Aprílgabb
Í dag er 1. apríl.
Aths. Þetta er aprílgabb. Þetta var skrifað og sett inn á síðuna þann 2. apríl. Fólk þarf því ekki að gera viðeigandi varúðarráðstafanir.Mörg andsvör (14) Sunnudagurinn 2. apríl 2006
Jæja.
Jæja.
Mörg andsvör (8) Föstudagurinn 21. apríl 2006
Gremja
Fyrir ekki svo löngu mátti sjá smáauglýsingar í DV sem voru nokkurn veginn svona: „Ég heiti Sigga og er grxx og heit og blaut. Hringdu í mig!“ Kannski eru þessar auglýsingar enn á sínum stað, hver veit, ég hef a.m.k. ekki verið nógu duglegur við að fletta DV upp á síðkastið. Oft fylgir svo með mynd af manneskjunni, jafnan fáklæddri. Þetta hefur gefið mér tilefni til vangaveltna:
1. Hvað stendur grxx fyrir? Græn? Gröm? Ég veit það ekki.
2. Hvað ætti maður að segja við manneskjuna ef maður myndi hringja í hana?
3. Hvernig varð hún blaut og heit? Gerðist það bæði í einu, t.d. í mjög heitu baði? Var þetta kannski pípulagningaslys og eru ofnarnir kannski hátt stilltir? Hver veit?
4. Ætli einhver góðhjörtuð amma hafi hringt í manneskjuna og sagt: „Æi, greyið litla skinnið, ertu heit og blaut. Ég skal þurrka þér og gefa þér kakó.“ Eða eitthvað álíka?
5. Hver svo sem ástæðan er, þá efast ég um að eitt símtal muni bjarga málunum. HVERNIG VÆRI ÞÁ AÐ ÞURRKA SÉR, LÆKKA Í %$%$#$# OFNUNUM, OPNA GLUGGA OG HÆTTA AÐ AUGLÝSA VANDAMÁLIÐ Í DV!?
Mörg andsvör (11) Laugardagurinn 22. apríl 2006
Lítið lag
Lítið lag sem lýsir tilfinningum mínum þessa stundina:
Ég hlakka svo til.
Ég hlakka alltaf svo til!
En það er langt ó svo langt að bíða.
Og allir dagar svo lengi að líða.
Í vetur það er satt, þá leið sko tíminn skelfing hratt,
og þau flugu hjá í snatri, já snjókornin og jólin.
En nú er þetta breytt, það bara gerist ekki neitt,
og tíminn rótast ekkert, og aldrei koma prófin!
Ég hlakka svo til! ÉG HLAKKA ALLTAF SVO TIL!
o.s.frv.Mörg andsvör (6) Þriðjudagurinn 2. maí 2006
Ég er
Ég er búinn í prófum.
Mörg andsvör (4) Laugardagurinn 6. maí 2006
Jæja, þá
Jæja, þá er kappinn byrjaður í nýrri vinnu og líkar vel. Einhverntíma mun birtast mynd af mér á
þessari síðu, og fyrir áhugasama þá er hægt að sjá hvað ég fæ í matinn
hér.
Mörg andsvör (13) Þriðjudagurinn 16. maí 2006
Kappinn fór
Kappinn fór ásamt Gunna í sundknattleik, eða sundhandknattleik, eða water polo (nei, það eru engir hestar í þessu sporti ef þú varst að velta því fyrir þér) á mánudaginn í boði vinnufélaga míns. Við fengum
ofursvalar sundhettur að láni og spiluðum sundknattleik (eða sundhandknattleik eða water polo) við allra þjóða kvikindi í innilauginni í Laugardalnum. Skemmst er frá því að segja að við náðum ekki miklum árangri í þessari íþrótt. Það þarf auðvitað að vera í nokkuð góðu sundformi þar sem maður nær aldrei til botns og þarf því stanslaust að vera að troða marvaðann og synda skrið-, bringu- og hundasund til að komast á milli staða á vellinum. Einnig er þetta svolítið brutal, þ.e. menn víla ekki fyrir sér að kaffæra mann til að komast framhjá manni eða til að ná af manni boltanum. Þó þetta sé pínu hallærisleg íþrótt þá ber ég alveg virðingu fyrir þeim sem spila þetta reglulega þar sem þetta er ekki auðvelt. Þá var þetta mjög markviss æfing, það var vel tekið á því í upphitun og téður vinnufélagi sem byrjaði að æfa þetta síðasta haust er þegar orðinn mjög góður sundmaður og sundknattleiksspilari. Þetta er kannki eitthvað sem Bandýfélag Kópavogs ætti að fara að hugsa út í?
