Haffi!


Ég hef

Ég hef fundið einn galla á frummyndakenningu Platons. Hún gerir ráð fyrir því að engir fullkomnir hlutir fyrirfinnist í efnisheiminum. Ég hef hins vegar fundið hlut sem er algerlega fullkominn á alla vegu. Það er íslenska Kókómjólkin. Ég er alveg viss um að á himnum er drukkin MS Kókómjólk úr nákvæmlega eins fernum og unnin úr nákvæmlega eins mjólk. Reyndar fannst mér ég sjá fullkominn hring um daginn, en kannski var hann alls ekki fullkominn.
(Mig grunar að bara Bynni eigi eftir að svara þessu).
Mörg andsvör (4)
Miðvikudagurinn 6. október 2004

Voðalega er

Voðalega er blókað sjaldan hérna! Annars var ég bara að pæla í því hvort hljómsveitin Sheet Fook Ho sé nokkuð búin að leggja upp laupana? Við megum ekki láta smá tónlistarlegan ágreining gera út af við hljómsveitina. Ef það er í alvöru einhver vilji fyrir því að hljómsveitin færi sig meira yfir í köntrí þá ætla ég ekki að standa í vegi fyrir því.
Það er komið nýtt lag vikunnar!
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 13. október 2004

Ég hef

Ég hef alls enga hugmynd um hvað ég á að skrifa hérna. Bara alls enga! EF ÞAÐ ER EKKI NÓGU GOTT FYRIR YKKUR ÞÁ GETIÐ ÞIÐ BARA ÁTT ÞAÐ VIÐ YKKUR SJÁLF! Takk fyrir.
Mörg andsvör (2)
Fimmtudagurinn 14. október 2004

Sápa

Ég fór í Laugardalslaug nýlega, og væri það ekki í frásögur færandi nema að því leyti að það er búið að setja nýja sápu í sturtuklefana. Nýja sápan er alveg eins í útliti og gamla sápan en lyktin er gerbreytt. Hverju sætir þetta? HVAÐA SNARGEÐVEIKA BAVÍANA DATT Í HUG AÐ SETJA ÞETTA GRÆNA FLÓÐHESTAHLAND Í STAÐINN FYRIR GÖMLU SÁPUNA SEM HEFUR VERIÐ ÞARNA FRÁ ÞVÍ ÉG MAN EFTIR MÉR?! Mér er spurn. Annars skiptir þetta mig ekkert svo miklu máli, var bara svona að pæla í þessu.
Mörg andsvör (16)
Föstudagurinn 15. október 2004

Hin mikilfenglega

Hin mikilfenglega gyðja innblásturs er í fríi í dag, þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa. Ætli ég skelli ekki bara Scooter texta hingað:

"I'm Raving"

Good evening!!

Put on my raving shoes and I boarded a plane.
Touched down in the land where the skies were blue,
in the middle of the pouring rain.
Everybody was happy, energy shining down on me.
Yeeeah, I've got a first-class ticket been as good as a boy can be.

I'm raving, I'm raving.
I'm raving til' the sweat drops fall down off me.
I'm raving, I'm raving.
But do I really feel the way I feel?

Yess!!
C'mon!
YEEEEAH!!

Put on my raving shoes and I boarded a plane.
Touched down in the land where the skies were blue
in the middle of the pouring rain.
Everybody was happy, energy shining down on me.
Yeeeah, I've got a first class ticket been as good as a boy can be.

I'm raving, I'm raving.
I'm raving til' the sweat drops fall down off me.
I'm raving, I'm raving.
But do I really feel the way I feel?

Yess!!
Wicked!
Wicked!
WICKED!
Give it up now!
Give it up now!
Give it up now!
YEEEEAH!!

I'm raving, I'm raving.
I'm raving til' the sweat drops fall down off me.
I'm raving, I'm raving.
But do I really feel the way I feel?
But do I really feel the way I feel?

