Alvöru þjóðernissinnar
Alvöru þjóðernissinnar mega ekki láta
þetta fram hjá sér fara.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 2. október 2003
Anna: Hver
Anna: Hver er fljótlegasta leiðin fyrir mig að öðlast nóbelsverðlaunin sem ég á skilið?
Ég sjálfur var afar fljótur að fá nóbelsverðlaunin í bloggi, og var það vegna þess að bloggið mitt „er svo skemmtilegt“ skv. nóbelsakademíunni. Hins vegar get ég bent þér á að fáir gera tilkall til nóbelsverðlaunanna í stultugöngu.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 2. október 2003
Oggi: Afhverju
Oggi: Afhverju get ég ekki fengið svona stinky tagboard?
Þú getur það alveg, smellir bara á hlekkinn hér fyrir neðan korktöfluna.
P.s. Það er ekkert eftirsóknarvert að hafa korktöfluna „stinky“. Spurðu bara Bryngeir. Engin andsvör Fimmtudagurinn 2. október 2003
Þá skulum
Þá skulum við sjá hvað strákarnir í uppáhaldshljómsveit okkar allra, Scooter, voru að gera þegar þeir voru ungir. Frábærir textahöfundar, þessir strákar.
"When I Was A Young Boy"
All right, hey!!
C'mon!!
Yeah!!
We gonna make you loose control!!
We gonna make you loose control!!
We gonna make you, we gonna make you,
we gonna make you loose control!!
When I was a young boy I used to chat on the mike.
When I was a young boy I used to chat on the mike,
'til somebody told me this ain't gonna be allright.
When I was a young boy I used to chat on the mike.
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
Yeah!!
Ride on, ride on!!!
Ride on, ride on!!!
Ride on, ride on!!!
Yeah!!
We gonna make you loose control!!
We gonna make you loose control!!
We gonna make you, we gonna make you,
we gonna make you loose control!!
When I was a young boy I used to chat on the mike.
When I was a young boy I used to chat on the mike,
'til somebody told me this ain't gonna be allright.
When I was a young boy I used to chat on the mike.
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
You got the feeling, I got the feeling!!
Yeah!!
Ride on, ride on!!!
Ride on, ride on!!!
Ride on, ride on!!!
Give it up right now!!!
Ride on, ride on!!!
We make you loose con, we make you loose con,
we make you loose controool!!
Ha ha ha ha ha ha ha ha ....Engin andsvör Sunnudagurinn 5. október 2003
Oggi: Er
Oggi: Er það satt að risaeðlunar hafi dáið úti? og afhverju reyndi enginn að hleypa þeim inn svo þær myndu ekki krókna úr kulda?
Rétt er það hjá fyrirspyrjanda að risaeðlur hafi dáið úti (a.m.k. flestar þeirra). Þó getur verið að hann sé að meina að þær hafi
dáið út. Það þýðir að þegar þær dóu þá fóru þær út úr líkama sínum og til himna. Það þýðir að í dag er himnaríki krökkt af risaeðlum og er því ekki lengur eftirsóknarvert að fara til himna. Fyrir þá sem er illa við risaeðlur þá er bent á að
deyja inn. Þá fer viðkomandi ekki úr líkama sínum við dauða og getur því bara verið í gröfinni sinni í góðu yfirlæti og án allra afskipta risaeðla. (Mælt er með að lampi sé settur með í kistuna og jafnvel spilastokkur).
Höfundur vill af gefnu tilefni taka það fram að hann ber sömu tilfinningar til risaeðla og köngulóa, þ.e. hann er ekki hræddur við þær en væri samt illa við það ef þær væru skríðandi á honum eða að reyna að bíta hann.Engin andsvör Mánudagurinn 6. október 2003
Oggi: munum
Oggi: munum við líka einhvern tíma deyja úti?
Það er almennt talið neyðarlegra að deyja úti heldur en inni. Hver vill fá hjartaáfall á almannafæri?
Engin andsvör Mánudagurinn 6. október 2003
Í ljósi
Í ljósi þess að Ríkisútvarpið hefur ákveðið að halda ekki undankeppni fyrir Evróvisjónsöngvakeppnina, mun undirritaður gera lög sín opinber hér á síðunni í staðinn fyrir að senda þau í fyrrnefnda keppni. Hér geta lesendur hlaðið lögunum inn á tölvu sína og sett þau á geisladisk til að spila í bílnum eða í partýinu. Voru lög þessi samin fyrir þremur til fjórum árum og útskýringar lagahöfundar á hverju lagi fyrir sig munu birtast hér innan tíðar. Hins vegar mun undirritaður auðvitað svara kallinu ef Ríkisútvarpið vill senda hann fyrir Íslands hönd á Evróvisjón.
