Nú er nánast alveg ákveðið að Rússar láni okkur háar fjárhæðir til að bjarga Íslandi úr fjármálakrísunni. Ég tel að að það sé ýmsum mikilvægum spurningum ósvarað um skilyrði fyrir lántökunni og afleiðingar hennar en ein spurning stendur þó upp úr:
Þýðir þetta að Lödur muni aftur bruna um þjóðvegi landsins? Mörg andsvör (2) Þriðjudagurinn 7. október 2008, kl. 13:50
Botnleðja - Ave Maria
Ég hef tekið eftir því, með hjálp vefgreininga, að á síðuna koma u.þ.b. 10 manns á mánuði sem eru að leita að laginu Ave Maria með Botnleðju sem ég setti inn fyrir löngu síðan í þessari færslu. Nú veit ég ekki nákvæmlega hversu margir sækja svo lagið en gera má ráð fyrir að ég hafi hjálpað a.m.k. nokkrum tugum Íslendinga að eiga áhyggjulaus og ánægjuleg jól. Mér sýnist sem mín síða komi fyrst upp ef maður slær inn leitarorðin "Botnleðja Ave Maria" á Google og þessi færsla ætti að tryggja það að síðan haldist áfram ofarlega. Annars vil ég bara biðja þá sem sækja lagið um að kvitta í gestabókina og segja frá í stuttu máli hvernig þetta bjargaði jólunum fyrir þeim.
Ég er alltaf svo seinn að skrifa um málefni líðandi stundar. Núna er kreppan orðin nokkurra vikna gömul og þar með orðin „old news“ þ.a. það nennir enginn að blóka um hana lengur. Ég veit ekki hvort ég hafi einhverju við það að bæta. Ég hef samt tekið eftir því að það er í tísku að skeyta orðinu „kreppa“ fyrir framan öll orð. Við skulum skoða dæmi: Kreppublók
Kreppujól
Kreppukreppa
Kreppufjölskyldu- og kreppuhúsdýragarðurinn
En er samt ekki hægt að snúa þessu við og nota þetta orð á jákvæðan hátt? Sjáum nokkur dæmi: „Þetta var kreppugóð kvikmynd, Geir!“
„Gvöð hvað þessir þessir skór eru kreppulegir við þennan kjól!“
„Það er svo kreppandi að fá sér lúr eftir erfiðan vinnudag.“
„Þú ert alltaf svo stífur Maggi, reyndu að vera kreppaður eins og hann Siggi!“
Ef við temjum okkur þetta málfar eigum við kannski möguleika á að vinna bug á kreppunni! Þegar næsta góðæri kemur þá verður þetta orð dottið úr tísku þ.a. það væri sniðugt að hugsa fram í tímann og finna nýtt orð fyrir það tímabil. Mörg andsvör (6) Sunnudagurinn 26. október 2008, kl. 22:13
Færeyjar
Færeyingar eru bestu vinir Íslendinga þessa stundina, en þessir bræður okkar í Atlantshafinu voru að veita okkur nokkuð stórt gjaldeyrislán og það án þess að rukka vexti! Þá var það einnig rifjað upp í Mogganum í dag að Færeyingar studdu Vestmannaeyinga rausnarlega í eldgosinu '73 og í ofanálag söfnuðu þeir töluverðum fjárhæðum í landssöfnun til styrktar fólkinu sem missti allt sitt í snjóflóðinu á Súðavík! Í Mogganum er líka bent á að við höfum aldrei gert neitt fyrir Færeyinga á móti. Mig rekur heldur ekki minni til þess að við höfum staðið í deilum við Færeyinga, en við höfum oft átt í þrætum við frændfólk okkar á og við Skandinavíuskaga.
Ég vil því ganga fram fyrir skjöldu og lýsa því yfir opinberlega að ég mun heimsækja Færeyjar sem ferðamaður einhvern tíma á næstu árum (ef ég hef efni á því). Hverjir koma með? Auk þess mun ég styðja þá dyggilega þegar og ef þeir fara út í það að fá sjálfstæði frá Dönum. Mörg andsvör (6) Miðvikudagurinn 29. október 2008, kl. 13:44
Aftur um RSS
Ég reyndi einu sinni fyrir langa löngu að sannfæra lesendur mína um ágæti RSS staðalsins, en ég held að það hafi ekki tekist sem skyldi. Þar má vera að um hafi verið að kenna að of mikið vesen var að setja upp LiveClick viðbótina í Firefox og stilla hana til.