Thank you!!!

Mörg andsvör (4)
Sunnudagurinn 17. október 2004

Ég er

Ég er að pæla í að stofna nýtt trúfélag fyrir þá sem vilja blóta Hannes (appelsínugula goðið) sem er á myndinni hér efst til vinstri. Ég er jafnvel búinn að setja saman litla bæn:

Hannes vor, þú sem ert í bílnum.

Helgist þitt loft, til komi þinn spegill,
verði þinn vilji svo á vegi sem í stæði.
Gef oss í dag vort daglegt amstur
og fyrirgef oss vorar beygjur,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum sessunautum.
Eigi leið þú oss í blindgötu,
heldur frelsa oss frá hraðahindrun.
Því að þín er gatan, umferðin og bíllinn
að eilífu.

Hannes.

Mörg andsvör (4)
Fimmtudagurinn 21. október 2004

Mynd kemst í flámæli

Þessi færsla er sérstaklega skrifuð fyrir flámælta Íslendinga og útlendinga, og því er hún á flámælsku.

Ég sá bíómend nýlega sem heiter því skrítna en skemmtelega nafne The punisher. Það gæte útlagst sem refsarenn á íslensku. Sú mend var svosem alveg ágæt tel áhorfs, en góð ennkoma söngvarans í Scooter lefte myndinni á hærra plan. Mend þesse telst seint tel stórverkja í kvekmendagerð, en er þó ágætes afþreyeng í skammdegenö. Því telst veð hæfe að gefa þessare mend einkönnina femm af níö mögulegöm. Takk ferer.
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 27. október 2004

Ég hef

Ég hef ákveðið að gefa lesendum tækifæri á að spila stórkostlegan leik! Markmiðið er náttúrulega að klára HM, sem á reyndar ekki að taka neitt langan tíma. Þegar þið eruð búin að því þá megið þið láta allan heiminn vita af því hér í bakflæðinu eða á korktöflunni.
Mörg andsvör (13)
Þriðjudagurinn 2. nóvember 2004

Það er

Það er alveg ótrúlega erfitt að sofna þegar laglínur eins og þessar hljóma í hausnum á manni aftur og aftur: „Nóma nóma jei, nóma nóma nóma jei!“ og „Maja hí, maja hú, maja ha, maja haha!“ Ég er nú búinn að sjá myndbandið með þessu magnaða lagi og það er jafnvel enn hallærislegra en lagið sjálft. Reyndar gæti verið að textinn í þessu sé mjög heimspekilegur og fjalli um djúpar pælingar um hverfulleika lífsins og ástæður þess að við erum hér á jörðinni. Ég tel það þó ólíklegt.
Eitt andsvar
Föstudagurinn 5. nóvember 2004

SIGGI! SIGGI!

SIGGI! SIGGI!
Mörg andsvör (10)
Fimmtudagurinn 11. nóvember 2004

Mér finnst

Mér finnst það alveg glatað að Arnold Schwarzenegger sé hættur að leika í kvikmyndum! Þetta er einn besti og fjölhæfasti leikari sem uppi er nú til dags og hann er orðinn að ríkisstjóra í Kaliforníu! Ég táraðist t.d. þegar ég heyrði hann segja þessa setningu fyrst í kvikmynd: „Get down!“ Einnig varð ég djúpt snortinn þegar hann sagði „I'll be back.“ og „Hasta la vista, baby.“ Þá verð ég að geta þess að öskrin sem koma frá honum þegar verið er að lemja hann eða þegar hann kastast í gegnum rúðu eru alveg ótrúlega raunveruleg og manni líður næstum eins og þetta sé að koma fyrir hann í alvörunni. Ég vona að hann hætti fljótlega sem ríkisstjóri og helgi sig því sem hann er bestur í, þ.e. kvikmyndaleik.
Mörg andsvör (2)
Sunnudagurinn 14. nóvember 2004