The Cod War - Studio.mp3
The Cod War - Live.mp3
Look Into My Ice.mp3
Look Into My Ice - DJ Snot Club Mix.mp3
Partystud A Patreksfirdi.mp3Engin andsvör Þriðjudagurinn 7. október 2003
Look Into
Look Into My Ice
Þetta lag telst það fyrsta sem ég samdi á ævinni og hlýtur því að teljast nokkuð merkilegt lag bara fyrir þær sakir, og hefur það því öðlast stóran sess í hjartastað höfundarins. Þetta lag markar einnig upphaf
píanórokksins sem er nú viðurkennt sem
genre í tónlistarbransanum þannig að það er einnig mjög merkilegt tónlistarsögulega séð. Annars eru ekki miklar tilfinningar að baki þessu lagi, þetta er bara skáldgáfa lagahöfundar að brjótast út í fyrsta sinn. Lagahöfundurinn samdi lagið og hann sá að það var gott (tilvitnun í fræga bók) og einnig að það hentaði vel til þess að gera dansvæna útgáfu af því sem gæti hljómað á skemmtistöðum um allan heim. Því var plötusnúðurinn DJ Snot fenginn til að endurhljóðblanda lagið og telst sú útgáfa afar vel heppnuð.
Lesendur geta gefið laginu/lögunum einkunn og umsögn hér í „Shout outinu“. Lesendur mega ráða á hvaða einkunnaskala einkunnin er gefin.Engin andsvör Miðvikudagurinn 8. október 2003
Hér geta
Hér geta lesendur tilnefnt vefsetur þetta til íslensku vefverðlaunanna í flokkunum:
Besti einstaklingsvefurinn
Besti afþreyingarvefurinn
Besti íslenski vefurinn
Einungis þarf að slá inn vefslóðina sem er: http://haffi.fylleri.is. Einnig er hægt að nota klippa-líma aðferðina.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 9. október 2003
Partýstuð á
Partýstuð á Patreksfirði
Þetta lag er svo sem ekki það merkilegasta sem undirritaður hefur samið, en það er ansi hressandi og dansvænt, og hentar vel til að koma lýðnum í stuð. Eins og glöggir lesendur taka eftir þá er þetta eina lagið sem hefur íslenskan titil og texta, og vísar titillinn í partý á Patreksfirði sem undirritaður var að öllum líkindum ekki í, því hann hefur aldrei komið á hina óspennandi og ómannvænu Vestfirði.
Lesendur geta gefið laginu einkunn og umsögn hér í „Shout outinu“. Lesendur mega ráða á hvaða einkunnaskala einkunnin er gefin.Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Anna: En
Anna: En er hægt að deyja úr forvitni?
Já, það er auðveldlega hægt. Nefni sem dæmi manninn sem vildi endilega vita hvernig fallöxi virkaði og Adolf Hitler.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Anna: Er
Anna: Er hægt að deyja úr stressi?
Já, það er hægt. Nefni Adolf Hitler og Jesú Krist sem dæmi.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Anna: Hvernig
Anna: Hvernig gengur með stefnumótaþjónustuna þína
Afar vel, nema að því leyti að enginn virðist þurfa á henni að halda.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Anna: Hversu
Anna: Hversu stressaður verður maður að vera til að geta talist of stressaður?
Um og yfir 23,5 á skalanum 14,5 - 27,75.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Anna: Það
Anna: Það er ekkert smá auðvelt að detta á svarta listann hjá þér. Hvað má maður vera óbloggaður lengi til að lenda ekki á svartalistanum?
Það sem þessu ræður er geðþóttaákvörðun umsjónarmanns. Enn er bent á að hægt er að kæra veru sína á svörtum lista á þar til gerðri korktöflu.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Bynni: Hvernig
Bynni: Hvernig get ég svindlað svo ég fái a.m.k 1000 heimsóknir á mánuði ?
