Haffi!


Hmmm: Er

Hmmm: Er það satt að konur (og kallar???) geti fengið fullnægingu ef þær hnerra 11 sinnum í röð?

Rétt er að taka fram að rannsóknir á þessu eru mjög erfiðar í framkvæmd en ákveðið var að fá 50 menn og konur með kvef til að standa kyrr í 24 tíma til að hægt væri að fylgjast með því hvort eitthvað þeirra hnerraði ellefu sinnum í röð. Skemmst er frá því að segja að enginn hnerraði oftar en fjórum sinnum í röð og þeir sem það gerðu sögðu að tilfinningin væri eins og um það bil einn tíundi af fullnægingu. Þess vegna má fullyrða að þeir sem nái því að hnerra ellefu sinnum í röð eða oftar nái nokkuð nálægt því að fá fullnægingu. Strax hefur verið hafist handa við að framleiða lyf sem fær fólk til að hnerra oft og hratt í stuttan tíma.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 3. apríl 2003

Ég hef

Ég hef ákveðið að taka við fyrirspurnum á síðunni minni í gegnum korktöfluna (e. tagboard) og mun ég reyna að svara þeim eftir bestu getu. Fyrirspurnir mega vera af öllum toga, vísindalegar, heimspekilegar, heimskulegar o.s.frv.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 3. apríl 2003

Hmmm: Er

Hmmm: Er það satt að rauðir bílar lenda oftast í árekstri og þá af hverju (eða af hverju ekki)?

Jú, það er hárrétt að rauðir bílar lendi oftar í árekstrum en bílar í öðrum litum. Þetta stafar af hinum svokölluðu „nautaáhrifum“ (e. bull effect). Eins og margir vita nota hinir spönsku nautabanar rauð handklæði til að fá nautið til að ráðast á sig. Á sama hátt virka rauðir bílar æsandi á aðra bílstjóra í umferðinni og verður til þess að þeim langar til að keyra á þá. Þess vegna eru rauðir bílar langoftast í rétti í umferðaróhöppum.
Engin andsvör
Föstudagurinn 4. apríl 2003

Hmmm: Hvernig

Hmmm: Hvernig var kúbolla til? og hví teiknarðu hana svona vel?

Kúbolla varð til einn fagran sumardag árið 1999, er ég vann á Sérvörulager Hagkaupa. Þar hafði ég aðgang að gamalli tölvu með Windows 3.11 sem innihélt hið magnaða teikniforrit Paintbrush. Það forrit notaði ég til að teikna Kúbollu og á ég þær myndir í dag á tölvunni minni. Þess má einnig geta að nafnið Kúbolla kom ekki fram fyrr en á Þjóðhátíð í Eyjum árið 2001, þegar ég spreyjaði hana á tjaldið.
Engin andsvör
Föstudagurinn 4. apríl 2003

Hmmm: Verður

Hmmm: Verður framþróun jarðarinnar sú að hún verði sporöskjulaga? (1. var hún flöt svo hnöttótt!)

Já, ég tel það mjög líklegt að jörðin verði sporöskjulaga með tímanum vegna aðdráttarafls tunglsins. Einnig gæti þyngdaraflið breyst að einhverju leyti þannig að lögun hluta skipti máli fyrir þyngd þeirra. EInnig er áhugavert, í þessu sambandi, að hugsa til þess hvernig lífið á jörðinni var áður en Newton fann upp þyngdaraflið.

Engin andsvör
Föstudagurinn 4. apríl 2003

Kúbolla frumsýnd (fyrirspurn)

Ari: hvar getur maður séð kúbollu??? *beep*

Kúbollu (e. Cowball) getur þú séð á tjaldinu mínu í sumar og einnig hér á síðunni minni.

*bleep*.

Þess má einnig geta að Kúbolla (e. Cowball) hafði orðið til nokkru áður en sumarið 1999 en það var aðeins í hliðrænu (e. analog) formi. Mig minnir að það hafi verið fleiri Kúbollur (e. Cowballs) en stærðfræðidæmi í stærðfræðibókum mínum frá þessum tíma, sem gæti verið ástæða þess að ég féll í þeim áföngum.
Þó er gaman að segja frá því að þessar myndir eru fyrstu og einu stafrænu (e. digital) myndirnar af Kúbollu (e. Cowball). Hver veit nema einhverntíma verði til Kúbolla (e. Cowball) í þrívídd (e. 3D)?

Engin andsvör
Laugardagurinn 5. apríl 2003

Ester: Hvernig

Ester: Hvernig bílar lenda sjaldnast í árekstri og hvernig eru þeir á litinn?

