Nú eru
Nú eru komnar nokkrar nýjungar á síðuna, t.d. nýtt lag vikunnar (sem er reyndar gáta) og nú geta lesendur einnig búið sér til sitt
eigið eintak af Trölla, þ.e. bíl höfundar. Hægt er að finna það undir listaverkunum hér fyrir ofan eða
hérna.
Mörg andsvör (6) Laugardagurinn 1. október 2005
Að öðrum góðum vini gengnum

Þorgeir skorargeir
(2003-2005)
Ég mátti alveg vita að það væri að koma að kveðjustund. Samt finnst mér ég ekki vera tilbúinn að kveðja. Þorgeir var búinn að þjóna mér dyggilega í næstum tvö ár og hafði hjálpað mér að skora mörg glæsileg mörk, en þar ber auðvitað hæst markið frá liðnu Íslandsmeistaramóti sem sást í sjónvarpinu. Þar sýndi þessi öldungur að þrátt fyrir langan feril gat hann enn skorað glæsileg mörk. Hann hafði komið með mér á allar æfingar, hvort sem er í HÍ eða Smáranum, og tekið þátt í tveimur Íslandsmeistaramótum frá því ég eignaðist hann. Það er geysilega mikil notkun, og hafði hann líka orðið fyrir ýmsu hnjaski um ævina en hann stóð það ávallt af sér eins og klettur. Þangað til í gær. Hann var að sinna sínu hlutverki í vörninni þegar hann lenti á milli fótanna á sóknarmanni sem féll við og það heyrðist hátt brak. Þá sá ég að Þorgeir hafði brotnað í átökunum og látist samstundis. Það rann tár úr auga mínu. Gamli vinur minn látinn. Ég hugga mig þó við það að hann er núna kominn til himnaríkis, þar sem skaftið er aftur orðið beint og eins margar kúlur til að slá og hugurinn girnist. Vertu sæll, gamli vinur, og hafðu það gott á nýjum stað.
Kylfa góð ég kveð þig nú,
með krystaltár á vanga.
Boltanum ei bifar þú,
og brotið skaftið langa.Mörg andsvör (10) Mánudagurinn 10. október 2005
Helvítis almannatengill
Fór svona allt í einu að pæla í því hvað Satan (Kölski, Belsebúbb, Lúsífer, Skrattinn, Siggi o.s.frv.) væri slappur í að prómótera sjálfan sig. Sjáið bara andstæðing hans, hann lætur skrifa stóra bók um ævintýri sín, t.d. hvernig hann bjó til Jörðina, sendi son sinn eingetinn til að deyja á krossinum fyrir syndir mannskyns, eyddi næstum öllu af jörðinni með flóðum og svo mætti lengi telja. Þá starfrækir hann samkunduhús út um allan heim þangað sem fólk kemur til að lofa hann og dá. Ég veit ekki til þess að það sé til eitt hús Satans í heiminum, hvað þá á Íslandi. Því legg ég það til að Satan (eða Helvíti ehf.) ráði til sín eitthvað stórt og virt almannatengslafyrirtæki til að kynna sig fyrir heiminum. Reisa samkunduhús, skrifa eins og eina bók um hann, senda út fréttatilkynningar til fjölmiðla, það væri góð byrjun. Svo þarf auðvitað að finna einhverja fræga manneskju til að gerast fjölmiðlafulltrúi fyrir Helvíti ehf. Einhverjar hugmyndir um hver það ætti að vera?
Aths. Höfundur þekkir ekkert til Satans og styður ekki satanisma.Mörg andsvör (5) Þriðjudagurinn 11. október 2005
Er búinn
Er búinn að vera að fikta í
þrívíddarteikniforriti af og til undanfarið. Afraksturinn er
þessi glæsilega bandýkylfa. Þetta er frábær hreyfimynd í frekar lélegum gæðum, en það kemur ekki að sök. Þeir sem halda því fram, að höfundur þessarar síðu sé ekki listrænn, eftir að hafa séð hreyfimyndina, þeir... þeir... þeir mega bara eiga sig!
Annars er vert að benda á að það er kominn nýr hlekkur hérna fyrir ofan, en það er hlekkur á nýja og glæsilega
blóksíðu Sveinbjörns sem kallast „ritstífla“, en það er reyndar rangnefni. Síðan inniheldur lengstu blókfærslu sem ég hef séð, og ég hef sko séð langar færslur.
Mörg andsvör (14) Mánudagurinn 17. október 2005
Gömul vinkona
Gömul vinkona í nýjum búningiLoksins er komið að því að Kúbolla sýni sig í þrívídd. Nú geta lesendur síðunnar séð
Kúbollu í nýjum víddum. Síðasta listaverk á þessari síðu var rakkað niður af öfundsjúkum gagnrýnendum fyrir að það vantaði tónlist, en nú geta þeir ekki notað þá klisju, heldur munu þeir gapa af undrun og hækka í botn til að njóta þessa stórvirkis til fullnustu. Ekkert hefur verið til sparað og öllu tjaldað til svo upplifunin verði sem mest. Sá sem veit hvaða hljómsveit á lagið sem hljómar þarna undir fær tíu stig.