Nú ætla ég því að benda á aðra og betri lausn sem er Google Reader. Fyrir þá sem þegar eru með t.d. Gmail póstfang þarf ekki að skrá sig sérstaklega inn á Reader, þið farið einfaldlega inn á google.com/reader (auk þess má smella Reader valmöguleikann í tólastikunni í Gmail).
Til að einfalda málið enn meira ætla ég að láta ykkur í té OPML skrá (sem er að einhverju leyti byggð á mínum lista, með augljósum viðbótum samt) sem þið getið notað til að byrja ykkar seiðandi ferð inn í draumaheim RSS. Þið einfaldlega farið í Settings efst til vinstri, veljið þar Import/Export og þar setjið þið inn OPML skrána sem minnst var á áðan. Þá eruð þið tilbúin! Ég mæli svo með því að þið farið í All items vinstra megin og smellið á Mark all as read hnappinn fyrir miðju til að auðvelda ykkur að fylgjast með nýjum færslum. Fyrir lengra komna er svo að öllum líkindum hægt að fá eitthvað tól sem lætur vita af nýjum færslum en ég efast um að fólk hafi almennt mikla þörf fyrir það. Svo með tíð og tíma getið þið bætt alls konar skemmtilegum hlutum inn á þetta (og auðvitað hent út hlutum sem ykkur finnast leiðinlegir). Mörg andsvör (12) Mánudagurinn 10. nóvember 2008, kl. 20:27
Brandari
Hér er lausleg þýðing mín á frábærum brandara sem ég rakst á nýlega:
Óendanlega margir stærðfræðingar ganga inn á bar. Fyrsti stærðfræðingurinn pantar sér bjór. Næsti stærðfræðingurinn pantar sér hálfan bjór og sá þriðji pantar sér kvartbjór.
Áður en sá fjórði getur pantað segir barþjónninn: „Þið eruð nú meiri fávitarnir!“ og lætur þá fá tvo bjóra. Mörg andsvör (2) Fimmtudagurinn 20. nóvember 2008, kl. 11:10
Útrás fyrir sköpunarþörf
Ég ætla hér með að bjóða lesendum mínum að fá útrás fyrir sköpunarþörf sína í athugasemdakerfinu. Sagan sýnir okkur að þegar skóinn kreppir þá blómstrar sköpunargáfan hjá alþýðunni.
Þið megið skrifa ferskeytlur, atómljóð, hugsanir ykkar, ASCII teikningar, smásögur, myndbönd (Þá þurfið þið auðvitað fyrst að hlaða þeim inn annars staðar og setja vefslóð hér) o.s.frv. Mörg andsvör (6) Föstudagurinn 5. desember 2008, kl. 15:17
Íslenskur arkitektúr er drasl (og arkitektar eru asnar)
Á þetta vefsetur hefur alltaf vantað sleggjudóma og alhæfingar. Núna tel ég að það sé búið að bæta úr því.
Af hverju gildir höfundarréttur um verk arkitekta? Af hverju geta arkitektar (eða börn þeirra/erfingjar ef þeir eru látnir) haft eitthvað með það að segja hvað fólk gerir eða gerir ekki við sín eigin hús? Athugið að hér er verið að tala um breytingar sem falla innan ramma deiliskipulags og annarra reglugerða. T.d. var búið að banna ýmislegt í blokkinni sem ég bjó í áður í Álftamýri eins og að setja upp litlar girðingar á neðstu hæð, og þar áttu í hlut börn arkitektsins.
Mér finnst þetta ekki vera sambærilegt við höfundarrétt að t.d. tónlist, þetta er álíka gáfulegt og ef tónskáld gætu ráðið því í hvernig hátölurum þú spilar tónlistina og hversu hátt. Ég tek samt fram að ég er ekki vel að mér í lögum um höfundarrétt og gæti verið að fara með fleipur. Eitt andsvar Mánudagurinn 8. desember 2008, kl. 14:53
ÉG HEF ALDREI SÉÐ ANNAÐ EINS!