Þeir bílar sem lenda sjaldnast í árekstrum eru af tegundinni Lada og í flestum öðrum litum en rauðum. Ástæðan fyrir þessu er sú að Lödur eru mjög bilanagjarnar og eru því meira í bílskúrum en í umferðinni. Einnig eiga þær erfitt með að ná yfir 70 km hraða sem útskýrir þetta líka að einhverju leyti.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 6. apríl 2003

Hugmynd

Ég hef fundið upp nýja viðbót á ýmsar tennisíþróttir eins og t.d. tennis, badminton og borðtennis. Ég mun sækja um einkaleyfi á þessari hugmynd minni strax í þessari viku. Þessa viðbót mun ég kalla „þríliðaleik“. Er þetta ekki frábær gróðahugmynd?
Engin andsvör
Sunnudagurinn 6. apríl 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað eru til mörg leyfileg íslensk samhverf nöfn?

Að því er ég best veit eru aðeins til tvö samhverf og leyfileg íslensk nöfn. Það er nöfnin Satanatas og Runnur. Vert er að geta í þessu sambandi að nafnið Anna er hvorki leyfilegt nafn né samhverft. Einnig má nefna að nafnið Rútur er næstum því samhverft.
Engin andsvör
Mánudagurinn 7. apríl 2003

hildur: afhverju

hildur: afhverju fæ ég alltaf brotna stólinn eða biluðu tölvuna í tölvuverunum???

Það er af því að þú átt ekkert gott skilið fyrir að finnast smásögurnar eftir mig og Gunna ekki fyndnar.
Engin andsvör
Mánudagurinn 7. apríl 2003

Snjókorn

Marga kannast við þessa fullyrðingu: „Engin tvö snjókorn eru eins“. Hvílík vitleysa! Hvernig er hægt að fullyrða svona um málefni sem lítið sem ekkert er vitað um? Hvað hefur mörgum snjókornum snjóað niður á Jörðina frá upphafi hennar? Mörgum tugum, ef ekki hundruðum snjókorna. Hefur einhver rannsakað þessi snjókorn og borið þau saman? Nei. Í ljósi þessa legg ég til að þessari fullyrðingu verði breytt eitthvað á þessa leið: „Engin tvö ,eða fleiri, snjókorn eru kannski ekki alveg eins að öllu eða sumu leyti, séu þau skoðuð vel í smásjá eða einhverju samskonar tæki.“
Engin andsvör
Mánudagurinn 7. apríl 2003

Ég var

Ég var eitt sinn á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Það var á því herrans ári 2001. Þar lærði ég ýmislegt.

(a) Ég lærði að það er afar mikilvægt að sópa vel svæðið í kringum tjöldin til að halda því snyrtilegu, þökk sé ákveðnum náunga sem stal kústi úr bænum.

(b) Eldur og tjöld fara ekki vel saman.

(c) Spreyjuð tjöld eru mjög falleg.

(d) Neftóbak er í raun bara kurluð mynta.

(e) Mikil neysla á áfengi getur, undir ákveðnum kringumstæðum, orðið þess valdandi að jafnvægisskynið hverfi að miklu leyti.

(f) Bjór getur stundum verið góður með mat.

(g) Vestmannaeyjar eru í alvöru eyjar, en eru ekki á meginlandi Íslands.

(h) Gott veður á Íslandi er ekki bara goðsögn.

(i) Gott getur verið að taka með sér startkapla í tjaldferðir til að fá lánað rafmagn úr öðrum tjöldum. Þetta lærði ég af einhverjum manni úr Borgarfirði sem hóf að stela rafmagni úr tjaldi Oddgeirs að honum forspurðum.

(j) Vestmannaeyingar eru pakk og í raun ótrúlegt að þeir tali ekki einhverja mállýsku.

Takk fyrir.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 10. apríl 2003

Ari: Um

Ari: Um daginn dreymdi mig að Georg tvöfallt vaff Bush væri að spjalla við mig yfir bjórglasi...getur þessi draumur hafa haft merkingu???

Þessi draumur táknar mjög líklega einhver Georg W. Bush muni spjalla við þig yfir bjórglasi í náinni framtíð.

Að gefnu tilefni vill höfundur benda lesendum á að taka ekki mark á því þegar einhver utanaðkomandi reynir að svara fyrirspurnum án samráðs við höfund.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 13. apríl 2003

Hmmm: Eru

Hmmm: Eru konur enn brenndar á báli fyrir galdra?

Nei, konur eru ekki lengur brenndar á báli fyrir galdra. Engin kona kann víst að galdra í dag þannig að þær eru bara brenndar á báli fyrir eitthvað annað, eins og t.d. framagirni, skort á hreinlæti og annað glæpsamlegt.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 13. apríl 2003

Ég gróf

Ég gróf upp, mér til gamans, textann úr einu laga hinnar frábæru hljómsveitar Scooter.

