Haffi!


Skemmtileg áhugamál

Ég legg til að það verði stofnuð ný áhugafélög um þessi tvö skemmtilegu áhugamál mín. Fyrra áhugamálið er að finna fyndnar prentvillur með Google leitarvélinni. Dæmi:
Jaðarför
Nágreni
Vítishvalir

Reyndar eru þetta ekki alltaf prentvillur, því stundum eru orðin skrifuð viljandi á þennan veg.

Hitt áhugamálið er að stofna áhugafélög.
Mörg andsvör (10)
Föstudagurinn 5. október 2007, kl. 12:25

Sniðug leið til að nota RSS

Nú vil ég biðja lesendur um að nýta sér hinn sniðuga RSS möguleika sem ég bætti við á síðuna fyrir skemmstu. Þetta er afar einfalt, en ég ætla samt að setja hér inn smá leiðbeiningar með myndum svo það sé alveg öruggt að hver sem er geti gert þetta. Þessar leiðbeiningar gilda aðeins fyrir Firefox, þó ég efi ekki að Opera hafi einhvern mjög góðan RSS skoðara innbyggðan.
Eins og sjá má í Firefox, þá birtist RSS merki í stikunni efst, og skulum við smella á það og velja pistlana:
mynd 1

Því næst veljum við „Subscribe Now“ með „Live Bookmarks“:
mynd 2

Nú smellum við bara á „Add“ og þá er komið bókamerki á bókamerkjastikuna. Nú skulum við gera það sama við athugasemdirnar. Að sjálfsögðu má bæta við fleiri síðum, t.d. einhverjum skrítlum eða öðru sem maður vill fylgjast með.

Nú förum við á þessa síðu og setjum inn „LiveClick“ viðbótina sem er afar einfalt. Einungis þarf að smella á „Install Now“, og restin ætti að vera leikur einn. Núna viljum við hins vegar breyta nokkrum stillingum í LiveClick og til þess förum við í „Tools“ og „LiveClick options“. Undir „Menus“ skulum við hafa stillingarnar eins og á þessari mynd:
mynd 3

Undir „Monitors“ skulum við haka í alla möguleika:
mynd 4

Nú erum við komin með nokkuð fínar stillingar og því auðvelt að fylgjast með öllu sem er að gerast á síðunni. Þó gæti einhverjum fundist bókamerkjastikan vera orðin of troðin af bókamerkjum, en það er einfalt mál að taka til hendinni þar. Við förum í „Bookmarks“ og „Organize Bookmarks“. Þar hægri smellum við á „Bookmarks Toolbar“ og bætum við nýrri möppu:
mynd 5

Við gefum möppunni gott nafn og munum að draga hana inn í „Bookmarks Toolbar“ svo hún birtist örugglega á bókamerkjastikunni. Nú drögum við öll hin bókamerkin inn í þessa möppu, og voilà! Við erum komin með rosa fína möppu, og nú er ekkert mál að fylgjast með því sem er að gerast á netinu.
Mörg andsvör (20)
Þriðjudagurinn 9. október 2007, kl. 23:10

Hættuleg tilraun

Ég ætla að framkvæma hér tilraun, sem gæti verið stórhættuleg. Hugmyndina fékk ég eftir að hafa lesið nýlega athugasemd frá Oddgeiri á síðunni hennar Evu.
Tilraunin verður framkvæmd í formi tveggja athugasemda við þessa færslu, en ég verð að vara fólk við því að lesa þessar athugasemdir. Þeir sem eru mjög stærðfræðilega sinnaðir og hugsa eins og tölvur ættu alls ekki að lesa lengra.
Mörg andsvör (9)
Sunnudagurinn 14. október 2007, kl. 19:16

Upprisa Bynna

Mér er það mikill heiður að tilkynna að Bynni hefur opnað nýja blóksíðu. Síða sú er byggð á kerfi undirritaðs sem kallast Hog (Haffi's blog) 3.0. Allir eldri pistlar og athugasemdir við þá voru færðir yfir í nýja kerfið þ.a. engin gögn hafa horfið. Vonandi verður Bynni duglegur að skrifa hugrenningar sínar á þessa nýju síðu, og óska ég honum hér með til hamingju með þetta glæsilega vefsetur.
Mörg andsvör (18)
Mánudagurinn 22. október 2007, kl. 23:26