Ferð í Tools | Internet options | Delete cookies. Eða nei, þetta var fyrir eitthvað annað... Prófaðu að ýta á F5 þúsund sinnum.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Oggi: Kæri
Oggi: Kæri Haffi: Er eitthvað til í því að þeir sem noti gleraugu séu með meiri fordóma gegn útlendingum af afrískum uppruna en aðrir?
Já, þetta er rétt hjá fyrirspyrjanda, en þetta er þó háð því að viðkomandi séu með gleraugun á sér. Annars hverfa fordómarnir eins og eskimóar úr Kringlunni á 17. júní.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Oggi: Og
Oggi: Og ef svo skiptir þá máli hvort um sé að ræða hvítan eða svartan afríkana
Nei, en það skiptir hins vegar máli ef um er að ræða bláan lit.
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
Gáta: Hvaða
Gáta: Hvaða frábæra manneskja fæddist árið 7BD?
Engin andsvör Mánudagurinn 13. október 2003
The Cod
The Cod War
Hér er um að ræða eitt allra vinsælasta lag höfundar fyrr og síðar. Lagið sló í gegn um leið og það kom út og hefur náð til eyrna um 20 hlustenda. Lagið er uppgjör höfundar við þorskastríðið, sem enn geysar á Íslandsmiðum, og tugir ef ekki hundruðir þorska látast í hverjum mánuði á einn eða annan hátt. Lagið var einnig spilað „lifandi“ og tekið upp á tónleikum í Apavatnskirkju þar sem Strengjasveit Apavatns og nágrennis (STRAPON) spilaði fagmannlega undir í dramatískum lokakafla lagsins. Margir tónleikagestir féllu í yfirlið á þessum tónleikum vegna þess hve lagið er fagurt á að hlýða, og var því ákveðið að spila það ekki aftur „lifandi“ opinberlega. Þeim sem treysta sér til að hlusta á lagið hér á vefnum er bent á að anda djúpt og vera með góðan púða til taks.
Lesendur geta gefið laginu einkunn og umsögn hér í „Shout outinu“. Lesendur mega ráða á hvaða einkunnaskala einkunnin er gefin.Engin andsvör Miðvikudagurinn 15. október 2003
Vangaveltur um
Vangaveltur um bakflæði (e. feedback)
Undirritaður hefur oft velt því fyrir sér af hverju hann þjáist af bakflæðisskorti á síðu þessari. Til viðmiðunar má benda á að ónefndur bloggari, sem við skulum kalla
Blogga, er að fá mikinn fjölda úthrópana (e. shout outs) við færslur sínar. Eru þess dæmi að hann sé að fá allt að tíu úthrópanir á færslu. Á þessari síðu er hins vegar sjaldséð að úthrópanir nái því að verða fimm, ef einhverjar eru. Hverjar eru ástæður þessa? Eru færslur undirritaðs, sem við skulum kalla
Plaffa, svo vel skrifaðar og fullar fróðleiks að ekki er þörf á að bæta neinu við, eða eru þær kannski svona óáhugaverðar? Ýmislegt hefur verið gert til að auka gagnvirkni vefjarins, til dæmis hefur verið sett upp stefnumótaþjónusta og tónlistarvefur, en þó hefur það ekki aukið bakflæði að neinu marki, og virðist vera sem lesendur séu álíka gagnvirkir og eskimóar í hassvímu. Hér með eru þeir hvattir til að bæta úr þessu hið snarasta.
Sá sem ekki undrast, er engu betri en eskimói og grænmetisæta.
Albert Einstein, 2003Engin andsvör Mánudagurinn 20. október 2003
Fylkið
Fengið hef ég hugmynd góða,
hungrið tæmir magann.
Fór það svo með elginn óða,
ekki sá hann agann.
Undirrituðum er margt til lista lagt, og er handritsgerð þar ekki undanskilin. Hann hefur fengið hugmynd að bíómynd, sem hann vill kalla
Fylkið eða
The Matrix. Fjallar hún um hóp stærðfræðinga sem þurfa að glíma við stærsta þrívíða fylki stærðfræðisögunnar, sem inniheldur tvinntölur og ýmsan annan hrylling, reikna ákveðu þess og koma því á rudda efri stallagerð (e. reduced row-echelon form). Til dæmis gæti Bruce Willis leikið fyrrverandi stærðfræðing sem missti konuna sína vegna starfsins og starfar sem bílastæðavörður þegar myndin hefst, og þá gæti John Malkovich leikið hinn illa Hr. Otta, sem ber ábyrgð á sköpun fylkisins. Hugmyndin er hér með boðin til sölu.
