Lag vikunnar: Such a surge - Chaos

Er ekki kominn tími á aðra þýðverska nýklassík? Nú býð ég ykkur upp á einhvers konar þýskan rapp/rokk bræðing sem mun líklega minna einhverja lesendur illþyrmilega á slæmt tímabil í tónlistarsögunni sem kennt er við „Nu Metal.“ Þetta lag sleppur þó fyrir horn þar sem það er á þýsku sem gefur því skemmtilegan blæ, þó svo að ég skilji ekki mikið í textanum.


Engin andsvör
Föstudagurinn 7. janúar 2011, kl. 15:30

Lag vikunnar: Bruce Springsteen (feat. Tom Morello) - The ghost of Tom Joad

Það muna margir eftir því þegar Rage against the machine gerðu ábreiðu (e. cover) á þetta lag á plötunni Renegades og breyttu því ansi mikið. Nú er þetta komið í einhvers konar hring því Bruce fékk gítarleikarann úr Rage með sér á tónleikum til að spila með sér lagið og það er næstum því hægt að segja að þetta sé ábreiða á ábreiðu. Nú þarf bara að halda áfram, Rage eða einhver meðlima þyrfti að gera ábreiðu á þessa ábreiðu, svo gerir Bruce ábreiðu ofan á hana o.s.frv.


Engin andsvör
Föstudagurinn 14. janúar 2011, kl. 10:26

Cod War í hægari útgáfu

Hér má heyra bút úr hinu margfræga lagi The Cod War þar sem búið er að hægja rækilega á því (það lengist um ca. 800%). Mikil snilld hér á ferð.


Eitt andsvar
Miðvikudagurinn 19. janúar 2011, kl. 12:14

Lag vikunnar: Europe - Open your heart

Já, það er komið að kraftballöðuföstudegi! Það þýðir að lag vikunnar er eðalkraftballaða frá 9. áratug síðustu aldar, og við erum ekki að tala um neina aukvisa í þetta skiptið, ó nei! Þetta er að sjálfsægðu sænska hljómsveitin er kennd er við eitt tungla Júpíters (þó þeir skrifi það ekki á nákvæmlega sama hátt). Textinn fjallar um hjartaskurðlækningar frá alveg nýju sjónarhorni enda liðsmenn sveitarinnar læknismenntaðir.


Engin andsvör
Föstudagurinn 28. janúar 2011, kl. 12:04

Belgíska þversögnin

Það er eitthvað furðulegt við Belgíu. Með smá einföldunum má segja að í Belgíu búi Hollendingar í norðurhlutanum og Frakkar fyrir sunnan, þó þeir kalli sig Flæmingja og Vallóna þá eru þetta menningarlega bara Frakkar og Hollendingar. Svo eru reyndar einhverjir þýskumælandi í Limburg en við lítum framhjá því hér. A.m.k. liggur landið á hinu óopinberu landamærum germönsku Evrópu og hinnar latnesku og þess vegna hefur Brussel gegnt miklu hlutverki í Evrópusögunni og gerir reyndar enn með því að hýsa höfuðstöðvar Evrópusambandsins. Þrátt fyrir þetta er ekki margt merkilegt við landið fyrir utan það að þeir fundu upp á frönskum kartöflum (belgískum?) og vöfflum. En jæja, vindum okkur að þversögninni.

Í landi þar sem uppistaðan er Frakkar og Hollendingar ætti að vera ansi hreint magnað landslið í fótbolta. Það er þó hins vegar ekki raunin. Ég held að fæstir geti nefnt marga fræga belgíska fótboltamenn. Ég man reyndar bara eftir einum svona í fljótu bragði og það er markmaður að nafni Preud'homme, og það er bara út af nafninu.

