Eftir margar
Eftir margar fyrirspurnir þar að lútandi er komið nýtt lag vikunnar. Eins og lesendur vita þá er hugtakið „vika“ mjög afstætt, og þá sérstaklega á þessari síðu. Annars langar mig mikið til að vita um hvað textinn fjallar í lagi vikunnar. Mér þykir textabrotið „you had style, for a while“ afar áhugavert.
Mörg andsvör (8) Mánudagurinn 4. apríl 2005
Þetta er
Þetta er líklega ein merkilegasta frétt ársins, ef ekki áratugarins. Mig langar samt mikið að vita hvort hann heiti eitthvað meira en Böddi, t.d. Böddi Hlö (Böðvar Hlöðversson). Einnig langar mig að vita hvað makinn heitir.
Mörg andsvör (17) Föstudagurinn 8. apríl 2005
Eftir að
Eftir að hafa legið í dvala um stutta stund er undirritaður loksins farinn að skrifa aftur. Óþreyjufullir aðdáendur geta þá loksins hætt að grátbæna mig um að skrifa meira. Reyndar finnst mér að fólk sé almennt orðið mjög lélegt við blók, það virðist sem aðeins ég, Eva og Bynni séum að skrifa eitthvað af viti. Eða, nei annars, bara ég og Eva. Mér finnst að fleiri eigi að taka til við blók, enda hafa rannsóknir sýnt að fólk sem blókar fær hærri einkunnir en hinir sem ekki blóka. Ég held því einnig fram að blókið mitt hækki greindarvísitölu lesenda um allt að fimm prósent. Ég skora því hér með á alla að hefja blók við fyrsta tækifæri.
Mörg andsvör (2) Laugardagurinn 14. maí 2005
Ég hef
Ég hef um nokkurt skeið verið að pæla í kjöti og kjötvenjum ef svo má kalla. Nú er ég mikið fyrir kjöt alls konar og borða það oft á dag, en ég tilheyri þeim afar fámenna hópi (á Íslandi a.m.k.) sem finnst svínakjöt almennt betra en lambakjöt. Nú er ég alls ekki að segja að mér finnist lambakjöt ekki gott, heldur þykir mér það mikill herramannsmatur og leiðist ekki lambakjötsát. Þó finnst mér svínakjöt enn betra en lambakjöt, sérstaklega grillaðir grísahnakkar, sem er besta grillkjöt sem ég hef smakkað hingað til. Um nokkurt skeið hef ég spurt fólk sem ég þekki hvort kjötið því finnist betra og svarið er alltaf á sömu leið: Lambakjöt. Þá hafa sumir haldið því fram að þeim finnist það betra þar sem þeir séu aldir upp við það, því eins og við vitum þá er afar stutt síðan Íslendingar hófu svínakjötsát af einhverri alvöru. Því má alveg gera ráð fyrir að með nýjum kynslóðum fjölgi nokkuð í hópnum sem tekur svínið framyfir lambið. Einnig er til fólk sem tekur kjúkling fram yfir allt annað kjöt, hvort sem það er vegna hollustunnar eða bragðsins. Sjálfum þykir mér reyndar best að borða alltaf sitt lítið af hverju frekar en að festa mig við eitthvað eitt.
Mörg andsvör (13) Þriðjudagurinn 24. maí 2005
Þrátt fyrir
Þrátt fyrir að allir aðrir séu latir við blók, þá ætla ég sko ekki að láta mitt eftir liggja. Nú er sumarið byrjað, sem þýðir að afar glæsilegur sovéskur bíll mun fara á göturnar eftir einhverjar vikur en sumar þýðir einnig að það styttist í næstu útilegu. Þá er einnig í bígerð að fara í veiðiferð í sumar sem verður aðeins fyrir karlmenn, en það þýðir að mikið verður þar spjallað um föt, nýjustu myndina hennar Jennifer Lopez, nýja diskinn frá Gwen Stefani og fleira í þeim dúr.
Mörg andsvör (10) Þriðjudagurinn 31. maí 2005
Fordómar?
Ég sá
þessa frétt á mbl.is um daginn:
Sinueldur í Köldukinn„Gömul Lada skemmdist þegar eldur varð laus í sinu í gömlu túni við Gvendarstaði í Köldukinn í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var verið að nota Löduna við að smala kindahópi eftir túninu þegar eldur kviknaði í sinunni, hugsanlega út frá Lödunni. Það hefur þó ekki verið staðfest og verður ekki rannsakað frekar. Þrír bílar frá Slökkviliði Þingeyjarsveitar komu á vettvang og aðstoðuðu bóndann við að slökkva eldinn.“Nú telst það góður siður meðal blaðamanna að nefna ekki uppruna fólks í fréttum nema það sé aðalatriði fréttarinnar. Nú hefði örugglega heyrst hljóð úr horni ef fréttin hefði verið skrifuð svona:
Sinueldur í Köldukinn„Gamall tælenskur bóndi slasaðist þegar eldur varð laus í sinu í gömlu túni við Gvendarstaði í Köldukinn í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Húsavík var gamli tælenski bóndinn að smala kindahópi eftir túninu þegar eldur kviknaði í sinunni, hugsanlega vegna bjánaskapar hjá gamla tælenska bóndanum. Það hefur þó ekki verið staðfest og verður ekki rannsakað frekar. Þrír bílar frá Slökkviliði Þingeyjarsveitar komu á vettvang og aðstoðuðu bóndann við að slökkva eldinn.“Nú er spurningin bara hvort það hafi komið fréttinni við hvaða tegundar bíllinn er. Til dæmis er þess aldrei getið þegar um árekstra eða bílveltur er að ræða. Flestir lesendur vita þó auðvitað hversu miklir eðalbílar Lödurnar eru og að þær myndu ekki gera eigendum sínum þann grikk að kveikja í sinu.
Mörg andsvör (17) Föstudagurinn 10. júní 2005
Jæja, haldið
Jæja, haldið þið að kallinn (lesist með tilþrifum) hafi ekki bara tekið þátt í maraþonhlaupi! Öss! Ég ákvað að skella mér í Jónsmessuhlaupið í ár og hljóp alveg heila fimm kílómetra.
Eins og sjá má lenti ég í 95. sæti af 213 keppendum þannig að það er bara ágætis árangur. Ég las mér aðeins til um hvernig eigi að æfa fyrir maraþonhlaup daginn fyrir hlaupið og komst að því að maður á ekki að æfa mikið síðustu vikuna fyrir hlaup. Ég hugsaði mér nú gott til glóðarinnar þar sem ég hafði ekki einu sinni æft almennilega í nokkur ár fyrir hlaupið þannig að ég var alveg tilbúinn. Ef fólk hefur brennandi áhuga, þá má sjá úrslit eftir aldursflokkum
hér. Svo er það bara Reykjavíkurmaraþonið í ágúst (10 km), og ég mun passa mig á að æfa alls ekki mikið síðustu mánuðina fyrir það.
Mörg andsvör (4) Þriðjudagurinn 28. júní 2005
Þegar Bynni
Þegar Bynni flytur að heiman og fer í eigin íbúð, þá finnst mér að hann eigi að prenta þessa mynd út og hengja hana upp á vegg, því þessi karakter minnir oft mikið á Bynna.
Mörg andsvör (8) Fimmtudagurinn 30. júní 2005