"Back In The UK"
Welcome posse!!!
We're kickin' up!
Once again, we have the plan,
Driving you wild, as good as we can!
Don't stop us now, we're gonna make you move,
Raving outside to the passionate groove...
So I wanna check the microphone, I wanna check the microphone, I wanna check! I wanna check!
The Rick, the Ferris, and MC H.P... Scooter! Back in the UK!
Yesss!!!
Come on!!!
Somewhere in England, banging the bass!
Join our trip, to this weird place!
Back to nature, where we can be...faster and harder, louder and free!
So I wanna check the microphone, I wanna check the microphone, I wanna check! I wanna check!
The Rick, the Ferris, and MC H.P...Scooter! Back in the UK!
BASS!!!
We started in 1994!
In 1996, we're still on the case!
Hold tight crew!!!
Together...no one can stop us now!!!
So I wanna check the microphone, I wanna check the microphone, I wanna check! I wanna check!
The birds, the trees, the clouds, the sea ...the Rick, The Ferris, and MC H.P!!

Engin andsvör
Sunnudagurinn 13. apríl 2003

Anna: Koma

Anna: Koma Scooter til með að vera ein af hinum ódauðlegu hljómsveitum?

Scooter er fyrir löngu orðin ódauðleg sveit, þó meðlimir hennar séu jafndauðlegir og við hin. Eins er næsta víst að textar eins og þessi sem er hér neðar á síðunni eiga eftir að lifa með mannkyninu allt fram á næsta áratug.
Engin andsvör
Mánudagurinn 14. apríl 2003

ester: Hver

ester: Hver verður íslandsmeistari í glímu kvenna?

Vonandi sem flestir, en þó þykir mér líklegast að það verði Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, hún Inga Gerða Pétursdóttir úr HSÞ. Á komandi árum mun glímufólk úr Glímufélaginu Hármanni verða æ meira áberandi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Hérna getið þið sótt eyðublað fyrir hópglímu á komandi Íslandsmeistaramóti. Um leið er gaman að velta fyrir sér hvernig hópglíma fer fram.
Engin andsvör
Mánudagurinn 14. apríl 2003

hildur: ok,

hildur: ok, ég bara verð að spyrja... hvernig fer hópglíma framm??

Hópglíma fer þannig fram að tvö eða fleiri lið glímukappa mætast á þar til gerðum glímuvelli og glíma hvert við annað til að safna stigum. Þess má geta að sniðglíma á lofti aflar flestra stiga, eða fimm talsins. Það lið sem hefur flest stig þegar hópglíman er flautuð af, stendur uppi sem sigurvegari.
Engin andsvör
Mánudagurinn 14. apríl 2003

Anna: Ég

Anna: Ég las og heyrði að er við borðum súkkulaði þá fer sama efni út í blóðið og heilinn myndar við samfarir. Er það satt?

Afar erfitt er að gera rannsóknir á þessu en þó hallast ég að því að efnið plómódífarenobensen sen súkkulaði inniheldur, myndist einnig í heilanum við samfarir. Ég veit hins vegar ekki í hvaða heila það gerist.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 16. apríl 2003

Anna: Er

Anna: Er ekki satt að fæst börn fæðist 9 mánuðum eftir páska?

Þetta fer nú mikið eftir því hvaða páska er verið að tala um en eins og frægt er orðið fæddust afar fá börn eftir páskana 1780. Það er þó ekki rakið til páskanna sjálfra það ár heldur til móðuharðindanna.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 16. apríl 2003

Ester: Hvernig

Ester: Hvernig er sniðglíma?

Sniðglíma er ákveðið glímubragð sem framkvæmt er þannig að hægri fæti er brugðið fyrir vinstri fót keppinautar, gripið í kinnbein hans, og með hjálp miðsóknarkrafts, þyngdarafls og rafflæðis er keppinaut sveiflað í 274° og stoppað þannig að höfuð hans bendi í suðsuðvestur. Þá er honum skellt í gólfið og þar með bragðinu lokið.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 16. apríl 2003

Anna: Er

Anna: Er ég farin að ganga fram af þér?

Svarið við þessu myndi vera nei, því til að geta gengið fram af mér þá þarf fyrst að ná því að standa ofan á mér. Ég get ekki séð að það skilyrði sé uppfyllt. Einnig sé ég ekki af hverju einhver ætti að vilja ganga fram af mér þar sem ég er ekki svo hár í loftinu.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 17. apríl 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað er það vægasta sem hægt er að kalla ruff sex?

Ég myndi segja að það væri u.þ.b. 28 á skalanum 1 upp í 37.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 17. apríl 2003

Anna: Hvar

Anna: Hvar get ég orðið mér út um alvöru handjárn?

Þegar ég þarf að verða mér úti um alvöru handjárn þá fer ég bara á uppboð hjá Lögreglunni. Þar fæst líka ódýrasta hassið og besti landinn.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 17. apríl 2003

Anna: Punktur

Anna: Punktur er ekki punktur nema að punktur sé. Rétt?

Í flestum tilfellum má segja að þetta eigi við. Þó eru til undantekningar eins og Popppunktur og Kontrapunktur sem voru ekki eiginlegir punktar heldur aðeins sjónvarpsþættir.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 17. apríl 2003

Ester: Er

Ester: Er Anna ofvirk?

