Haffi!


Hérna er

Hérna er skemmtilegt próf sem þið getið tekið til að athuga af hvaða kyni heilinn á ykkur er. Heilinn á mér er víst karlmaður upp á heil 50 stig skv. þessu prófi.
Mörg andsvör (13)
Fimmtudagurinn 4. janúar 2007

Ný síða

Nú hafa átt sér stað smá breytingar á síðunni. Breytingarnar felast aðallega í því að nú er haldið utan um færslur og athugasemdir í MySQL gagnasafni. Útlitið er ennþá nokkuð svipað, en það á þó eftir að laga ýmislegt ennþá.
Mörg andsvör (8)
Mánudagurinn 29. janúar 2007, kl. 22:27

Svíþjóðarferð

Hér er smá ferðasaga frá því þegar ég, Eva, Gunni og Heiða fórum til Svíþjóðar að heimsækja Ogga og Sigrúnu 12. til 16. janúar 2007.

Eftir flugið til Köben skruppum við í Fields verslanamiðstöðina þar sem Gunni keypti sér Xbox tölvu, og svo var ferðinni heitið í Carlsberg safnið. Þar sáum við ýmsan fróðleik um bjór, sem var svo sem ekki neitt merkilegt, en í lokin á skoðunarferðinni fengum við að skella í okkur smá bjór. Hér má sjá nokkrar myndir af því:






Hér erum við svo úti að labba eftir skoðunarferðina (Gunni var duglegur að versla í Carlsberg safninu)


Svo skruppum við á skoskan bar til að slaka aðeins á eftir labbið í rigningunni.


Eftir svolitla drykkju og át og skoðunarferðir um Lund fórum við til Helsingborgar á sunnudeginum þar sem við skoðuðum okkur um í því sem Svíar kalla óveður, en við á Íslandi köllum haustveður. Við vissum ekki þá að það væri óveður á svæðinu og skildum ekkert í því að það var enginn á ferli í borginni þó það væri sunnudagur. Síðar komumst við að því að fólki hafði verið ráðlagt að vera innandyra og jafnvel hættu lestirnar að ganga í nokkrar klukkustundir, en við sluppum þó nokkuð vel því þegar við fórum til baka þá fór einmitt fyrsta lestin eftir að samgöngur komust aftur á. Í Helsingborg sáum við bandýleik á milli FC Helsingborg og Storvreta, sem síðarnefnda liðið vann 9-2. Hér eru nokkrar myndir frá þeirri ferð:










Á mánudeginum skruppum við í pool í Lundi sem var mjög hressandi.




Deginum sem við fórum heim, þriðjudeginum, eyddum við að mestu leyti í Köben, þar sem við gengum Strikið og skruppum á Erotic Museum. Það var mjög sérstakt og hér eru nokkrar myndir frá því:
(Takið eftir því sem speglast í glerinu fyrir aftan)


Eva fór oft hjá sér, enda siðprúð ung stúlka


Hérna eru Gunni og Heiða að reyna að fela perrasvipinn



Við föttuðum það eftirá að við gleymdum alveg að taka myndir í íbúðinni hjá Ogga og Sigrúnu, en við hljótum að geta reddað því seinna með myndvinnsluforriti.
Við lærðum ýmislegt á þessari ferð, sérstaklega það að Lundur er mjög rólegur bær og að sænskt nautakjöt er ódýrt en mjög gott.
Mörg andsvör (10)
Þriðjudagurinn 30. janúar 2007, kl. 22:06

Heimasíða

Vildi vekja athygli lesenda á nýrri heimasíðu, en það er síðan hans Harðar.