Engin andsvör Mánudagurinn 20. október 2003
Anna: Hvernig
Anna: Hvernig gengur maður af göflunum?
Auðvelt, ferð á gaflana og gengur svo af þeim.
Aths. Hér er ekki verið að tala um gaffla heldur gafla.Engin andsvör Fimmtudagurinn 23. október 2003
Í tilefni
Í tilefni af vangaveltum Oddgeirs varðandi tímann, þá legg ég til að þessu erindi verði bætt við lagið
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring:
Jörðin hún snýst í kringum sjálfa sig, sjálfa sig, sjálfa sig. Jörðin hún snýst í kringum sjálfa sig, svona um það bil þrjátíu sinnum á hverjum mánuði.Engin andsvör Fimmtudagurinn 23. október 2003
Nú hef
Nú hef ég oft verið nálægt svokölluðu þráðlausu Interneti, en ekki veit ég til þess að ég hafi orðið gáfaðri af veru minni í því. Þrátt fyrir að allar þessar upplýsingar streymi í gegnum höfuðið á manni á bitaformi, þá virðist heilinn ekki geta móttekið allan fróðleikinn. Því legg ég til að farið verði í að hanna einhverskonar tæki sem túlkar upplýsingarnar á tungumál heilans.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 23. október 2003
Undirritaður er
Undirritaður er mjög ánægður með mælanlega aukningu á bakflæði á síðunni, en þó mætti það vera örlítið meira í jákvæðari kantinum.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 23. október 2003
Gatnamót
Oft hefur undirritaður hugleitt stöðu gatnamóta í íslensku lagaumhverfi. Nú eru gatnamót einhverskonar óskilgreind svæði, tökum sem dæmi gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, þar sem ekki ómerkara fólk en forseti Íslands og Kristján Jóhannson hafa keyrt yfir. Þau gatnamót eru bæði Miklabraut og Kringlumýrarbraut í senn en þó einnig hvorugt. Ef til dæmis einhver færi í mál við mig fyrir eitthvað sem ég gerði á þessum gatnamótum, þá er ekki hægt að sanna að ég hafi verið á Miklubraut og Kringlumýrarbraut á sama tíma, því það er náttúrulega alls ekki hægt og brýtur í bága við alla almenna skynsemi. Því yrði þeirri málshöfðun líklega vísað frá vegna galla í ákæru. Það sama hlýtur að eiga við um borgarmörk, bæjarmörk, sýslumörk og landamæri.
Engin andsvör Sunnudagurinn 26. október 2003
Þegar þetta
Þegar þetta er skrifað er sunnudagur, sem er reyndar ekki í frásögur færandi nema að því leyti að á morgun er mánudagur, og þú, lesandi góður ert líklega að lesa þetta á mánudegi. Ef svo er ekki, þá ertu að lesa þetta á einhverjum allt öðrum degi, eða þá að þú ert að lesa þetta akkúrat á því augnabliki þegar gamli dagurinn er að enda og nýr er að byrja.
Aths. Pistlahöfundur er kominn með nýjan viðtalstíma, eða á þriðjudögum frá klukkan 11:30 til hálf tólf, enn sem fyrr á skrifstofu sinni á Ervallagötu.Engin andsvör Sunnudagurinn 26. október 2003
Nútímakveðskapur
Hér er framlag undirritaðs til nútímakveðskapar.
Hvar er ég?
Hvar ert þú?
Ert þú þessi Pétur?
Vatnið nær mér upp í háls.
Ég drukkna! Drukkna!
Ég heiti ekki Pétur.
Ég heiti Sigurður.
Af hverju syndir þú ekki?
Pétur syndir! Syndir!
Þá er sturtað niður.Engin andsvör Þriðjudagurinn 28. október 2003
Undursamleg tækninýjung!
Nú
Undursamleg tækninýjung!
Nú geta erlendir gestir loksins loksins lesið þessa síðu á sínu eigin tungumáli. Það eina sem þarf að gera er að smella á hlekkina hér fyrir neðan.
Engilsaxneska
Franska
Sænska
Rússneska
Pólska
Engin andsvör Miðvikudagurinn 29. október 2003
Undirritaður lýsir
Undirritaður lýsir hér með yfir frati á harðsoðin egg. Þau eiga bara ekki að vera í neinum mat! Svo eru þau líka mjög svo óholl, mikið um kólesteról og fitu, sérstaklega í rauðunni.