„Gætum við fengið að lesa eitthvað hástemmt?“

Ég hef fundið hjá mér ríka þörf undanfarið til að skrifa eitthvað hástemmt, eitthvað sem gæti breytt lífi fólks. Eitthvað um hamingjuna, óttann eða tilgang lífsins, eitthvað sem yrði vitnað í um aldir alda.
Hins vegar virðist andinn ekki koma yfir mig þannig að ég læt nægja að birta hér texta með hljómsveitinni Scooter:

Zebras Crossing The Street

Leaving the whole week behind
stop the trouble, open your mind.
Is it the life you want to live?
Clear up your mind, zebras crossing the street,
loosing control, everything is in your hand!
Running around, down the street,
buying some frozen food, put it in a fridge.
Turn up the music louder.

Leaving the whole week behind
stop the trouble, open your mind.
Is it the life you want to live?
Clear up your mind, zebras crossing the street,
loosing control, everything is in your hand!
Running around, down the street,
buying some frozen food, put it in a fridge.
Turn up the music louder.
Thank god it's friday ...

Mörg andsvör (7)
Miðvikudagurinn 7. nóvember 2007, kl. 13:44

iSími

Ég vil bara láta alla lesendur mína vita af því að iSíminn (e. iPhone) er ekki svöl græja, og ég vona að enginn kaupi þennan síma til að reyna að láta líta út fyrir að hann/hún sé svalarari en ella. Ég viðurkenni fúslega að ég hef ekki séð þetta dót með eigin augum, en maður hefur heyrt það mikið um þetta að ég tel mig a.m.k. vita nóg. Þegar maður heyrir svo af fólki sem getur ekki beðið eftir að síminn sé seldur á Íslandi til að geta keypt hann, og það án þess að vita nokkuð meira en að þetta sé bara tæki sem er flott í útliti, þá fara ýmsar viðvörunarbjöllur að hringja.
Ég þekki sjálfur ípota (e. iPod) af eigin raun sem er svipað tæki frá sama framleiðanda, því ég féll í gildru markaðsdeildar Eplis (e. Apple) og fjárfesti í þannig græju fyrir einum tveimur árum. Ég tek þó fram að ípotinn er ágætur til síns brúks, hann getur spilað tónlist af hörðum diski (vá!) og lítur jú ekkert illa út, en mér hefur stundum fundist dýrkunin á þessu tæki jaðra við brjálæði.
Til dæmis eru lögin geymd í asnalegum gagnagrunni sem aðeins iTunes á að hafa aðgang að (núna er að sjálfsögðu til slatti af forritum sem geta það, en það skiptir þó ekki máli hér og nú), þ.a. lengi vel var ekki hægt að gera neitt við ípota nema með því að vera með Glugga (e. Windows) eða Maka Stýrikerfi (e. Mac OS) uppsett á tölvunni sinni. Einnig getur hann ekki spilað alvöru snið eins og Ogg Vorbis sem er betra snið en hið gamla MP3 og ekki skemmir fyrir að það er nefnt eftir persónu úr Diskheims (e. Discworld) bók.
Hámark fáránleikans er svo að í Mogganum í dag er verið að leita eftir íslensku nýyrði fyrir ípota, sem mér finnst álíka gáfulegt og að reyna að finna nýyrði fyrir Toyota Corolla eða Pepsi.
Svona til að ljúka þessari umræðu má benda á grein á vefnum sem bendir kurteislega á það að það eru til flottari símar á markaðnum en iSíminn, en því miður er grein þessi á ensku, en í lauslegri þýðingu er fyrirsögn hennar á þessa leið: „iSíminn er hægðasnefill, sem og andlit þitt.“

