til einhver önnur ókeypis finnst.
Mörg andsvör (3)
Föstudagurinn 4. mars 2005

Þó ég

Þó ég sé nú ekkert sérstaklega mikill áhugamaður um sýnishorn úr kvikmyndum (treilera) þá er þetta bara eitt það besta sem ég hef séð í langan tíma. Má búast við því að mynd þessi sé sérlega skemmtileg.
Mörg andsvör (5)
Þriðjudagurinn 8. mars 2005

Undirritaður hefur

Undirritaður hefur komist yfir gamalt forrit að nafni Impulse Tracker, sem er afar gagnlegt tónlistarforrit, og loksins hefur gengið að fá það til að virka í Windows XP (þökk sé forriti sem heitir DOSBox). Þess vegna gat ég loksins klárað lög sem ég byrjaði að semja árin 2001 og 2002. Árið 2002 fór gamla tölvan einmitt á haugana og því engin tölva til með almennilegu DOSi. Hvað um það, hér eru tvö lög sem loksins er búið að fullvinna:

Krap
Vinna við þetta lag hófst árið 2002, nánar tiltekið þann 10. janúar (skemmtilegt að maður geti séð hvenær skránni var síðast breytt!). Annars má ímynda sér að þetta lag sé um litla kanínu sem er að læra að ganga, og það gengur alltaf betur og betur, en svo þarf hún að ganga í gegnum snjó og krap, sem er afar erfitt, en í lokin er snjórinn og krapið farið og allt gengur aftur vel.

Gurgle
Vinna við þetta lag hófst þann 25. október 2001, sem þýðir að ég var 20 ára og fimm daga gamall þegar ég byrjaði á því. Annars er þetta mikið stuðlag, sem fjallar ekki um neitt sérstakt, og mega lesendur því segja í bakflæðinu hvað þeim finnst lagið fjalla um. Þess má svo geta að Sinfóníuhljómsveit Austur-Rangárvallasýslu og nágrennis (SAURON) sér um strengina í laginu.

Öllum lesendum síðunnar er skylt að setja inn tónlistargagnrýni (auðvitað jákvæða) í bakflæðið, ella skulu þeir eiga mig á fæti!
Mörg andsvör (8)
Laugardagurinn 19. mars 2005