Engin andsvör Föstudagurinn 31. október 2003
Nútímakveðskapur II
Í kjölfar góðra undirtekta við nútímakveðskap mínum kemur hér annað ljóð upp úr skúffunni.
Hraðbanki lífs mínsSláðu inn PIN-númer.Blíbb blíbb blíbb blíbb.
Úttekt.Blíbb.
Upphæð.Blíbb blíbb blíbb blíbb blíbb.
Taktu kvittunina.Taktu kortið.Úttekt úr hraðbanka lífsins.
Sigfúúús!
Engin andsvör Sunnudagurinn 2. nóvember 2003
Nýyrði
Oft hefur undirritaður hugsað um hvernig best væri að þýða orðið „blogg“ yfir á íslensku. Eins og allir vita er enska orðið „blog“ aðeins stytting á orðinu „weblog.“ Undirritaður hafði hugsað sér að gera eitthvað hliðstætt við íslenska orðið „vefdagbók“ og duttu honum í hug orðin „gók“ og „fabók.“ Ekki taldi hann þau nógu þjál og eftir mikla hugsun og yfirlegu kom orðið „blók“ sem er blanda af orðunum „vefdagbók“ og „færsla.“ Því er þessi síða nú orðin „blóksíða“ þar sem mikið er „blókað“ um hin ýmsu málefni.
Engin andsvör Mánudagurinn 3. nóvember 2003
Glöggir lesendur
Glöggir lesendur taka líklega eftir því að nú er „shout out“ kerfið komið á íslensku, og þá er einnig líklegt að þeir taki eftir að þar er orðið „bakflæði“ notað í fleirtölu, sem ekki hefur gerst áður svo vitað sé.
Engin andsvör Mánudagurinn 3. nóvember 2003
Rögnvaldur fer
Rögnvaldur fer alltaf upp og niður stigann, en líka til hægri og vinstri. Marbendlar eru ekki með alskegg, nema á hnakkanum. Kýrin Guðríður á afmæli alla daga ársins, nema á fimmtudögum og á hlaupári. Gervitungl eru alltaf með rautt fax. Hvaða dýr er með sjö fætur og segir: SIGGI! SIGGI! og stendur á sex höndum þegar kalt er í veðri? Er þetta kannski burður í bakkafullan læk? Endemis þvættingur! Stóri dvergurinn og litli risinn fóru á dvergakast í Smáralind. Bull! Vitleysa! Blárauði eskimóinn þolir það ekki þegar litlir hundar sníkja tóma tyggjópakka af berrössuðum albínóaindjánum. SIGGI! SIGGI!
Er þetta tákn um geðveiki?
Engin andsvör Föstudagurinn 7. nóvember 2003
Eitthvað fyrir
Eitthvað fyrir hundaeigendur.
Engin andsvör Mánudagurinn 10. nóvember 2003
Engin andsvör Mánudagurinn 10. nóvember 2003
Engin andsvör Mánudagurinn 10. nóvember 2003
Nú er
Nú er búið að setja lítinn upphitaðan gervigrasvöll í lítilli fjarlægð frá heimili mínu. Þar er tilvalið að spila fótbolta eða bandý á síðkvöldum. Eru einhverjir til í það?
Engin andsvör Miðvikudagurinn 12. nóvember 2003
Komin er
Komin er tillaga að íþróttaástundun á laugardaginn um kl. 16 - 17. Hvernig hentar það?
Engin andsvör Fimmtudagurinn 13. nóvember 2003
Vildi bara
Vildi bara benda ykkur á eina
bestu heimasíðu á Íslandi. Þarna er sko fullt af gullmolum.
Engin andsvör Föstudagurinn 14. nóvember 2003
Þá er
Þá er undirritaður búinn að senda inn lag sitt, „Þorskastríðið,“ í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Evróvisjón). Afar ólíklegt má telja að einhver annar muni senda inn lag sem sé jafnt að gæðum og lag undirritaðs, þannig að þá er bara að byrja að undirbúa sig fyrir keppnina í Tyrklandi í maí.
Engin andsvör Mánudagurinn 17. nóvember 2003
Upprifjun I
Nú styttist óðum í blókarafmæli undirritaðs, sem verður þann 22. nóvember. Af því tilefni er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og rifja upp nokkra af hápunktum þessarar síðu:
22. nóvember 2002: Fyrsta blókið skrifað á síðuna og síðan opnuð almenningi.