Ég las

Ég las það á kókómjólkurfernu að eitt sinn var til jólasveinn sem hét Litlipungur. Hann er kannski ennþá til, en allavega er hann ekki einn af þessum 13 „official“ jólasveinum í dag. Af hverju ætli það sé? Ættu börn landsins ekki að fá að kynnast Litlapungi eins og hinum bræðrum hans?
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 18. nóvember 2004

Tækifærisbrandarar

Mig langar til að safna saman nokkrum mjög lélegum (lesist: góðum) tækifærisbröndurum. Dæmi: „Það eru engir steinar í þessum vínberjum, Siggi minn.“ „Ha? Af hverju ætti Steinar að vera í vínberjunum?“ Annað dæmi: „Keyptirðu bara einar buxur Siggi?“ „Af hverju heldurðu að ég hafi nefnt buxurnar Einar?“ Enn eitt dæmi: Kennarinn að lesa upp þá sem eru mættir: „Siggi!“ Nemandi svarar: „Hann er með leyfi!“ Þá segir annar nemandi: „Hver er þessi Leifur?“
Þó skal tekið fram að tækifærisbrandarar þurfa ekki endilega að tengjast mannsnöfnum. Ef þið munið einhverja svona lélega (lesist: góða) brandara, endilega skellið þeim í bakflæðið eða á korktöfluna.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 18. nóvember 2004

Æviágrip Vladimirs Stavrov

Vladimir Stavrov er einn af mikilvægustu vísindamönnum síðari tíma. Hann fæddist í Pétursborg árið 1857 við mikla fátækt. Þar bjó hann þar til hann varð 20 ára, en þá fluttist hann til Þýskalands til að læra sjávarlíffræði. Þaðan útskrifaðist hann nokkrum árum síðar, en lokaverkefni hans fjallaði um það hvernig afkvæmi ýsa og þorskur myndu eignast, ef þau gætu parast. Engin tilraun hans til þess heppnaðist, þar sem hann reyndi alltaf að láta tvo karlkyns fiska parast. Þetta olli honum miklum vonbrigðum, og sneri hann baki við sjávarlíffræði. Einn fallegan vetrardag í Berlín rakst hann á bók sem var prentuð af Gutenberg. Þessi bók innihélt heimilisföng hjá mörgum af ríkustu mönnum Berlínar. Hann tók eftir því að nöfnin í bókinni voru ekki í neinni röð, þannig að ef hann vildi leita einhvern ákveðinn mann uppi, þá þurfti hann að lesa sig í gegnum alla bókina. Þetta fannst honum afar óhentugt, og vildi hann finna einhverja leið til að raða nöfnunum í einhverja lógíska röð. Eftir margra ára hugmyndavinnu og prófanir kom hann upp með afar góða en einfalda leið til að raða nöfnunum í röð. Þessi uppgötvun hans leiddi til þess að í dag er notast við hina svokölluðu Stavrov's-röð í öllum símaskrám í heiminum, og einnig er bókum á flestum bókasöfnum raðað eftir höfundanöfnum í Stavrov's-röð. Vladimir Stavrov lést árið 1899, fátækur, einmana og einfættur.
Mörg andsvör (9)
Þriðjudagurinn 23. nóvember 2004

Einhverjir aðilar

Einhverjir aðilar vilja meina að hinn frægi Vladimir Stavrov (sem kallaði sig Alpha Betical þegar hann fór til enskumælandi landa) hafi aldrei verið til og sé bara uppspuni þess sem þetta ritar til að auka lestur á síðunni. Hefur verið þrýst á undirritaðan að segja af sér vegna þessa. Því vill hann taka það fram að hann vísar öllum svona órökstuddum og ómálefnalegum dylgjum á Bug, og segir við viðkomandi aðila: Þið getið bara sjálfir sagt af ykkur!
Eitt andsvar
Föstudagurinn 26. nóvember 2004