Betra nafn yfir ofvirkni væri „kyrrsetulega áskoraður“ því orðið „ofvirkur“ er talið slæmt orð í dag, alveg eins og með slæma orðið „blindur“ sem hefur verið leyst af hólmi með nafninu „Sjónrænt áskoraður“ (e. visually challenged). Þó á ekkert af þessu við um Önnu því hún er bara „vitneskjulega áskoruð“, sem var áður kallað að vera „forvitin“.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 17. apríl 2003

Anna: Hverjir

Anna: Hverjir eru þínir ofurhetjuhæfileikar?

Mínir ofurhetjuhæfileikar eru þessir:

Röntgensjón, ofurheyrn, hraðsuðutær, ofurofnæmi fyrir eucalyptus extra tyggjói, ofurhárvöxtur á skrítnum stöðum, hraðlestrarhæfileikar, hráðátshæfileikar, Kúbolluteiknihæfileikar, ofurfeimni, tennisolnbogar, badmintonhné, golfhöfuð og þvottavélafælni.

Undirritaður auglýsir eftir hjálparhönd (e. sidekick) til að berjast við hinn illa Doddsson og hans viðbjóðslegu hjálparhellu Dr. Geir Hor. Umsóknir óskast sendar í tölvupósti eða með flugi.

Engin andsvör
Mánudagurinn 21. apríl 2003

Föstudagurinn langi ekki langur!

Margt þykir nú benda til þess að föstudagurinn langi sé bara goðsögn. Undirritaður tók tímann og sjást niðurstöðurnar hér:

Föstudagurinn langi: 24 klst. 0 mín. 0 sek. Óvissa hverfandi.

Eins og sjá má er þessi tími í engu frábrugðinn tímum annarra daga því undirritaður hafði einnig tekið tímann á nokkrum öðrum dögum og fengið sömu niðurstöður. Í framhaldi af þessu má telja nokkuð öruggt að auglýsingar sjónvarpsstöðva um lengri dagskrá á föstudeginum langa eigi ekki við rök að styðjast þar sem hann er ekkert langur.

Fylgist með í næstu viku þegar flett verður ofan af dögum eins og Hvítasunnudegi, Þorláksmessu og 30. apríl.
Engin andsvör
Mánudagurinn 21. apríl 2003

Hildur: afhverju

Hildur: afhverju halda útlingar að kanínur og hérar verpi eggjum???

Það kemur til vegna þess að „íslenskt áskorað“ fólk (af erlendu bergi brotið) ruglar oft venjulegum kanínum og hérum saman við hina lítt þekktu dýrategund, kanhænuna (lat. rabitus pollobis poultrius), sem lítur út eins og kanína en verpir eggjum sem óð væri.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 23. apríl 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað eru útlingar?

Orðið „útlingar“ er í rauninni bara bjánaleg stytting á orðinu „útlendingar“. Það eru aðallega ungbörn og vitleysingar almennt sem nota orðið „útlingar“.
Engin andsvör
Laugardagurinn 26. apríl 2003

Anna: Hvernig

Anna: Hvernig er það að vera kominn af djöfla-kjúklinga ætt?

Ég veit ekkert um það, en systkini mín eru hins vegar af þessari ætt.
Engin andsvör
Laugardagurinn 26. apríl 2003

Ester: Hverjir

Ester: Hverjir eru mínir ofurhæfileikar?

Þeir eru: Sleggjuhöfuð, naglbítstær, prjónahné, eggjaofnæmi, mjólkurþol, hraðskriftarolnbogar og ofurnæmar hnésbætur. Þó vantar þig enn erkióvin til að geta nýtt þér eitthvað þessa hæfileika.
Engin andsvör
Laugardagurinn 26. apríl 2003

Nýrri tækni

Nýrri tækni blandað saman við fagrar listir!

Eiganda þessa vefseturs er margt til lista lagt. Ég mæli hiklaust með að þið smellið hér til að sjá hversu mikill listamaður hann er!

Til að þetta fari ekki örugglega ekki framhjá lesendum er hlekkurinn settur aftur hér!

Aths. Nauðsynlegt er að hafa Hraðtíma (Quicktime) uppsett á rafheilanum (tölvunni) til að skoða herlegheitin.
Engin andsvör
Laugardagurinn 26. apríl 2003

Ester: Ef

Ester: Ef ég ætti erkióvin, hver myndi það vera? eða hver er næstur því að vera erkióvinur minn?

Fínn erkióvinur fyrir þig væri hinn illi Codzilla (ísl. Þorskhausinn) og hjálparhella hans, Son of Cod (ísl. Sonur Þorsksins). Ég tel það afar mikilvægt að þú farir að nota ofurhetjukrafta þína gegn þeim sem fyrst því þeir hafa gefið út yfirlýsingu þar sem segir að þeir ætli sér að beita sér gegn saltfisksáti Íslendinga með öllum ráðum.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 27. apríl 2003

hildur: er

hildur: er mikið vesen að koma gæludýri í tegundaskiptiaðgerð???