Svo er það bjórinn. Ekki eru Hollendingar sérstaklega frægir fyrir frábæra bjórmenningu. Heineken og Amstel eru a.m.k. flokkaðir í draslflokk með Carlsberg og svoleiðis bjórum af mörgum bjóráhugamönnum (ekki það að ég sé mikill sérfræðingur í þeim málum, mér finnast þessir bjórar ágætir). Ég myndi ekki heldur halda því fram að Frakkar séu mjög frægir fyrir góðan bjór, ég man ekki einu sinni eftir að hafa smakkað franskan bjór. Þrátt fyrir þetta eru Belgar með einhverja mögnuðustu bjórmenningu í heiminum, fullt af tegundum og sér glas fyrir hverja tegund. T.d. er til merkilegur bjór (Lambic bjór) þar sem ekki er beint sett ger út í heldur er blandan látin standa án loks í smá tíma til að gerlarnir komist á sinn stað á náttúrulegan hátt. Svo er örugglega miklu fleira til sem maður hefur ekki hugmynd um.

Þrátt fyrir þetta þá er sumt sem passar alveg vel, Flæmingjarnir eru almennt taldir kurteisari og Vallónarnir reykja mikið eins og Frakkar. Þetta eru samt eiginlega tvær þjóðir í einu landi og ekki skrítið að margir vilji skipta landinu í tvennt, sérstaklega Flæmingjarnir.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 2. febrúar 2011, kl. 14:45

Lag vikunnar: Skátar - Taco N' Surf A Prayer

Lag vikunnar að þessu sinni er með hinni frábæru hljómsveit Skátum, sem því miður er búin að leggja upp laupana. Þetta var tvímælalaust besta plata ársins 2007 og raunar er mjög erfitt að velja bara eitt lag af plötunni sem lag vikunnar þar sem þu eru öll jafngóð. Þetta lag er reyndar eina lagið sem kemst eitthvað nálægt því að vera ballaða þó það sé það reyndar ekki alveg.


Engin andsvör
Föstudagurinn 4. febrúar 2011, kl. 15:18

Lag vikunnar: Rúnk - Atlavík '84

Það er aftur komið að uppáhaldshljómsveit okkar allra, Rúnk. Þetta er að sjálfsögðu af plötunni Ghengi Dahls sem er eina alvöru platan sem þau gáfu út, því miður. Þetta lag fjallar um gamlan drykkjumann sem er að skemmta sér með unglingum á útihátíð (ég þekki reyndar nokkra sem fóru á Þjóðhátíð í Eyjum á síðasta ári, nefnum engin nöfn). Ég get allavega mælt sterklega með þessari plötu, hún er frábær í gegn. Ég held reyndar að það sé erfitt að nálgast hana í verslunum.

P.S. Ef einhvern vantar hugmynd að afmælisgjöf eða jólagjöf handa mér á þessu ári þá langar mig mikið í jóladiskinn með þessari hljómsveit! Hún hlýtur annars einhvern tímann að birtast á vefversluninni á Kima.


Ef HTML5 virkar ekki í vafranum þá getur þú sótt lagið hér

Sýna/fela texta

Engin andsvör
Fimmtudagurinn 10. febrúar 2011, kl. 14:09

Lag vikunnar: The white stripes - Truth doesn't make a noise

Þar sem þessi merkilega hljómsveit er nýbúin að leggja upp laupana er tilvalið að lag vikunnar sé með henni. Þetta lag er af plötu sem ber hið hollenska nafn De stijl og kom út áður en hljómsveitin varð fræg fyrir plötuna White blood cells. Þetta lag er eins og öll hin, mjög einfalt lag með gítar og trommum og svo fáum við smá píanó í kaupbæti. Hressandi.


Engin andsvör
Föstudagurinn 18. febrúar 2011, kl. 14:11

Icesave er æði

Ég var að fatta það að ég hef ekki skrifað neitt um Icesave málið á þessa síðu frá upphafi! Það er því kominn tími til að bæta úr því.

Ég vona a.m.k. að þetta mál taki ekki enda alveg strax enda hafa fá mál gefið Íslendingum jafnmikið efni til að rökræða fram og til baka og ég tala nú ekki um siðferðilegu álitamálin! Aldrei fyrr hefur nokkuð umræðuefni skákað veðri í umræðum á Íslandi eins og þetta skáldaða graf sýnir:

Það væri því mikill missir fyrir kaffistofur og fermingarveislur ef Icesave málinu lyki of snemma og bið ég fólk því að hafa þetta í huga í komandi atkvæðagreiðslu um málið, því ekki nennum við að fara að tala um veðrið aftur, er það?
Mörg andsvör (3)
Mánudagurinn 21. febrúar 2011, kl. 14:35

Lag vikunnar: The Smiths - Girlriend in a coma

Núna er komið að lagi sem allir hafa heyrt áður, enda mjög þekkt sveit hér á ferð. Það er svo sem ekki mikið um þetta lag að segja, enda frábært eins og allir vita og textinn ekki síðri.