Nú er

Nú er í gangi lítil tilraun á vefsetri þessu. Eins og mjög glöggir lesendur hafa vafalaust tekið eftir er komin örlítil auglýsing hér efst á síðuna. Vefsetrinu var lofað fúlgum fjár fyrir að birta þessa auglýsingu þarna í einhvern tíma, þannig að nú er aðeins tímaspursmál hvenær fyrsta ávísunin kemur í póstinum. Þá getur undirritaður fylgst vel með því hver innistæða hans er orðin og hversu margir smella á auglýsingarnar, og munu fréttir þess efnis verða settar hér inn við tækifæri.
Mörg andsvör (4)
Föstudagurinn 26. nóvember 2004

Enn einn

Enn einn biti í púsluspilið. Nú er komið í ljós að Siggi, sem greinarhöfundur hefur leitað logandi ljósi að í marga mánuði, sást síðast á síðum buxum að leita að flibbahnappi fyrir föður sinn. Hann sást einnig í slagtogi við Sollu, sem var á bláum kjól. Ef einhver hefur séð Sigga eða Sollu, þá vinsamlegast hafið samband hér í bakflæðinu. Allar vísbendingar eru vel þegnar.
Mörg andsvör (8)
Mánudagurinn 29. nóvember 2004

Ég hef

Ég hef mikinn áhuga á því að stofna félag fyrir þá sem aðhyllast „immortalisma“ eða ódauðlegheit. Félagið myndi þá leggja mikið upp úr því að félagsmenn aðhyllist öllum stundum ódauðlegheit, og ef einhver deyr, þá verður hann/hún rekin(n) úr félaginu með skömm.
Mörg andsvör (6)
Föstudagurinn 3. desember 2004

Ég ætlaði

Ég ætlaði bara að sýna Bynna að ég kann líka latínu!

Íslensk þýðing á „Gaudeamus Igitur“

Guðmundur G. Ingason,
kann að leggja saman!
Guðmundur G. Ingason,
kann að leggja saman!
Hann leggur saman þrjá og fjóra,
hann leggur saman sjö og átta,
en hann kann samt ekki frádrátt.

Uprunalegur texti

Gaudeamus igitur
Juvenes dum sumus
Gaudeamus igitur
Juvenes dum sumus
Post jucundum juventutem
Post molestam senectutem
Nos habebit humus.
Eitt andsvar
Þriðjudagurinn 7. desember 2004

Hvað er

Hvað er „heimsálfur?“ Ég hef oft heyrt talað um þetta en aldrei haft hugmynd um hvað þetta er. Oft er talað um að þessir „heimsálfar“ séu sjö talsins en ekki veit ég tilgang þeirra. Líklega eru þeir til þess að vernda eitthvað en kannski hafa þeir bara engan tilgang. Hversu stórir eru þeir? Hvar búa þeir? Hvað borða þeir í morgunmat? Allar upplýsingar eru vel þegnar.
Mörg andsvör (19)
Fimmtudagurinn 9. desember 2004

Jólin, jólin

Nú þegar hátíð ljóss og friðar er að ganga í garð, er ekki úr vegi að gera smá jólalagakönnun. Hver eru þín uppáhaldsjólalög, kæri lesandi? Hvaða jólalag finnst þér afskaplega leiðinlegt? Svör óskast í formi bakflæðis.

Nokkur af uppáhaldslögum höfundar:

Botnleðja - Ave Maria
Drengirnir í Botnleðju hafa gert þetta gamla lag hans Bachs ódauðlegt.
Svala Björgvins - Ég hlakka svo til
Lag einhvern Ítala sem heitir Salerno (fyndið nafn) í frábærum flutningu Svölu.
Sniglabandið - Jólahjól
Í könnun sem Fréttablaðið gerði fyrir nokkrum árum var þetta valið versta jólalag Íslandssögunnar. Skil ekki af hverju.
Laddi - Snjókorn falla
Undirritaður, Gunni og Doddi sungu þetta lag nokkrum sinnum á sérvörulager Hagkaupa í kringum jólin 1999 við misjafnar undirtektir. Gott lag engu að síður.
Ramones - Merry Christmas (I don´t want to fight tonight)
Hressandi jólalag með strákunum í Ramones.
Mörg andsvör (14)
Þriðjudagurinn 14. desember 2004