Annars hlýtur næsta skref að vera að prófa æfingu í krulluknattleik (reyndar er krulla rétta orðið, en mér finnst krulluknattleikur bara hljóma svo vel). Við höfum þegar mætt á heila æfingu í blaki hjá Í.S. við góðan orðstír, og höfum einnig mætt á fleiri en eina bandýæfingu, þ.a. við erum búnir að prófa nokkrar jaðaríþróttir, en það eru ennþá einhverjar eftir. Hafa lesendur vitneskju um einhverja aðra jaðaríþrótt sem er spiluð á Íslandi og vert er að prófa?
Mörg andsvör (20) Fimmtudagurinn 1. júní 2006
Trölli
Trölli
(2000-2006)Einhverjir hafa heyrt fréttirnar nú þegar, en fyrir þá sem ekki vita þá er ég búinn að selja Trölla.
Já, hann er farinn mér frá, bíllinn sem hefur þjónað mér svo vel í næstum sex ár. Það er eins með bíla og marga aðra hluti, einhvern tíma þurfa leiðir að skilja, og nú er sú stund runnin upp. Núna er hann farinn upp á Akranes þar sem hann mun án efa reynast nýjum eiganda vel. Síðustu dagar hafa að mestu farið í að átta sig á staðreyndum og jafna sig eftir skilnaðinn.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast Trölla, er bent á að styrkja gott málefni, t.d.
Rauða Kross Íslands.
Ég hef aðeins verið að skima eftir nýjum bíl, og munu einhver tíðindi berast af þeim vígstöðvum á næstu dögum.
Mörg andsvör (19) Sunnudagurinn 11. júní 2006
Eitt er
Eitt er til það andans fóður
er ég vil troða í minn kropp.
Tileinkast því téður óður,
titlast fóðrið Ostepop.
Ég verð bara að minnast á það hve illa Baugsbúðirnar (Hagabúðirnar) standa að því að miðla snakkinu Ostepop til landsmanna. Eins og allir vita er þetta eina snakkið sem fæst sem eflir andann, bætir lund, eykur þrek og styrkir bein. Nú nefni ég sem dæmi að 10-11 búðirnar eiga þetta ekki til nema í um 50% tilfella. Oftar en einu sinni farið sneypuför í Lágmúlann á höttunum eftir Ostepop snakki, en þurft að snúa heim bugaður og dapur vegna þess að það er búið. Einnig má nefna að Bónus var aldrei með Ostepop í sölu fyrr en nýlega, en það er einnig erfitt að nálgast það í þeim búðum þar sem það er oftast uppselt. Ég beini því þeim tilmælum til þeirra sem stjórna þessum búðum að bæta úr þessu hið snarasta.
Mörg andsvör (6) Miðvikudagurinn 28. júní 2006
Þó það
Þó það hafi reyndar farið framhjá flestum, þá er skv. dagatalinu komið sumar, og því kominn tími til að fara í útilegu. Nú var Oddgeir nokkur að nefna að gaman væri að skreppa á Snæfellsnes þar sem hægt væri að veiða og ýmislegt annað skemmtilegt. Er fólk til í þetta einhverja helgina eða vill það bara hanga inni í allt sumar?
Mörg andsvör (16) Fimmtudagurinn 29. júní 2006