Annars er ég enn að bæta og laga ýmislegt á þessari síðu, og hún er að verða nokkuð flott bara.
Mörg andsvör (2)
Fimmtudagurinn 1. febrúar 2007, kl. 18:18

Allt að gerast

Nú er ég víst að fara í tveggja vikna vinnuferð til Hollands í mars, nánar tiltekið Den Haag. Þá verður sko gaman að hanga á kaffihúsunum og í rauða hverfinu (já, það er rautt hverfi í Den Haag). Nei annars, þetta verður kannski ekkert voðalega mikið fjör. Ég ætla mér allavega að spyrja fólk út á götu hvort það sé skylt mér.

Að öðru, en eins og lesendur hafa tekið eftir, þá er þessi síða orðin alveg gasalega smart og má með sanni segja að þetta sé ein vandaðasta heimasíða netsins miðað við höfðatölu (þ.e. fjölda lesenda). Ef þið hafið hugmyndir um eitthvað sem má bæta við eða ef eitthvað má laga, endilega látið vita í athugasemdunum, og ég mun gera mitt besta til að komast hjá því að gera eitthvað í málinu.
Mörg andsvör (18)
Þriðjudagurinn 6. febrúar 2007, kl. 20:41

Erfitt val

Úff, nú á víst að halda klámráðstefnu á Hótel Sögu á sama tíma og Tækni og vit er í Smáranum... Það er ljóst að fólk verður að velja og hafna.
Mörg andsvör (3)
Föstudagurinn 16. febrúar 2007, kl. 18:35

Hressilegt lag

Þetta er allsérstakt lag sem ég sá í Kastljósinu í gær. Mjög hressandi, enda Þingeyingar á þarna á ferð. Þess má geta að höfundur er af þingeyskum ættum.
Mörg andsvör (7)
Laugardagurinn 17. febrúar 2007, kl. 11:52

Burður í bakkafullan læk

Frá því þetta mál byrjaði, hefur fólk lýst því yfir að það skilji bara alls ekki um hvað það snýst. Nú mun ég bætast í þann hóp.

Málið sem um ræðir er hið svokallaða Baugsmál. Ég hreinlega botna hvorki upp né niður í því. Ég horfi stundum á sjónvarpsfréttir og hef því ekki komist hjá því að þurfa að hlusta á fréttamann þylja eitthvað lögfræðiþrugl með alvarlegri röddu yfir myndum af þurrpumpulegum lögfræðingum og skjólstæðingum þeirra að labba inn og út úr dómssal.
Reyndar veit ég að Baugur og Jón Ásgeir og fleiri eru meintir gerendur í málinu, en ég hef ekki hugmynd um hver glæpurinn er og hver þolandinn er. Er ríkið þolandinn? Davíð Oddsson? Jón Gerald Sullenberger? Ég? Ég veit það ekki. Þetta hefur gengið á í nokkur ár; ákærur, frávísanur, áfrýjanir, endurákærur o.s.frv.
Eini glæpurinn sem hægt væri að kæra Jón Ásgeir fyrir að mínu mati er að hafa átt marga Range Rover jeppa í gegnum tíðina, sem er auðvitað glæpur gegn smekkvísinni og umhverfinu. Ég hygg samt að þeirri kæru yrði vísað frá.
Svo hefur gríðarlegu magni af dálksentimetrum blaðanna verið varið í að skýra málið út á sem einfaldastan hátt fyrir bjána, en ég verð að viðurkenna að ég hef alltaf flett framhjá öllu efni sem tengist þessu máli, þar sem ég nenni bara alls ekki að setja mig inn í það. Samt dynur þetta á manni hvert sem maður fer, og það er eins og maður eigi að sýna þessu mikinn áhuga.