Ég er

Ég er búinn í prófum. Það er erfitt að lýsa tilfinningum mínum en ég ætla mér að gera heiðarlega tilraun (Mig minnir að ég hafi gert eitthvað svipað eftir síðustu próf).
VÚÚÚÚÚHAHAHAHAHAHA! JÍÍÍÍÍÍÍHAAAAAAA! VÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHÚÚÚÚÚÚÚÚ!
Tíu sekúndna þögn. Lítur á úrið.
AHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA! HÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚHÚÚÚÚÚÚHÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ! Ahahaha... ehhh... jibbí.
Mörg andsvör (5)
Mánudagurinn 20. desember 2004

Ég sá

Ég sá auglýsingu um daginn þar sem verið var að auglýsa einhverja silfurlitaða þýska bíldruslu. Venjulega kippi ég mér ekkert upp við svona auglýsingar þar sem nóg er til af þeim, en þessi vakti hjá mér blendin viðbrögð, svo ekki sé meira sagt. Þarna er einhver skjáta að ganga úti á götu þar til hún sér glæsilega Lödubifreið (sem er reyndar búið að fara mjög illa með) renna letilega niður götuna, með engan bílstjóra undir stýri. Þeir sem þekkja til þessara bifreiða vita að þær eru ekkert alltof gjarnar á að fara af stað þó bílstjórinn vilji það, þannig að afar ólíklegt má telja að þær fari að renna af stað af sjálfsdáðum. Hvað um það, nú tekur stúlkan á sprett, hoppar upp á bílinn, (og beyglar sennilega vélarhlífina í leiðinni) vindur sér inn um rúðuna og stöðvar bílinn, rétt áður en hann skellur á silfurlitaða þýska bílnum. Ekki var hún að bjarga Lödunni frá beyglunni, því allir sem hafa séð stuðarana á þeim bílum vita að það sést ekkert á þeim eftir litla árekstra. Líklega var hún því að skemma Löduna til að bjarga einhverjum silfurlituðum bíl, framleiddum af pylsuætum í leðurbuxum! Hvílík hneysa! Ég heiti því hér með að ég mun ekki kaupa bíl af þessari tegund næstu mánuðina.
Mörg andsvör (5)
Mánudagurinn 20. desember 2004

Kvikmyndarýni Nýlega sá

Kvikmyndarýni

Nýlega sá ég kvikmyndina Spongebob Squarepants, sem myndi útleggjast sem Svampur Sveinsson á íslensku, í einhverju bíói í Grafarvogi. Mynd þessi fjallar ævintýri svamps, sem býr í þorpi sem heitir Bikini Bottom á hafsbotni. Í myndinni heyrist oft lag sem er eitthvað á þessa leið: Oh, Im a goofy goober yeah, you’re a goofy goober yeah, we're all goofy goobers yeah, goofy goofy goober goober yeah! Lag þetta er einkar melódískt og skemmtilegt, og ekki skemmir textinn fyrir. Annars er hápunktur myndarinnar þegar Hoffinn mætir á svæðið (Fyrir þá sem ekki vita þá er Hoffinn költhetjan David Hasselhoff). Hann vinnur þarna stóran leiksigur og ekki er ólíklegt að hann hljóti Óskarinn fyrir frammistöðu sína. Annars gef ég myndinni 27 stjörnur af 31 mögulegri.
Þess má svo geta að ég fékk jóladiskinn með Hoffinum í jólagjöf og er mjög ánægður með hann.
Mörg andsvör (6)
Miðvikudagurinn 29. desember 2004