Nei, það eru til margar leiðir til að koma gæludýrum í svona aðgerðir, s.s. með bíl, flugvél eða bara fótgangandi. Hins vegar er aðgerðin sjálf annað mál, en nefna má að afar vinsælt hefur verið í gegnum tíðina að gera úlfalda úr mýflugu.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 27. apríl 2003

Ari: Var

Ari: Var að spá...Hvað hét aftur vinur Dodda í leikfangalandi og hvað hét Doddi á ensku???

Vinur hans Dodda (e. Noddy) heitir Eyrnastór. Einnig má geta þess að Doddi átti gulan og rauðan bíl, eins og segir í laginu úr sjónvarpsþáttunum um hann: „Doddi, Doddi, á gula og rauða bílnum glaður fer...“
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 29. apríl 2003

Ég var

Ég var að lesa frétt á mbl.is sem vekur upp margar heimspekilegar pælingar. Ég hef oft veitt fisk. Hann gleypir svona öngul sem stingst stundum út í gegnum augað á honum, og svo tekur maður hann af önglinum og lemur honum í stein eða eitthvað til að drepa hann. Er þetta þá jafngilt því að gera það sama við litla sæta apa eða hunda? Í biblíunni stendur reyndar að fiskadráp séu af hinu góða (sbr. þegar Jesú hjálpar lærisveinunum að veiða fisk) þannig að þeir kristnu eru ekki í hættu. Er réttlætanlegt að mismuna dýrum eftir tegund þeirra? Fer Greenpeace kannski að skjóta niður frystitogara með slæmum afleiðingum fyrir sjávarútveg okkar? Spyr sá sem ekki veit.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 30. apríl 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað er málið með Bubba byggir?

Eftir því sem ég best veit þá unir Bubbi hag sínum vel í afætubænum Seltjarnarnesi og er ekki að byggja neitt.
Engin andsvör
Mánudagurinn 5. maí 2003

Anna: Hvernig

Anna: Hvernig gerir maður úlfalda úr mýflugu?

Það eina sem þarf til að gera úlfalda úr mýflugu er Mýflugu-í-úlfalda-vélina og eina mýflugu.

Leiðbeiningar:
1. Setja mýfluguna í vélina.
2. Ýta á start hnappinn.
3. Bíða í 30 mínútur.
4. Taka úlfaldann úr vélinni.

Varist að láta vélina vinna of lengi eða of stutt. Þá gæti útkoman orðið einhver önnur, eins og t.d. fíll eða otur.
Engin andsvör
Mánudagurinn 5. maí 2003

Mig langar

Mig langar að nefna eitt sem hefur stundum farið í taugar mínar, sem er það þegar fólk, oftast sjómenn, segir að allir ættu að prófa að fara á sjóinn því það sé svo mannbætandi. Ég hef hitt sjómenn, og þeir hljóta að hafa verið mjög slæmir fyrir ef vistin á sjónum er svona mannbætandi. Einnig sagði einn kennari minn í grunnskóla að allir ættu að prófa einhverntíma að vinna í frystihúsi því það sé svo mannbætandi að skera dauða fiska í sundur. Einmitt. Mér finnst að allir ættu að prófa að vinna við loftstokkahreinsun, því það gerði mig að miklu betri manni. Ég veit ýmislegt um loftstokka sem leikmenn vita ekki! Margir sem fá krabbamein eða sjúkdóma tala um að þeir hafi lært að meta lífið og fólkið í kringum sig o.s.frv. en þýðir það að þeim finnist að allir eigi að fá krabbamein eða sjúkdóma? Nei.
Bara svo það komi fram hef ég aldrei verið til sjós þó ég hafi nokkrum sinnum farið til veiða á trillu og ég þekki fullt af fólki sem aldrei hefur verið á sjónum og ég held að það sé upp til hópa alveg ágætis fólk þrátt fyrir það.
Reyndar finnst mér sjálfum að allir ættu að hafa lært fótbolta, unnið við loftstokkahreinsun, unnið í frystihúsi, verið til sjós, búið í sjávarþorpi, verið í sveit, skipt um dekk og ýmislegt fleira (þetta á ekki allt við um mig). Sá sem hefur gert þetta allt hlýtur að vera frábær persóna.
Engin andsvör
Mánudagurinn 5. maí 2003

Nú er

Nú er heimasíðan mín komin á annan og betri stað! Smellið hér til að skoða hana þar. Síðan á nýja staðnum er nákvæmlega eins og þessi nema að engin auglýsing er á henni, myndin af kúlunni er horfin og nú kostar það ekki neitt að skoða síðuna þar sem hún er geymd innanlands. Athugið að aðeins sú síða mun uppfærast þannig að vinsamlegast uppfærið hlekkina á heimasíðum ykkar.
Engin andsvör
Mánudagurinn 5. maí 2003

