Haffi!


Gróðahugmynd

Ég og vinnufélagi minn fengum frábæra hugmynd að nýjum kokteil og gosdrykk um daginn. Uppskriftin að gosdrykknum er svona:

50% Tónik
50% Greip


Þennan gosdrykk myndum við kalla Klaufaveiki.

Svo fer maður á barinn og mann langar kannski í gin og tónik en mann langar líka í gin og greip. Þá pantar maður sér að sjálfsögðu gin og klaufaveiki kokteil! Uppskriftin að honum er svona:

X% Gin
Y% Klaufaveiki


X og Y má hér stilla af eftir smekk, en þó með þeim takmörkunum að X + Y = 100.

Svo myndum við taka þessi skref:
1. Hefja framleiðslu á gosdrykknum
2. ???
3. Gróði!
Eitt andsvar
Fimmtudagurinn 15. janúar 2009, kl. 14:06

Ísland 2.0a

Ég ætlaði ekki að eyða miklu púðri í að blóka um kreppuna og mál henni tengd, en mig langaði að skrifa smá pistil um þetta þar sem ég er viss um að minn stóri lesendahópur hefur mikinn áhuga á að heyra mína skoðun... Djók! Ég ætla að birta þetta hvort sem þið viljið það eða ekki! Allavega, hér eru mínar skoðanir í engri sérstakri röð:

Ástæðan fyrir því að ég vil þessar breytingar eru þær að ég treysti einfaldlega ekki því kerfi sem er nú við lýði til að endurreisa Ísland. Ég treysti ekki heldur neinum af þeim flokkum sem eru í boði í dag, það er sami rassinn undir öllu þessu liði. Steingrímur J. var t.d. ráðherra fyrir u.þ.b. 20 árum, ég hef ekki heyrt marga halda því fram að hann hafi gert frábæra hluti þá, af hverju ætti hann að gera það núna? Það væri samt gaman að sjá lista yfir hans helstu embættisverk frá þessum tíma, ég viðurkenni alveg að ég hef ekki rannsakað það mikið.
Ég vil líka bæta því við að fólk skal ekki láta blekkjast þó Framsóknarflokkurinn hafi farið í gegnum einhverjar smá breytingar undanfarið, það er ennþá sama fólkið í þessum flokki og var í honum þegar t.d. bankarnir voru einkavæddir. Það verða engar alvöru breytingar fyrr en sjálfum undirstöðunum verður breytt.

Ég geri ráð fyrir að ég blóki ekki meira um krepputengd málefni, ég mun halda áfram að skrifa um mikilvægari hluti eins og ég hef gert hingað til.
Mörg andsvör (4)
Fimmtudagurinn 22. janúar 2009, kl. 22:04

Uppskriftahornið: Salt

Það er allt of langt síðan ég setti uppskrift á þessa síðu. Hér er uppskrift að salti:

Salt fyrir sex til átta manns
20 g malað salt

Berið fram með t.d. poppkorni eða frönskum kartöflum.
Mörg andsvör (5)
Mánudagurinn 26. janúar 2009, kl. 23:30

Ný sápa í Laugardalslauginni?

Ég er nokkuð viss um að það er enn og aftur búið að skipta um sápuna í karlaklefanum í Laugardalslauginni. Sápan er ennþá fagurgræn en það er öðruvísi lykt af henni en áður hefur verið. Ég get ekki alveg lýst því hvernig lykt er af henni núna, kannski lesendur hafi einhverja skoðun á málinu?
Mörg andsvör (8)
Miðvikudagurinn 28. janúar 2009, kl. 22:48

Vinur minn Scooter

Fólk hefur verið að hafa samband við mig upp á síðkastið til að benda mér á að það sé orðið ansi langt síðan ég setti inn söngtexta/ljóð eftir þýsku hljómsveitina Scooter. Hér með er bætt úr því; lagið heitir að þessu sinni „Let Me Be Your Valentine“ sem gæti útlagst á íslensku sem „Leyfðu mér að vera þinn Valentínus.“

Scooter! Scooter!...
Get up!!
Yeah!
Let Me be your valentine!!...yeah!
Let Me Be Your Valentine!!...come on!
Let Me be your valentine!!...yeah!
Let Me be your valentine!!...come on!
Let Me be your valentine!!...yeah!
Let Me be your valentine!!...come on!
You have to move RIGHT NOW!
Do you understand?!
Please..jump a little higher
We're gonna' rock the place...Yes!
Speed it up! Speed it up! Turn up the Bass!
Speed it up! Speed it up! Turn up the Bass!
Higher and Higher feeling so fine
Listen to the voice of Valentine!
Let me be your Valentine!...yeah!
Let me be your Valentine!...come on!
Let me be your Valentine!...yeah!
Let me be your Valentine!...come on!
Let me be your Valentine!...yeah!
Let me be your Valentine!...come on!...yeah!
Rough!!
We love the happy hardcore!
We're getting out of control!
Please...let me see you smile!
Let's get into another dimension...
YES! Speed it up! Speed it up! Turn up the bass!
Speed it up! Speed it up! Turn up the bass!
Higher and higher feeling so fine,

Listen to the voice of Valentine!

Let me be your Valentine!...yeah!
Let me be your Valentine!...come on!
Let me be your Valentine!...yeah!
Let me be your Valentine!...come on!
This is a Valentine's party!...Party!!
Come on!
Thank you!!

Ég læt lesendum eftir að túlka þennan texta í athugasemdakerfinu.
Eitt andsvar
Mánudagurinn 2. mars 2009, kl. 14:00

Hvað notar Pacas?