Engin andsvör
Mánudagurinn 28. febrúar 2011, kl. 10:02

Nauðsynlegar umbætur á íslensku ritmáli

Mig langar mikið til að gera ýmsar breytingar á íslenskri tungu til að einfalda hana, ekki ósvipað og Mark Twain lagði til fyrir ensku á sínum tíma. Þetta mætti gera í skrefum til að auðvelda fólki að venjast breytingunum.

Við myndum byrja á að breyta rithætti orða til að þau hljómi eins og þau eru skrifuð, þ.a. ungur verður úngur, kex verður kjex, bull verður buddl, rugl verður ruggl o.s.frv.

Síðan myndum við henda út óþarfa stöfum eíns og x og y, og við notum bara ks og i í staðinn. Þegar þessar breítingar eru ordnar almennar þá er ekki seíddna væddna firir okkur að klára þetta og losa okkur við óþarfa stafi eíns og þ, ð, f og v og nota th, dh, ph og bh í stadhinn.

Thá getum bhidh haldidh áphram og slephpht breídhum sérhljódhum, á, é, ó, og æ bherdha aú, je, oú og aí. Nú erum bhidh búin adh stitta stabhroúphidh thoúnokkudh sem mun eínphalda liklabordh aú tölbhum umtalsbhert. Thaú getum bhidh pharidh adh sleppa öddlum ödhrum phöddlum en nebbniphaddli eíns og er gert í túngumaúl eíns og enska.

Getum bhidh ekki eíddnig slephpht oútharpha saggnordhbeííng? Thaú bhera thetta ansi hreínt eínphallt og phaddlegt túngumaúl sem bhid eíga. Thidh halda kannski adh jeg bhera kjeksruggladhur, en neí, sbho bhera alls ekki. Nú bhidh bhera komin medh eínphalt túngumaúl sem bhera jabbnbhel eínphaldara en enska. Bhidh geta reindar gaúnga leíngra og sleppa j og nota bara í í stadhurinn, thaú er íú enn eidnn stabhur phaírri í stabhroúph.

Kbhadh phinnast ikkur, bhera thetta ekki goúdh hughmind?
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 2. mars 2011, kl. 10:45

Lag vikunnar: Ultima Thule - Ragnarök

Ég var að fatta það að lög síðustu vikna hafa verið allt of góð, enda var ég eiginlega búinn að lofa því að gæðin yrðu ekki aðalmálið. Nú ætla ég sko aldeilis að bæta úr því með sænskum eðalmetal.

Ég sótti þetta lag á sínum tíma með Kazaa og þá var lagið eignað gæðahljómsveitinni Gwar, en annað kom svo á daginn. Þetta lag olli samt alls engum vonbrigðum, enda í svipuðum stíl og það sem Gwar hefur verið að gera í gegnum tíðina.


Engin andsvör
Föstudagurinn 4. mars 2011, kl. 14:34

Nýjung: QR kóði!

Eins og allir vita þá eru QR kóðar framtíðin! Hver kannast ekki við það að vilja komast á einhverja frábæra heimasíðu í símanum sínum en svo er alveg vonlaust að skrifa slóðina á þessi pínulitlu lyklaborð og allt endar í pirringi og höfuðverk?

Nú er lausnin komin! Viljir þú fara á þessa síðu í símanum þínum þarftu bara að framkvæma þessi örfáu einföldu skref:

1. Fara á haffi.fylleri.is í tölvunni
2. Finna þessa færslu til að fá QR kóðann
3. Sækja QR lesara í símann (ef það er ekki þegar komið)
4. Opna QR forritið í símanum
5. Skanna QR kóðann á tölvuskjánum, eða prenta það út og skanna svo
6. Voilà! Nú ert þú kominn á þessa frábæru síðu í símanum!