Borið í bætifláka fyrir almenningsbaðkör


Ester nokkur hefur nýlega ritað um almenningsbaðkör á heldur niðrandi hátt. Það væri svo sem burður í bakkafullan læk að tíunda það sem hún sagði eitthvað nánar, en í stuttu máli þá sagði hún að „þarna koma saman illa skeindir gamlir kallar, símígandi krakkadruslur og fólk með fótsveppi og annan viðbjóð.“ Nú hef ég nokkrum sinnum lagt leið mína í almenningsbaðkör borgarinnar og hef ekki rekist á neinn sem þessi lýsing á við. Býst ég einnig fastlega við því að S.I.S.G.K. (Samtök Illa skeindra gamalla kalla), S.S.K. (Samtök símígandi krakkadruslna) og F.F.F.A.V. (Félag fólks með fótsveppi og annan viðbjóð) hafi eitthvað við þessi ummæli að athuga, þar sem því er beinlínis haldið fram að óeftirsóknarvert sé að umgangast fólk sem tilheyrir þessum samtökum og félögum. En hvað almenningsbaðkörin varðar þá get ég ekki tekið undir þessa skoðun Esterar því mér þykir afar mikilvægt að geta baðað mig í vatni blönduðu klóri, dauðum húðfrumum og ýmisskonar öðrum aðskotahlutum, því ég tel það einkar mannbætandi og öllum til sóma. Aðeins einn galli er við almenningsbaðkör en það er gamalt fólk sem syndir skakkt. Vil ég beina þeim tilmælum til F.G.F.S.S.S. að þau reyni að fá félaga sína til að synda beint, eins og reglur kveða á um, og væri þá hægt að leggja félagið niður. Einnig vil ég hvetja Esteri til að kíkja í næsta almenningsbaðkar sem fyrst til að komast að því að þangað leita meðlimir úr mörgum öðrum samtökum og félögum í þeim tilgangi að skola af sér óhreinindi, þreytu og annað.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 7. maí 2003

Einhverfa

Undirritaður er farinn að hafa áhyggjur af kettinum sem býr á heimili hans. Hann er að verða tíu ára og er enn ekki farinn að svara nafni. Telur undirritaður einkum þrjár skýringar líklegar á þessum vanda.

1. Kötturinn er einhverfur og fylgist því ekki með því sem sagt er í kringum hann.
2. Kötturinn er heyrnarlaus.
3. Kötturinn er fúllyndur að eðlisfari og nennir ekki að svara þeim sem kalla á hann.

Sjálfur tel ég líklegast að skýring nr. 1 eigi við um köttinn en gaman væri að heyra hvað lesendur halda um þetta vandamál.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 7. maí 2003

Anna: Hver

Anna: Hver er Geir Vörtur?

Þennan mann hef ég aldrei heyrt um en nafnið Geir er algengt karlmannsnafn á Íslandi. Hins vegar er ættarnafnið Vörtur ekki algengt. Hér koma nokkur dæmi um nöfn sem færu vel við þetta ættarnafn: B. Rúnar Vörtur, Hlíðar Vörtur, Steinar Vörtur, Guðgeir Vörtur.
Engin andsvör
Föstudagurinn 9. maí 2003

Benni: Hvernig

Benni: Hvernig fer maður að því að koma JIM í trú um að maður geti eitthvað í stærðfræðigreiningu? Svar óskast fyrir laugardag, takk.

Afar vel hefur reynst að sýna stærðfræðigreiningarlega færni á svokölluði prófi. Þar hafa allir nemendur tækifæri til að sýna ýmsar stærðfræðilegar hundakúnstir til að vekja hrifningu kennarans. Ef stærðfræðikunnáttunni er ekki fyrir að fara þá er ágætt að teikna fallegar myndir eða skrifa brandara á prófið og gæti það nægt til að hrífa kennarann.

Engin andsvör
Föstudagurinn 9. maí 2003

hildur: Hvar

hildur: Hvar er hægt að nálgast "stærðfræðilega færni" og er það yfirhöfuð til?

Stærðfræðileg færni hefur, þrátt fyrir mikla leit, ekki fundist og má telja afar ólíklegt að hún finnist nokkurntíma. Margir halda því fram nú á dögum að stærðfræðileg færni sé aðeins goðsögn, svona eins og dvergar, albínóar og þríeggjuð sverð.
Engin andsvör
Föstudagurinn 9. maí 2003

evah: Er

evah: Er hægt að kjósa vitlaust?

Já það er mjög auðvelt að kjósa vitlaust. Til dæmis væri mjög vitlaust að kjósa mig þar sem ég er ekki í framboði. Enn vitlausara væri að kjósa t.d. einhyrning, því það er enginn einhyrningur í framboði og jafnvel eru áhöld um hvort þeir séu nokkuð til í raun. Hins vegar væri það allra vitlausasta að kjósa framsóknarflokkinn því hann er ekki til og hefur víst aldrei verið.
Engin andsvör
Laugardagurinn 10. maí 2003

Anna: Hefurðu

Anna: Hefurðu hugsað þér að taka upp hobbitanafn þitt?