Nú er svo komið að ég er orðinn pínulítið þreyttur á þessu öllu, og ætla ég því að enda þetta á setningu (á ensku) sem ég heyrði í einhverri bíómynd fyrir nokkrum misserum, og næst þegar ábúðarfullur fréttamaður ætlar að segja mér fréttir af þessu máli og gefa í skyn með talandanum að ég eigi að hafa mikinn áhuga á þessu, vittu þá þetta:
„I don't give a rat's shit!“
Mörg andsvör (8)
Mánudagurinn 19. febrúar 2007, kl. 13:47

Netfíkn

Samkvæmt nýjustu fréttum er netfíkn að verða æ stærra vandamál hjá fullorðnu fólki. Að því tilefni vil ég taka fram að þessi síða hefur aldrei orðið þess valdandi að einhver ánetjist netinu, og mun aldrei gera það.
Mörg andsvör (6)
Föstudagurinn 2. mars 2007, kl. 17:42

Fagurt tungumál

Þetta þykir mér afar skemmtilegt tungumál sem svipar nokkuð til enskunnar, en orðin eru þó skrifuð á allt annan hátt. Svo getur örugglega verið mjög gaman að lesa þetta upphátt með miklum hreim.
Mörg andsvör (2)
Fimmtudagurinn 15. mars 2007, kl. 14:49

Niðurlönd

Nú er ég kominn til heimalandsins (Hollands) á námskeið á vegum EPO. Fyrir þá sem vilja vita það, þá eru höfuðstöðvar EPO í Rijswijk (Hrísvík) í Den Haag (Haga). Hér hef ég séð nokkra Hollendinga, en ég hef ekki enn þorað að spyrja hvort þeir séu frændur mínir. Það eina sem ég veit er að ég á að drekka Grolsch bjór, þar sem það er héraðsbjórinn á þeim slóðum sem amma mín er fædd og uppalin. Hér þarf ég a.m.k. að vera á námskeiði og e.k. þingi og kem ekki heim fyrr en þarnæsta fimmtudag. Þó má geta þess að Oddgeir nokkur ætlar að kíkja í heimsókn næstu helgi og þá munum við mála Amsterdam rauða (þau hverfi sem ekki eru ennþá orðin rauð a.m.k.) og smakka Grolsch og Heineken og jafnvel fleiri tegundir af öli. Ég er þegar búinn að kaupa mér eina krukku af súrum gúrkum, sem er auðvitað skylda að borða í Hollandi, en ég hef ekki ennþá fundið snakk með edikbragði og ég er farinn að halda að ég muni aldrei fá að bragða á því dýrindis snakki aftur. Ég læt ykkur vita hvernig gengur.
Mörg andsvör (16)
Mánudagurinn 19. mars 2007, kl. 19:29

Eldgamla Ísafold

Þá er ég loksins kominn aftur á Ísland farsælda frón eftir að hafa verið í tæpar tvær vikur í Hollandi. Ó, hvað ég hef saknað ættjarðarinnar, sundlauganna, fjallanna og slabbsins. Ekkert af þessu er til í Hollandi.

Annars kom Oddgeir í heimsókn yfir helgina og við gerðum ýmislegt skemmtilegt eins og að skreppa til Amsterdam, komast tvisvar í kast við lögin og fara á M.C. Escher safnið í Den Haag. Einnig drukkum við ýmsar tegundir af bjór, aðallega hollenskum og belgískum. Oddgeir tók ýmsar myndir í ferðinni, og munu þær kannski birtast hér í framtíðinni. Hér er þó ein mynd sem var tekin í Escher safninu:


Þarna er smá sjónhverfingum beitt til að ég virðist stærri en Oddgeir, en þetta er ekki gert með tölvutækni. Eins og flestir vita þá gekk list Eschers mikið út á að brjóta reglur geómetríunnar með ýmsum hætti. Einnig var hægt að horfa á myndband í sýndarveruleika sem var mjög áhugavert.
Fyrir þá sem vilja vita, þá fann ég tvær tegundir af snakki með edikbragði, eitt var með „pickles“ bragði sem var mjög áhugavert, en hitt var með balsamediki og lauk og það var virkilega gott snakk. Það er eins og það sé veisla í munninum á manni eftir hvern bita, og öllum er boðið.
Mörg andsvör (5)
Laugardagurinn 31. mars 2007, kl. 12:02