Þess má geta að fyrsti stafurinn í fyrstu færslunni á þessari síðu var stórt joð (J).
29. janúar 2003: Blóksíðan endurvakin eftir eins mánaðar hlé.
30. janúar 2003: Fyrsta bakflæðið á síðunni kemur inn.
1. febrúar 2003: Pistlahöfundur gefur kost á sér í knattspyrnulandslið Íslands, Japans og Hollands.
18. febrúar 2003: Pistlahöfundur viðrar hugmynd sína um stofnun samtaka grænmetisætna og viti menn, í dag er stofnun þeirra samtaka í undirbúningi.
26. mars 2003: Pistlahöfundur viðrar hugmynd sína um að senda lag á Evróvisjón í fyrsta skipti.
3. apríl 2003: Pistlahöfundur ákveður að taka við fyrirspurnum í gegnum korktöfluna og svara þeim eftir bestu getu.
13. apríl 2003: Fyrsta og eina draumráðningin á síðunni.
5. maí 2003: Síðan færð yfir á vefsvæði höfundar í Háskóla Íslands þar sem hún er enn þann dag í dag í góðu yfirlæti.
Ýmislegt fleira markvert gerðist eftir þetta, t.d. kom fyrsta færslan á engilsaxnesku, shout out kerfið þýtt yfir á íslensku og túlkur settur upp til að fólk af erlendu bergi brotið geti lesið síðuna, en höfundur lætur lesendum eftir að finna út þær dagsetningar.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 19. nóvember 2003
Undirrituðum var
Undirrituðum var boðið í 10 ára afmæli X-ins 97,7 á Nasa í gær og fór hann þangað í fríðu föruneyti með Gunnari og Bryngeiri. Skemmst er frá því að segja að þarna var ekki boðið upp á afmælistertu, enga leiki, engar pizzur og enga bíómynd. Aðeins var boðið upp á hávaða. Undirritaður skemmti sér ekki mjög vel nema að því leyti að hann fann upp nýjan leik, sem hann kallar: „Að vera síðastur að hætta að klappa.“ Byggist hann upp á því að sá sem tekur þátt í leiknum bíður eftir því að allir í salnum fari að klappa, og klappar með alveg þangað til allir aðrir eru hættir að klappa og þremur sekúndum betur. Þá hættir hann snögglega að klappa og lítur vandræðalega í kringum sig. Hvetur undirritaður alla sem þetta lesa til að prófa þennan stórskemmtilega leik.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 19. nóvember 2003
Viðskiptahugmynd
Lengi hefur undirritaður gengið með góða viðskiptahugmynd í maganum. Flestir hér kannast við hin afar þægilegu og hlýju norsku ullarnærföt sem oft eru kölluð frotté. Hugmynd undirritaðs snýst um það að búa til svokallaðar „boxer“-nærbuxur úr sama efni, þ.e. ekki með jafn síðum skálmum og upprunalegu nærfötin. Víst er að þessar nærbuxur myndu seljast sem heitar lummur því engin nærföt eru jafn hlý og téðar nærbuxur. Þá væri einnig hægt að framleiða kvenundirfatnað úr sama efni. Þó er mesta snilldin fólgin í nafngiftinni. Flestir kannast við þennan brandara:
„Ætlarðu bara að taka einar nærbuxur með þér í fríið?“
„Einar? Af hverju ætti ég að taka Einar með?“
Hugmynd undirritaðs er að markaðssetja nærbuxurnar undir vörumerkinu „Einar“, því það býður upp á svo skemmtilega orðaleiki:
„Ha? Áttu ekki neinar Einar nærbuxur?“
„Ég á bara einar Einar nærbuxur, en ég ætla að fara út í búð á morgun að kaupa mér tvennar Einar nærbuxur.“
Þetta verður svo enn skemmtilegra fyrir þá sem heita Einar:
„Einar á bara einar Einar nærbuxur, Einar.“
Ef einhver ykkar sem þetta lesa vilja fjárfesta í þessari viðskiptahugmynd þá endilega hafið þið samband við undirritaðan.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 26. nóvember 2003
Orðrómur kveðinn í kútinn
Orðrómur hefur verið á kreiki sem segir að undirritaður þjáist af hægða- og ritstíflu. Af því tilefni vill undirritaður taka fram að allar sögur þar að lútandi eru stórlega ýktar svo ekki sé meira sagt, því það eina sem hrjáir hann er óstjórnleg löngun til að öskra SIGGI! SIGGI! á almannafæri. Orðrómar, eins og sá sem að ofan er getið, eru aðeins lítt skemmtilegir fylgifiskar frægðarinnar sem fylgir því að reka svona frábært og vinsælt vefsetur.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 26. nóvember 2003