Ath. Þessi grein er rituð á degi íslenskrar tungu, og því er reynt að forðast óþarfa enskuslettur.
Mörg andsvör (8)
Föstudagurinn 16. nóvember 2007, kl. 16:43

Lýðræðið lifir

Ég hef miklar skoðanir á mörgum málefnum, svo mörgum reyndar að ég á í vandræðum með að finna málefni til að hafa skoðanir á. Því bið ég lesendur um að benda mér á málefni sem þeir vilja að ég skrifi hér um, því þeir vita sem er að ég er alls óhræddur við að stinga á kýlum og veigra mér ekki við að segja mína skoðun á hinum ýmsu málefnum.
Ég mun ekki hika við að viðhafa stór orð og mega lesendur búast við því að skrif mín verði mjög harðorð. Sem dæmi gæti ég átt til að skrifa hluti eins og „afar hroðvirknislegt“, „viðskotaillt þýði“ og „óhress.“
Mörg andsvör (6)
Mánudagurinn 26. nóvember 2007, kl. 15:02

Tölvupóstur til Brimborgar

Nú þekkja kannski einhverjir lesenda til fyrirtækisins Brimborgar, en í mínum vinnustað höfum við mjög gaman að dagblaðaauglýsingum þeirra. Nýlegt dæmi um það er auglýsing á Ford Escape sem birtist með fyrirsögninni: „Nýtt tákn um félagslegan hreyfanleika.“ Ég efast um að nokkur geti skilgreint hugtakið „félagslegan hreyfanleika“ almennilega.
Eftir að hafa fylgst með þessum skemmtilegu auglýsingum um nokkra hríð þá tókum við (ég og einn vinnufélagi) þá ákvörðun að senda lítinn tölvupóst til Brimborgar til að forvitnast um hugsunina á bakvið þessar auglýsingar. Pósturinn var á þessa leið:

Ágæti viðtakandi,

Eftir að hafa fylgst með harla óvenjulegum en skemmtilegum auglýsingum Brimborgar ehf. í dagblöðum um nokkurt skeið, þá hafa vaknað hjá mér örfáar spurningar sem ég væri afar þakklátur að fá svör við.

Í fyrsta lagi er talað um í dagblaðaauglýsingu að nýr Ford Escapé sé „nýtt tákn um félagslegan hreyfanleika" og gefið í skyn að téður bíll auki félagslegan hreyfanleika þeirra einstaklinga sem aka honum. Því langar mig að vita hvort þið hafið undir höndum samanburðartöflur yfir félagslegan hreyfanleika algengustu bíltegunda, því að sjálfsögðu hefur félagslegur hreyfanleiki mikið að segja þegar kaupendur fara út í þá stóru fjárfestingu sem nýr bíll að sjálfsögðu er. Í framhaldi af því langar mig að forvitnast um hvort Brimborg ehf. bjóði upp á heildrænar einstaklingsmiðaðar lausnir á sviði félagslegs hreyfanleika með tilliti til grunnþarfa hins almenna neytanda.

Í öðru lagi er í nýrri auglýsingu um Volvo XC70 sagt að tvær gáfur renni saman í eina sérgáfu og því sé 1+1=3. Nú er ég ekki sleipur í stærðfræðinni en þó fyndist mér réttara að segja að þegar tvær gáfur renna saman í eina, þá sé 1+1=1, þó það sé ekki mikið réttara stærðfræðilega séð. Einnig væri gaman að fá útlistum á þessum tveim gáfum sem saman mynda eina sérgáfu, og hvernig útkoman er.