Langt er síðan ég tók upp hobbitanafnið mitt og er það mitt alteregó. Gaman er að segja frá því að ég er hobbiti alla þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 22:00 og 22:30.
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 13. maí 2003

Guffi prjónn:

Guffi prjónn: Er það óhollt að láta smella eða braka í liðamótum?

Nei, þvert á móti er það afar hollt að láta braka og smella í liðamótum, því það bætir andann og eflir þrótt. Nefna má að þeir sem hafa látið braka og smella í liðamótum hafi meiri mótstöðu gegn bráðalungnabólgunni sem er í mikilli tísku þessa dagana. Einnig er talið að menn eins og Albert Einstein, Atli Húnakonungur og Saddam Hussein hafi látið braka vel í liðamótum sínum þannig að það er ekki leiðum að líkjast.
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 13. maí 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað er fimmkvistur?

Fimmkvistur er briddshugtak sem aðeins mjög reyndir briddsspilarar þekkja, en leikmenn eins og þú hafa aldrei heyrt um.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 14. maí 2003

Ester: Verður

Ester: Verður farið í hópferð í rafting um hvítasunnuna?

Hópferð verður farin en ekki er þó enn víst með tímasetningu, þó Hvítasunnan (sem er alls ekkert hvít) sé allgóður kostur. Þó tel ég best að svara þessu í bundnu máli:

Í hópferð þá við höldum,
harla glöð og rjóð.
Tjalda skal þá tjöldum,
svo týnist ekki fljóð.


Engin andsvör
Miðvikudagurinn 14. maí 2003

Hildur: Hvenær

Hildur: Hvenær er hvítasunna??? Ég vil rafting!!!

Hvítasunnan er sunnudaginn 8. júní. Að öðru leyti vísa ég í svar hér fyrir neðan.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 14. maí 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað felst í bridgehugtakinu fimmkvistur? M.ö.o. hvaða merkingu hefur það í bridge?

Hugtakið fimmkvistur er afar flókið hugtak. Í stuttu máli má segja að það jafngildi kvartslemmu með lítið þol og 3NT fjöldjöfli, ekki ósvipað og tvöfaldur Splinter með slettu af drekadobli. Þetta virkar auðvitað aðeins á 3. sagnstigi og stuttu eftir meldingu.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 15. maí 2003

Anna: Má

Anna: Má ég ekki fara með?

Jú, þessi ferð er opin öllum og því fleiri sem koma með, því betra, segi ég. Annars má lýsa þessu með eftirfarandi jöfnu:

Skemmtanagildi ferðar = (Skemmtun í „rafting“) · (Fjöldi þáttakenda)²
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 15. maí 2003

Beðist er

Beðist er velvirðingar á prentvillu sem var hér á síðunni í nokkra daga. Hefur hún nú verið fjarlægð og er vonast til að hún láti ekki sjá sig aftur.

Engin andsvör
Fimmtudagurinn 15. maí 2003

Ester: Eigum

Ester: Eigum við ekki bara að farað plana rafting ferð?

Jú það er afar góð hugmynd og einkar skynsamleg. Legg ég til að fólk ræði saman sem fyrst til að skipuleggja títtnefnda „raftingferð“.


Engin andsvör
Fimmtudagurinn 15. maí 2003

Hildur: afhverju

Hildur: afhverju mega stelpurnar ekki týnast í raftingferðinni, ég týnist sko bara ef ég vil!

Undirritaður vill taka það fram að hann er femínisti og mikill stuðningsmaður kvenfrelsis og jafnréttis. Í ljóði, sem spyrjandi er líklega að vísa í, er sagt að tjalda skuli tjöldum svo týnist ekki fljóð. Þar er aðeins verið að tala um þá brýnu þörf sem mannskepnan hefur fyrir heimili og hættur þess að það týnist ef það hafi engin hús að venda í. Hins vegar er ekki verið að meina stúlkum að týnast af sjálfsdáðum því það eru jú grundvallarmannréttindi að fá að týnast hvar og hvenær sem er. Þó er rétt að taka það fram að stúlkum er ekkert meira hætt við því að týnast en piltum, en eina ástæðan fyrir að orðið fljóð var notað í áðurnefndu ljóði er sú að það rímar við orðið rjóð eða eruð þið kannski orðin óð?

Engin andsvör
Fimmtudagurinn 15. maí 2003

Ester: Góð

Ester: Góð jafna! Hvenær eigum við að skellast í að plana?

Afar ágætt væri að hefjast handa við skipulagningu sem fyrst. Þó gæti það orðið vandamál þar sem hópurinn sem um ræðir hittist aðeins í netheimum.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 22. maí 2003

Anna: Er

Anna: Er ekki hægt að redda því?

Jú, það ættu allir að þekkja íslenska máltækið: „Þetta reddast.“
Engin andsvör
Föstudagurinn 23. maí 2003

Anna: Hvað

Anna: Hvað segirðu gott?

