Haffi!


Jæja, vér

Jæja, vér höfum opnað síðu sem til ,,bloggs" er ætluð. Mun tíminn einn leiða í ljós hvort vér munum vera duglegir við ,,blogg"
Mörg andsvör (6)
Föstudagurinn 22. nóvember 2002

Í dag

Í dag er föstudagur. Lítt höfðumst vér að í dag. Má þó vera að seinnipartinn verði herbergi vort málað. Einnig má vera að í framtíðinni verði þessu fornaldarlega ritmáli sleppt.
Mörg andsvör (14)
Föstudagurinn 22. nóvember 2002

Viðburðarrík síðasta

Viðburðarrík síðasta helgi. Það var brotist inn í bílinn, ég málaði herbergið og það var dúklagt, ég fór í klippingu og margt fleira.
Ótrúlegt
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 27. nóvember 2002

blogg blogg

blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg
Mörg andsvör (10)
Fimmtudagurinn 28. nóvember 2002

ahhh prófkvíðinn

ahhh prófkvíðinn er að hellast yfir. Hvílíkt stuð!
Mörg andsvör (8)
Föstudagurinn 29. nóvember 2002

Ég keypti

Ég keypti fimm jólagjagjafir í dag, sem þýðir að það eru bara fjórar eftir! Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem ég kaupi jólagjöf í nóvember. Svo keypti ég líka pappaljós í herbergið. Sem er mjög cool.
Mörg andsvör (22)
Laugardagurinn 30. nóvember 2002

Mér var

Mér var boðið í afmæli, afmæli, já afmæli, mér var boðið í afmæli, í afmæli var mér boðið.

Já eins og sést hér að ofan var mér boðið í afmæli, og það hjá Þórunni á næstkomandi föstudag.
Býst ég við að fjör verði í hámarki og jafnvel verður áfengi haft um hönd.

Engin andsvör
Mánudagurinn 2. desember 2002

Stór stund

Stór stund er runnin upp. ég er kominn með ADSL.
En það þýðir þó ekki að ég bloggi eitthvað meira

Engin andsvör
Miðvikudagurinn 4. desember 2002

Jæja ég

Jæja ég er kominn aftur eftir langt hlé frá bloggskrifum!
ehh ég veit ekki enn hvað ég á að skrifa

Engin andsvör
Sunnudagurinn 8. desember 2002

Staða kvenkyns dverga í svissneskum sjávarútvegi

Hér er birt grein mín um stöðu kvenkyns dverga í svissneskum sjávarútvegi, sem Morgunblaðið, Lifandi Vísindi og fleiri fjölmiðlar hafa ekki séð sér fært að birta hingað til. Kannski hafa þeir eitthvað að fela.

Staða kvenkyns dverga í svissneskum sjávarútvegi
e. Hafstein Þór Einarsson

Margir hafa spurt hvur staða kvenkyns dverga sé í svissneskum sjávarútvegi
en hingað til eigi fengið svör. Því er það mörgum gleðiefni að
undirritaður hafi gert sér far um að rannsaka þetta efni, enda brýnt mjög.
Eftir margra mánaða rannsóknarvinnu, tugi símtala og eftir langar setur
fyrir framan tölvuapparatus á svokölluðum veraldarvef hef ég komist að því
að staða kvenkyns dverga í svissneskum sjávarútvegi er nokkuð góð, að
minnsta kosti eftir atvikum.

Höfundur er óðalsbóndi og atvinnumaður í krulluknattleik (curling)

Engin andsvör
Þriðjudagurinn 10. desember 2002

www.hi.is/~hthe

www.hi.is/~hthe
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 19. desember 2002