Aths. Einnig er hægt að horfa á myndbandið í lélegum gæðum, en ekki er mælt með því.Mörg andsvör (14) Laugardagurinn 22. október 2005
Ég rakst
Ég rakst á
þessa síðu (takið eftir laginu í bakgrunni, það gerist ekki svalara en þetta!) í gegnum
b2.is. Þessi síða er tileinkuð sjálfum Hoffinum, eða David Hasselhoff vini okkar. Í tilefni af þessu, þá fletti ég honum upp á
IMDB.com og komst að því að hann er að framleiða og leika í myndinni Knight Rider, sem er byggð á gömlum sjónvarpsþáttum sem hann lék einnig í. Ég hef reyndar ekki séð þættina, en ég átti Knight Rider tölvuspil þegar ég var lítill. Einnig komst ég að því að fyrsta kvikmyndahlutverk hans var í kvikmyndinni Revenge of the cheerleaders árið 1976 þar sem hann lék Boner(!). Maðurinn er greinilega mjög fjölhæfur listamaður, hann er leikari, söngvari (ég á frábæra jólaplötu með honum), framleiðandi, leikstjóri o.s.frv. og ekki má gleyma því þegar hann braut Berlínarmúrinn niður einn síns liðs með söng árið 1989.
Mörg andsvör (13) Föstudagurinn 28. október 2005
Jæja, ég
Jæja, ég held að ég geti alveg eins
hætt í skóla núna.
Mörg andsvör (4) Miðvikudagurinn 16. nóvember 2005
Opið spjall.Er
Opið spjall.Er kötturinn hættur að svara nafni? Er gólfið kalt? Er tónlist í heiminum að versna? Hvað finnst þér um El Niño?
Ég ætla hér með að bjóða lesendum síðunnar að skrifa um þau mál sem brenna heitast á þeim þessa dagana. Spjallkerfið er opið fyrir hvern sem er, og því um að gera að láta heiminn vita hvað þér finnst að mætti bæta, en einnig má tala um það sem vel er gert (t.d. hvað þessi síða er frábær).
Mörg andsvör (9) Miðvikudagurinn 23. nóvember 2005
Ég var
Ég var að komast að því nýlega að það er ekki hægt að skrifa download.php í msn samtali, það er blokkað á msn þjóninum. Líklega er þetta gert öryggisins vegna, en athygli vekur þó að download.asp er ekki blokkað, en það er frá microsoft eins og flestir vita, þannig að nú munu líklega blossa upp miklar samsæriskenningar. Til að gæta sanngirni er þó rétt að benda á að ekki er hægt að skrifa blabla.jpg.scr heldur, enda getur það verið vírus.
Mörg andsvör (18) Laugardagurinn 3. desember 2005
Eins og
Eins og (jóla)glöggir lesendur hafa líklega tekið eftir, þá eru komnar glæsilegar nýjungar á vefsetrið. Nú er hægt að sjá hvaða jólasveinn kemur til byggða (eða fer heim) næstu nótt, og einnig hve margir dagar eru til jóla. Engin ábyrgð er tekin á að þetta muni virka allt eftir jól og áramót, þar sem ég hef ekki lagt mikinn metnað í að aflúsa kóðann, og mun ekki vera á landinu til að laga það fyrr en 2. janúar, þannig að ef það fara að birtast mínustölur eða eitthvað þaðan af verra eftir 24. desember þá verður bara að hafa það. Ég er reyndar nokkuð viss um að það verði ekki deilt með núlli þannig að heimurinn mun a.m.k. ekki farast á meðan.
Mörg andsvör (10) Þriðjudagurinn 13. desember 2005
Maður er
Maður er bara orðinn alveg brjálaður í þessum prófum, bætandi við hlutum á þessa síðu eins og ég veit ekki hvað. Þessu lýkur þó von bráðar. Sem betur fer.
Mörg andsvör (5) Sunnudagurinn 18. desember 2005
Ég sá
Ég sá alveg ótrúlega skemmtilega forsíðu á DV í gær, en þar var umfjöllun um prest á Hvanneyri sem sagði börnunum á staðnum að jólasveinarnir væru ekki til. Foreldrarnir voru eitthvað ósáttir við þetta þar sem hann var að tala við allt niður í sex ára gömul börn, og svo fylgdi tilvitnun í prestinn: „Ég gat bara ekki logið að börnunum!“ Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Þetta kalla ég alvöru fréttamennsku! Maður hlýtur samt að pæla í því hvort hann myndi ljúga ef börnin spyrðu hann að því hvort Jesús sé til...
Mörg andsvör (4) Þriðjudagurinn 20. desember 2005
Skemmtileg gáta
Eigandi vefsíðunnar er á leiðinni til útlanda yfir jólin og því verður fátt um skrif hér fyrr en eftir áramótin. Duglegir lesendur geta þó kíkt hér inn reglulega yfir jólin, t.d. athugað hvort nýjungarnar virki sem skyldi og skrafað um jólin og áramótin á spjallkerfinu. Þá má einnig geta þess að það er komið nýtt lag vikunnar. Þá er ég búinn að taka aðeins til í hlekkjunum og bæta við Gumma bandýmanni, en ég hvet alla til að skrifa á síðuna hans að hann eigi að asnast til að mæta í bandý á næsta ári.
Smá þraut fyrir þá sem hafa ekkert að geraFékk þessa þraut á prófi sem ég var í um daginn, og leysti hana nokkuð skjótt og örugglega. Þrautin hljóðar svo:
Þetta er samlagning í tugakerfinu þar sem hver bókstafur stendur fyrir sitthvorn tölustafinn. Þið eigið að finna alla tölustafina.
   RACE
+ RACE
---------
  THERE
Ég vil ekkert fá svarið í bakflæðinu, þetta er bara svona ykkur til skemmtunar.
Mörg andsvör (17) Miðvikudagurinn 21. desember 2005