Sunnudagur, Mánadagur,
Sunnudagur, Mánadagur, Týsdagur, Óðinsdagur, Þórsdagur, Frjádagur og Laugardagur. Þetta eru hin réttu íslensku daganöfn. Nú vantar bara einhvern þingmann til að leggja fram frumvarp og málið er í höfn.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 2. desember 2003
Sönnun fyrir
Sönnun fyrir tilvist góðs og ills
Fyrr í dag tókst hæstvirtum Oddgeiri og undirrituðum að sanna tilvist góðs og ills í heiminum með hjálp stærðfræðinnar. Eins og flestir vita eru til tvær andhverfar aðgerðir í stærðfræðinni sem nefnast heildun og diffrun. Diffrun snýst um að brjóta eitthvað fall niður og lækka veldistuðla á breytum um einn, en heildunin virkar akkúrat öfugt. Í þessu sambandi er djöfullinn diffrunin og Jesú og guð eru heildunin. Það má skýra með þessum hætti:
Diffrun stuðlar við djöfulinn.
Heildun er náskyld heilagleika.
Þannig má segja að djöfullinn og þeir sem vinna á hans vegum diffri fólk í herðar niður en Jesú og guð reisa það aftur við með heildun. Oft heyrir maður um árásir og rán ýmisskonar þar sem fólki er hótað diffrun eða jafnvel bara diffrað án nokkurrar ástæðu. Aðkoma að fórnarlömbum diffrunar er afar ógeðfelld, fórnarlambið liggur eftir vankað með lága veldisstuðla og rauntölur án fasta eru horfnar. Ekki verður farið út í tví- eða þrídiffrun hér vegna þess að þær aðgerðir eru það ógeðfelldar að ekki er hægt að birta það opinberlega. Þá kemur oft að læknum að heilda (e. heal) fórnarlömbin aftur til fyrra horfs, þó stundum sé erfitt að bjarga rauntölunum sem hurfu. Oft er bara sett C í staðinn. Þess ber þó að geta að e
x er guðdómleg tala á einhvern hátt og því hafa þessar aðgerðir engin áhrif á þá tölu. Líklegt er að hæstvirtur Oddgeir muni einnig skrifa grein um þetta efni, og verður fróðlegt að sjá hans sýn á málið.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 9. desember 2003
You are

You are 'Deck the Halls'! Let's be honest, it isn't Christmas you are celebrating, is it? In fact, you know full well that there were no shepherds in the fields in December, and that the date of Christmas was put at midwinter specifically to coincide with the older celebrations of Yule and the birth of Mithras. An unashamed Pagan, you take great glee in the number of carols referring to holly, evergreens and Winter's end, and will sing them with gusto. You know where they really came from. And you do enjoy the seasonal celebrations, regardless of their name... A merry Yule to you!
What Christmas Carol are you? brought to you by Quizilla
Engin andsvör Þriðjudagurinn 16. desember 2003
Prófum lokið,
Prófum lokið, penni tómur,
plómum rignir yfir mig.
Hófum rokið, renni lómur,
rómum signir lifir sig.
Já, undirritaður er búinn í prófum og fátt er betra en að semja ferskeytlu með innrími til að fagna því. Þá er loksins kominn tími til að demba sér í jólaskapið. „Ég hlakka svo til! ÉG HLAKKA ALLTAF SVO TIL! Dagarnir eru svo lengi að líða...“
Engin andsvör Laugardagurinn 20. desember 2003
Ég hef
Ég hef komist að því að kvenfólk veit ekkert um Feng Shui. Klósettsetan á að vera uppi því að úr vatninu kemur mikil orka sem flæðir um húsið. Með öðrum orðum, það er gott Feng Shui. Einnig er gott að hafa í huga fleyg orð söngkonunnar Dido úr laginu White Flag:
I won´t go down with this shit. I won´t put my hands up and surrender.
Engin andsvör Sunnudagurinn 28. desember 2003