QR kóði

Uppfært 23.3
Ég sé að það kemur smá umferð inn á síðuna þar sem fólk er að leita að QR kóða á google, þ.a. ef þú ert að leita að síðu til að búa til þinn eigin QR kóða þá er hún hér.
Mörg andsvör (4)
Þriðjudagurinn 15. mars 2011, kl. 09:16

Gróðahugmynd

Ég var að fá svo sniðuga gróðahugmynd, en hún er samt algjört leyndarmál þ.a. þið megið ekki segja neinum frá!

Gróðahugmyndin snýst um að opna svona extreme bakarí þar sem tebollurnar eru ekki bara hálfþaktar súkkulaði heldur alveg þaktar! Það verður ekkert bara smá glassúr ofan á snúðnum heldur verður hann ofan á og neðan á og á hliðunum! Skinkuhorn? Nei, hornskinka (deig vafið inn í skinku)! Venjuleg langloka? Nei, langloka sem inniheldur nokkrar litlar langlokur!

Annars er hugmyndavinnan bara rétt að byrja, það er ennþá nóg af vöruhönnun eftir. Munið bara að segja alls engum frá.
Mörg andsvör (2)
Föstudagurinn 18. mars 2011, kl. 14:43

Skemtilegar Google leitir

Ég hef áður sett inn skemmtileg leitarorð sem skilar fólki á þessa síðu, til dæmis komu þrír í síðasta mánuði sem voru að leita að Gunna, en aðeins fimm allt í allt síðasta árið, þ.a. vinsældir hans hafa aukist hratt þennan mánuð.

Svo koma alltaf einhverjir eftir að hafa leitað að Isabella farting en það er víst eitthvað vinsælt dæmi sem ég ætla ekki að leita uppi. Hér skilar það fólki bara á frábæra smásögu. Síðan koma ansi margir sem eru að leita að textanum við upphafslag Brakúla greifa.

Hér er a.m.k. smá listi yfir leitarorð, sem hvert og eitt skilaði reyndar bara einni heimsókn, þ.a. þetta er ekki mikill fjöldi en samt áhugavert.

"góður brandari" [leitin skilaði þessum eðalbrandara]
hvar fær maður þokulúður
hvar get ég keypt handjárn
hvernig er hægt að vera nörd
vond lög
[mín lög?]
heimsmet í dvergakasti
hjátrú um lúðu
hvað er samúræi
hvenær kemur pósturinn
híbýli krókódíla
looked my ice песня скачать
samfaramyndir
vísur um sósur
ég strapon

Mörg andsvör (2)
Fimmtudagurinn 24. mars 2011, kl. 14:18

Lög vikunnar: Public Enemy/Anthrax og Boo-Ya T.R.I.B.E./Faith no more

Ég man enn vel eftir því þegar Nói var stanslaust að blasta Public Enemy plötunni ca. '92, og þá sérstaklega heyrðist lagið hér að neðan oft. Þetta lag varð mjög vinsælt og svo kom stuttu seinna hitt lagið og ruddu þau brautina fyrir nýja tónlistarstefnu sem kallaðist NuMetal (því miður). Þessi lög voru alveg ágæt ein og sér en því miður þá leiddu þau til stórslysa í tónlistarsögunni eins og Papa Roach, POD og fleira í þeim dúr. En það breytir ekki öllu, hér eru lögin:





Ætli Mike Patton hafi hlustað eitthvað á HAM áður en hann söng inn á þetta lag?
Engin andsvör
Föstudagurinn 25. mars 2011, kl. 10:06

Spádómur um Icesave

Hér eru mínir spádómar um hvað mun gerast ef Icesave lögin verða felld eða staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslunni:

Ef Icesave verður fellt 9. apríl þá gerist þetta:
Ef Icesave verður samþykkt 9. apríl þá gerist þetta:
Ég gæti samt alveg haft rangt fyrir mér, það kemur í ljós.
Mörg andsvör (2)
Þriðjudagurinn 29. mars 2011, kl. 12:33