Kvikmyndastjarnan Bynni
Bynni tók nýlega að sér hlutverk í kvikmynd í Bollywood, þar sem hann vann mikinn leiksigur. Hægt er að sjá brot úr myndinni
hér.
Mörg andsvör (15) Þriðjudagurinn 3. apríl 2007, kl. 11:31
Hvatning
Eins og lesendur hafa tekið eftir, þá hefur verið frekar lítil virkni á heimasíðunni hjá henni Evu minni, t.d. var athugasemdakerfið óvirkt í nokkurn tíma en það er komið í lag núna. Þrátt fyrir það hefur hún verið að hugsa um að loka hreinlega síðunni fyrir fullt og allt. Nú vil ég því biðja lesendur síðunnar til að skrifa hvatningarorð til Evu hérna í athugasemdirnar svo hún haldi nú áfram að skrifa á síðuna sína!
Mörg andsvör (16) Þriðjudagurinn 24. apríl 2007, kl. 16:21
1. maí
Á einhver verkalýðsbaráttudagsmótmælaspjaldskrossviðarplötusagarblaðstannarbrýni til að lána mér? Ég verð að hafa sögina í lagi fyrir næsta ár.
Mörg andsvör (5) Miðvikudagurinn 2. maí 2007, kl. 10:19
Steve-krampi

Steve-krampi er þekkt bakteríusýking sem hefur fylgt spendýrum í þúsundir ára. Sýking þessi berst oftast á milli spendýra með biti. Áður en mannkynið þekkti ástæðurnar að baki krampanum var í mörgum menningarsamfélögum talið að þetta væri refsing guðs fyrir ósæmilega hegðun í samkvæmi eða svindl í fjárhættuspilum.
Það var þó ekki fyrr en um árið 1894 sem Vestur-Íslendingur að nafni Steve Steven Stephensson komst að raun um að þetta væri bakteríusýking eftir að hafa verið bitinn af chihuahua hundi sem þjáðist af siðblindu og athyglisbresti. Steve áttaði sig á tengingunni á milli bitsins og krampans sem fylgdi, en á þeim tíma voru þó ekki til sýklalyf til að meðhöndla sýkingar, þannig að sýkingin dró Steve að lokum til dauða árið 1912 eftir að hann hafði misst annan fótinn í heiftarlegu krampakasti. Áður en hann dó var hann einmana og niðurbrotinn maður og ekki bætti fótaskorturinn þar úr.
Allar götur síðan hefur sýking þessi verið kölluð Steve-krampi, en nú hefur verið fundið upp sýklalyf sem upprætir sýkinguna sem er oft sprautað beint í æð með svokallaðri Steve-krampasprautu.
Mörg andsvör (12) Fimmtudagurinn 10. maí 2007, kl. 16:55
Frí
Eins og Bynni benti á nýlega þá hefur ekki verið mikil virkni hérna í nokkra daga, og þar sem höfundur er á leið til Ítalíu í tvær vikur þá mun þessi ládeyða halda aðeins áfram. Ég mun þó reyna að bæta eitthvað úr þessu þegar ég kem aftur á klakann.
Mörg andsvör (21) Föstudagurinn 25. maí 2007, kl. 17:08
Allt að gerast
Eða þannig.
Mörg andsvör (19) Sunnudagurinn 17. júní 2007, kl. 23:01