Ég segi allt í þessu fína. En þú?
Engin andsvör
Mánudagurinn 26. maí 2003

Hvort var

Hvort var tyrkneska söngkonan í Eurovision (ísl. Sýn Evrópu) líkari Drakúla eða vampíru?
Engin andsvör
Mánudagurinn 26. maí 2003

Málshættir og orðtök

Það getur verið mjög gaman að þýða íslenska málshætti og orðatiltæki yfir á ensku (þ.e. þýða þá illa). Hér koma nokkur dæmi:

Ég skal sýna þér hvar Davíð keypti ölið = I´ll show you where David bought the booze
Morgunstund gefur gull í mund = An hour in the morning gives you gold in the hand
Ég er karl í krapinu = I am a man in the crap
Það liggur í augum uppi = It lies in the eyes upstairs
Enginn er verri þó að hann vökni = No one is worse even if he´s wet
Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði = Don´t cry for Bjorn the farmer, just gather some team
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 27. maí 2003

Anna: Vantar

Anna: Vantar ykkur eitthvað sérstakt í innbúið? (plasmasjónvarpstæki og þess háttar verðið eiginlega redda sjálf þar sem smekkur manna er misjafn og svona)

Já, okkur vantar fullt af hlutum, t.d. straujárn, plasmasjónvarp, skjávarpa, ferðatölvu, Porsche sportbíl og einkaþotu.
Engin andsvör
Miðvikudagurinn 4. júní 2003

Anna: Hvenær

Anna: Hvenær skal leggja af stað í ferðina miklu?

Klukkan 21:00 í kvöld.
Engin andsvör
Föstudagurinn 6. júní 2003

Ari: Hvað

Ari: Hvað þýðir eiginlega eirð?

„Eirð“ þýðir í rauninni „innri ró“ eða „friður“. Hérna má sjá hvernig þetta orð er notað í rituðu máli.

Engin andsvör
Miðvikudagurinn 11. júní 2003

hanna: þekkirðu

hanna: þekkirðu kristínu haffi?

Nei, og ég þekki heldur ekki neina Hönnu, held ég...
Engin andsvör
Sunnudagurinn 15. júní 2003

jói massi:

jói massi: Hvað er lengst í alheiminum???

Huglæga fjarlægðin milli manns sjálfs og klósetts þegar maður þarf virkilega á því að halda.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 15. júní 2003

No name:

No name: Tekur þú þér nokkuð sumarfrí?

Jú, svo gæti farið að ég taki frí frá skriftum í tvær vikur í ágúst en sá tími verður aðallega nýttur í að safna kröftum og hugmyndum fyrir komandi vetur.

Eigandi vefsetursins vill taka það fram að það er honum mikill heiður að svara fyrirspurn frá þekktum snyrtivöruframleiðanda.
Engin andsvör
Sunnudagurinn 15. júní 2003

Anna: Hvert

Anna: Hvert er heimsmetið í dvergakasti?

Ekkert heimsmet í dvergakasti er skráð í Heimsmetabók Guinnes, og er það líklega vegna þess að dvergakast er ólöglegt í flestum vestrænum löndum. Þó hafa tveir dvergar farið í mál til að fá banninu hnekkt og annar þeirra fór meira að segja með sitt mál fyrir mannréttindadómstól Evrópu en báðir töpuðu þeir málunum vegna þess að „dvergakast er óvirðing við mannverur.“
Engin andsvör
Laugardagurinn 21. júní 2003

Anna: því

Anna: því segir fólk við hvort annað að það sé fullt af skít? (e. you are full of crap!)

Fólk hlýtur að segja þetta við einhvern sem er fullur af skít...
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 26. júní 2003

Anna: Því

Anna: Því segja sumar konur við menn að þeir séu handsamaðir? (e. you are handsome!)

Þetta er mér hulin ráðgáta. Þetta hefur verið sagt mjög oft við mig í gegnum tíðina, án þess að ég hafi nokkurntíma verið handsamaður af manneskjunni sem sagði það.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 26. júní 2003

Ari: Hvar

Ari: Hvar í heiminum er Öxl og er það satt að þar sem tvö bein koma saman þar sé liður(sbr. Guðni Ágústsson)

Öxl er á Íslandi og er hægt að lesa nánar um hana hér. Hvað Guðna Ágústsson varðar þá á það ekki alltaf við um tvö bein að á milli þeirra sé liður. Var þetta prófað út í hörgul á rannsóknarstofu minni með kjálkabeini úr kind og lærlegg af hrossi en aldrei myndaðist liður þar á milli. Rennir þetta stoðum undir þá kenningu að úr munni Guðna Ágústssonar komi ekki mikill sannleikur.
Engin andsvör
Fimmtudagurinn 26. júní 2003

Eru ekki

Eru ekki allir til í útilegu aðra helgina í júlí? Það er ekki hægt að láta sumarið líða án þess að fara í nokkrar útilegur!
Engin andsvör
Mánudagurinn 30. júní 2003