Ég er nánast orðlaus. Ég hélt ég hefði séð allt, en svo var greinilega ekki. Núna hef ég hins vegar séð allt, OG ÞÁ MEINA ÉG ALLT!!! ÞIÐ MUNIÐ EKKI TRÚA YKKAR EIGIN AUGUM!!! ÉG HÉLT FYRST AÐ ÞETTA HLYTI AÐ VERA FALSAÐ, EN NEI ÞETTA ER SKO 100% RAUNVERULEGT!!! SJÁIÐ BARA MEÐ EIGIN AUGUM!
Þetta er ótrúlegt! Hann er bara ofan í vatninu OG HONUM FINNST ÞAÐ BARA FÍNT! HANN FÆR MÖRG TÆKIFÆRI TIL AÐ FARA UPP ÚR VATNINU EN HANN HELDUR BARA ÁFRAM AÐ VERA ÞAR! SJITT, ERTU EKKI AÐ GRÍNAST Í MÉR? GUÐ MINN ALMÁTTUGUR, ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI ENNÞÁ AÐ ÉG HAFI SÉÐ ÞETTA GERAST! ÞEGAR MAÐUR HELDUR AÐ INTERNETIÐ GETI EKKI LENGUR KOMIÐ MANNI Á ÓVART ÞÁ ER ÞESSARI ÍSKÖLDU OG BLAUTU TUSKU SLENGT BEINT FRAMAN Í MANN ÞEGAR SÍST SKYLDI!
Ég er ekki frá því að ég... ég bara... ég veit bara ekki hvað ég á að segja. Ég get ekki komið orðum að tilfinningum mínum. En þegar ég horfi á þetta aftur þá... HANN HANGIR BARA ENDALAUST Í VATNINU!!! ÞAÐ VITA ALLIR AÐ HONUM Á AÐ LÍKA ILLA VIÐ VATN!!! HVERNIG GETUR HANN ÞETTA? HJÁLPI MÉR ALLIR HEILAGIR, ÉG... ÉG TRÚI ÞESSU EKKI! HANN HELDUR BARA ÁFRAM ENDALAUST!!! ÉG GET EKKI MEIR!!! Mörg andsvör (15) Fimmtudagurinn 11. desember 2008, kl. 17:02
Fleiri jólalög
Bara svona ef einhver hefur áhuga, þá datt mér í hug að setja inn fleiri hress jólalög í tilefni þess að, jú, það eru víst að koma jól.
Ég setti inn lítið myndband af kettlingi nýlega og það virðist hafa komið fullt af fólki til að skoða það, a.m.k. kom slatti af athugasemdum frá fólki sem ekki hefur komið hingað áður. Sem betur fer er ég með vefgreiningar frá Google þ.a. ég get séð hvaðan umferðin kom. Á fyrstu myndinni má sjá fjölda gesta á síðunni per dag og það er greinilegt að eitthvað svakalegt gerðist þann 12. desember. Þann dag komu 440 gestir. Við skulum skoða mynd:
Svo er áhugavert að vita hvaðan allir þessir gestir koma:
Þetta segir okkur að einhver hefur sett þessa færslu inn á B2.is sem er síða sem ég er reyndar sjálfur fyrir löngu hættur að skoða. Ég skil samt ekki af hverju þetta kattarmyndband vekur áhuga fólks, ég ætla samt að horfa á það aftur til að komast til botns... HANN ER RENNANDI BLAUTUR OFAN Í BAÐKARINU OG HANN HELDUR ÁFRAM AÐ LEIKA SÉR LÍKT OG ENGINN SÉ MORGUNDAGURINN! HVERNIG GETUR ÞETTA VERIÐ?! DETTI MÉR ALLAR DAUÐAR LÝS ÚR HÖFÐI! ÉG HEF ALDREI SÉÐ ANNAÐ EINS!!! Mörg andsvör (8) Fimmtudagurinn 18. desember 2008, kl. 10:56