Eins og lesendur vita þá velti ég oft fyrir mér ýmsum hlutum varðandi tilveru okkar á þessari Jörð. Það er öllum manneskjum mikilvægt að láta hugann reika og leita svara við grundvallarspurningum lífsins, þó svo að maður fái ekki alltaf svarið. Síðustu vikur hefur ein spurning oft gert vart við sig í hugarfylgsnum mínum, ein af þessum spurningum sem eru svo áleitnar að þær trufla mann við leik og störf en maður veit aldrei hvort maður finni Svarið.
Spurningin er þessi: „Hvaða tegund af tilbúnum sósum ætli Pacas noti þegar hann vill gera sér dagamun og elda sér t.d. dýrindis kjúkling með indversku ívafi?“

Núna veit ég svarið.
Mörg andsvör (4)
Mánudagurinn 9. mars 2009, kl. 10:51

Sungnar auglýsingar

Ég og vinnufélagi minn erum búnir að vera að rifja upp gamlar sungnar íslenskar auglýsingar. Hver man ekki eftir þessum:

„Íbíza með Polaris!“

„Á Benidorm, á Benidorm, á Benidorm, með Ferðaskrifstofu Reykjavíkur“

„Já, kartöflur úr Þykkvabænum þykja kjarnafæða, þær eru einnig ljúffengar og lystugar að snæða. Hitaðar í ofni eða steiktar litla stund...“

„Hafðu það grillvænt og gott alla daga, gómsætar kjúklingabringur í maga. Bitakjúkling, já bitakjúkling“

„Að innan ég mála með Polytex, texið er efni sem aldrei bregst...“

„Bílaborg, neðst í Nóatúni. Bílaborg, Bílaborg er neðst í Nóatúni...“

„Fimmtíu og sex! Tíu þúsund.“


Ég spái því að tími svona auglýsinga sé að fara að renna upp aftur. Þó þessar auglýsingar geri alla sturlaða þá virka þær þannig að þær geta greypt vörumerki varanlega inn í heilabörkinn á heilu kynslóðunum séu þær spilaðar nógu oft. Gott dæmi um þetta er Ljóma auglýsingin („Veistu hvað Ljóminn er ljómandi góður?“) sem hefur verið spiluð reglulega fyrir jólin allt fram á þennan áratug. Auglýsingar eins og þessi nýjasta frá Símanum með Hilmi Snæ tilheyra fortíðinni, enda veit enginn um hvað sú auglýsing er. Á næstu misserum fáum við kannski auglýsingu þar sem Björgvin Halldórsson syngur um hvað SS sviðahausar eru næringargóður og hressandi matur. Textinn gæti verið á þessa leið:

„Eldir þú gjarnan SS svið,
Gefa þér börnin eigi grið.
Í kvöld verður sannkölluð sviðastund,
kætast þá börnin og léttist þín lund...“


Nú vil ég hins vegar beina einni spurningu til lesenda minna; munið þið eftir fleiri auglýsingum eins og þeim sem nefndar eru hér að ofan?
Mörg andsvör (4)
Föstudagurinn 13. mars 2009, kl. 14:15

Ekkert grín hér!

Ég hef verið spurður af hverju ég sé alltaf að grínast á þessari síðu og setji allt fram í hálfkæringi. Fólki finnst sem hér ráði græskan og ungæðishátturinn ríkjum á meðan allt hefur farið í bál og brand í þjóðfélaginu.
Við því er aðeins eitt svar; ég er ekkert að grínast! Ég tala aðeins um þau mál sem standa hjarta mínu næst og ég mun halda því ótrauður áfram. Allar beiðnir um að ég fari að snúa mér að því að finna lausnir á efnahagsvandræðum Íslands verða því hundsaðar áfram. Ég er því miður eini blókskrifarinn á Íslandi sem get ekki sett fram gáfulegar lausnir á þessum vandamálum.

Því miður.
Mörg andsvör (8)
Þriðjudagurinn 17. mars 2009, kl. 14:42

Góð auglýsing

Ég rak augun í ansi skemmtilega auglýsingu um daginn, þar sem verið var að auglýsa ýsu á lágu verði. Hér má sjá það sem gladdi mig sérstaklega við auglýsinguna:

Dauð ýsa

Eins og sjá má hefur umræðan á auglýsingastofunni verið á þessa leið:

Yfirmaður: „Jæja, gott fólk. Við þurfum að gera blaðaauglýsingu til að selja fólki fisk.“
Starfsmaður A: „Ég veit, tökum mynd af ýsuhræi, setjum bara kryddjurt ofan á það til að það líti út fyrir að vera girnilegt!“
Starfsmaður B: „Frábær hugmynd!“ * Klapp klapp *
Starfsmaður C: „Já, æðisleg hugmynd!“ * Klapp klapp *
Starfsmaður D: „Ég er fáviti, en mér finnst þetta samt rosa góð hugmynd!“ * Klapp klapp *
Yfirmaður: „Já, kýlum á þetta! Setjið upp gleraugun með þykku spangirnar, kveikið á Apple tölvunum og klárið þetta mál!“

Mér datt svo í hug að athuga hvernig ég myndi standa mig í auglýsingabransanum, þ.a. ég bjó til auglýsingu fyrir t.d. kjötvinnslu. Ég viðurkenni alveg að ég nýtti mér nokkrar hugmyndir úr hinni auglýsingunni:

Dauð belja

Mér finnst þetta hafa tekist bara nokkuð vel. Takið sérstaklega eftir því að steinseljan sem ég setti á hræið gerir þetta miklu lystugra! Maður fær bara vatn í munninn!

Ef einhver auglýsingastofa vill ráða mig til starfa þá er auðvelt að finna mig í símaskránni.
Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 20. mars 2009, kl. 22:51