Í þriðja lagi fylgir öllum auglýsingum Brimborgar ehf. slagorðið: „Öruggur staður til að vera á." Nú er ég mikill áhugamaður um öryggismál og að sjálfsögðu vill hinn almenni neytandi vita að öryggi hans sé tryggt þegar hann skoðar bíla, því bílaumboð eru varhugaverðir staðir þar sem þar standa oft stórir bílar innanhúss á gólfefni sem þeir eru ekki hannaðir fyrir. Því liggur beinast við að spyrja að því hvaða úrræði þið hafið til að tryggja öryggi einstaklinga sem skoða bíla hjá ykkur, t.d. hvort bílarnir séu á dekkjum sem gerð eru fyrir hin ýmsu gólfefni, eða hvort hægt sé að fá lánaðan hjálm áður en farið er inn í húsið eða þarf maður að koma með eigin hjálm o.s.frv? Hafið þið einhverjar rannsóknir undir höndum, t.d. frá Vinnueftirlitinu, sem sýna fram á að öryggi sé mjög gott hjá ykkur og er hægt að nálgast skjöl um það einhvers staðar?

Með fyrirfram þökkum og von um greinargóð svör,
Böðvar H.
Forstjóri

Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 30. nóvember 2007, kl. 15:00

Hverju eruð þið að leita að?

Ég var að skoða tölfræði á síðunni minni fyrir desember, og ég varð eiginlega að deila með ykkur listanum yfir þau leitarorð á Google sem hafa skilað fólki inn á þessa síðu. Feitletraður texti er frá mér.

LeitarorðFjöldi
haffi9
lí­kfundur neskaupstað (?)1
krampi1
listaverkið einmana1
dýraklám (?!)1
fordómar um geimverur (???)1
noerd1
intitle index.of mp3|mp4|avi hvar - heim (Líklega einhver að leita að plötu Sigur Rósar, Hvarf/Heim)1
skemmtilegt1
atkvæði í­ kvenrí­mi1
ég hlakka svo til ég hlakka alltaf svo til1

Mörg andsvör (7)
Miðvikudagurinn 5. desember 2007, kl. 14:58

Jólin, jólin

Nú er myrkur og volæði mikið,
og morgunninn gleður ei neinn.
Einn rauðklæddur á augnablikið,
hann er fokking jólasveinn.
Mörg andsvör (6)
Fimmtudagurinn 20. desember 2007, kl. 23:13

Kók

Nú hættum við Eva að drekka kók og aðra gosdrykki í sumar, og ákváðum að við myndum ekki drekka svoleiðis nema af einhverju tilefni, eins og t.d. um jólin. Þess vegna fékk ég mér kók núna um jólin í fyrsta skipti í næstum hálft ár, og ég verð að segja að það bragðast betur eftir því sem það er drukkið sjaldnar. Það þýðir þó ekki að ég muni aftur hefja gosþamb, þar sem ég hef aldrei verið sérstaklega háður því.
Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 28. desember 2007, kl. 18:51

Innflutningspartý

Nú er ekki mikið um innflutningspartý, jafnvel svo lítið að talað er um gríðarlegan skort á þeim í þjóðfélaginu. Ef einhver veit um innflutningspartý, þá er hann vinsamlegast beðinn um að láta yfirvöld vita. Þetta ástand er engum til sóma og tel ég að allir hlutaðeigandi ættu að fara í rækilega naflaskoðun.
Mörg andsvör (4)
Sunnudagurinn 30. desember 2007, kl. 00:40

Eru símar hin nýju hjálpartæki ástarlífsins?

Nú er það altalað að símar séu orðnir vinsælir sem hjálpartæki ástarlífsins. Ég spyr: Hver ber ábyrgð á þessu?! Er fólk virkilega farið að nota gömlu skífusímana til að krydda kynlífið? Á hvaða hátt?
Ég er einkar óhress með þessa þróun, og tel að úrkynjun þjóðfélagsins sé komin út fyrir allan þjófabálk.
Eitt andsvar
Sunnudagurinn 30. desember 2007, kl. 00:48

Fólk sem gleymir að halda upp á blókafmæli

Ég var nýlega beðinn um að lýsa skoðun minni á fólki sem gleymir að halda upp á fimm ára blókafmæli sitt. Mín skoðun er sú að þannig fólk ætti virkilega að taka sig saman í andlitinu. Ég vona að ég hafi ekki verið of harðorður, en þetta er mín skoðun og ég stend við hana.
Mörg andsvör (3)
Sunnudagurinn 30. desember 2007, kl. 00:54