Haffi!


Aprílgabb 2008

Í dag á Oddgeir nokkur afmæli, og því við hæfi að blekkja lesendur eins og öll önnur vefsvæði stunda. Þess vegna er það mér mikill heiður að tilkynna að í dag mun loftsteinn lenda á jörðinni og allt mannkyn mun farast. Í tilefni þess verður hægt að fá miðstærð af ís í brauðformi með dýfu á aðeins eina krónu í Dairy Queen í Hjarðarhaga.
Mörg andsvör (3)
Þriðjudagurinn 1. apríl 2008, kl. 13:17

Mótmælamótmæli

Ef ég væri atvinnulaus, þá myndi ég safna saman öllum öðrum atvinnulausum einstaklingum sem eiga bíl, og hópurinn myndi síðan leggja bílum sínum á einhverjum stað þar sem mikið er af atvinnubílstjórum (t.d. Landflutningar, Nýja sendibílastöðin eða Goldfinger) og passa að þeir komist ekki á þessa staði á trukkunum sínum (ég efast um að þeir nenni að labba langt). Þarna væru mótmælaskilti eins og „Lærðu að ganga frá farminum þínum áður en þú ferð að trufla aðra!“, „Mamma þín er hátt bensínverð!“ og „Drullist af vinstri akreininni!“ Við myndum að sjálfsögðu láta alla helstu fjölmiðla vita af þessu og þeir myndu líklega mæta og taka viðtal og maður gæti orðið frægur í einn dag.
Verst að ég er ekki atvinnulaus enn þannig að ég hef eitthvað betra að gera á daginn en að mótmæla einhverju.
Mörg andsvör (9)
Föstudagurinn 4. apríl 2008, kl. 14:01

Sniðug grein

Það merkilega er að þessi grein er skrifuð af Breta, en eins og flestir vita þá eru Bretar upp til hópa mjög á móti Evrópusambandinu og allt sem frá því kemur. Kannski er von á því að þeir fari jafnvel að taka upp metrakerfið. Og þó.
Mörg andsvör (2)
Miðvikudagurinn 9. apríl 2008, kl. 22:02

Nr. 0804N42313

Ég skrapp á köfunarnámskeið um daginn, þ.a. nú er ég orðinn löggiltur kafari og má fara alveg niður á 18 metra dýpi. Síðasta köfunin á námskeiðinu var í Silfru á Þingvöllum sem mjög skemmtilegur staður. Það var myndavél með í för þ.a. hér má sjá nokkrar myndir (Smellið á þær til að sjá þær stærri):

Þarna erum við á botninum að undirbúa nokkrar æfingar, ég er þarna lengst til vinstri og búinn að róta upp slatta af botnleðju.


Þarna ætlaði ég að pósa voða flott fyrir myndavélina en var of seinn.


Hér má svo sjá að þetta er ekki leiðinlegur staður til að vera á.


Mörg andsvör (12)
Þriðjudagurinn 15. apríl 2008, kl. 21:42

Ég biðst forláts

Ég hef verið allt of latur við að skrifa á síðuna. Ég hef bara ekki verið nógu innblásinn nýlega, en ég ætla að reyna að bæta úr því.
Mig langar til að ræða aðeins um Evróvisjón keppnina sem var haldin fyrir ekki svo löngu í Helsinki í Finnlandi. Þar steig Eiríkur Hauksson á stokk fyrir Íslands hönd en komst því miður ekki áfram úr undankeppninni. Ég tel að þar hafi verið brögð í tafli, og jafnvel grunar mig að samkynhneigðir kjósendur hafi haft samráð um að kjósa samkynhneigða lesbíu til sigurs, þ.a. keppnin verður næst haldin í Serbíu á þessu ári. Ég legg því til að við sendum samkynheigðan söngvara til keppni að þessu sinni til að auka möguleika okkar á sigri.
Mörg andsvör (6)
Sunnudagurinn 25. maí 2008, kl. 22:56

Steinanudd

Steinn GyrðissonEin er sú aðferð nudds sem er talin betri en aðrar nuddaðferðir sem eru ekki eins góðar. Hún er hið svokallaða Steinanudd. Aðferð þessi var fundin upp af Steini Gyrðissyni (sem bar gælunafnið Steini) árið 1889 í Svarfaðardal. Hófst þetta með því að hestur Steins, Göndull, fékk eymsli í kné við tamningu og veinaði ámátlega. Steinn var miður sín því hann vissi ekki hvernig hann gæti hjálpað klárnum að losna við eymslin. Nokkrum sögum síðar fékk Göndull yfir sig skriðu í fjalli nokkru og missti báða afturfæturna og tók Steinn eftir því að eftir þetta hætti hann að haltra. Datt honum þá í hug að með því að berja grjóti harkalega við aðra staði á líkamanum á fólki og dýrum, væri hægt að lina ýmsan sársauka þónokkuð. Síðan þá hefur þessi aðferð öðlast miklar vinsældir út um allan heim og er boðið upp á Steinanudd í afar mörgum löndum.
Mörg andsvör (5)
Miðvikudagurinn 4. júní 2008, kl. 22:36

Kreppa og góðæri

Nú hef ég verið að hlusta aðeins á nýjustu plötu Sigur Rósar á last.fm, en platan sjálf kemur út þann 23. þessa mánaðar. Þessi plata er merkilega glaðleg og upplífgandi sem er alger kúvending frá fyrri plötum sem voru álíka upplífgandi og... tja, þokulúður, þó þær hafi allar verið frábærar að öðru leyti. Nú held ég að þeir hafi verið að gefa út plötur frá því ca. árið 1997 sem er ekki í frásögur færandi nema að því leyti að um það bil á þeim tíma hófst eitt mesta góðæri í Íslandssögunni. Í þessu góðæri þeyttu liðsmenn Sigur Rósar þokulúðurinn óspart, en þegar góðærinu er núna nýlokið þá kemur þessi hressa plata. Maður hlýtur því að spyrja sig hvort þeim strákunum líði betur í kreppu en góðæri, en ætli maður verði ekki að vona að næsta plata verði álíka glaðleg og finnskur þunglyndissjúklingur sem er nýbúinn að uppgötva að vodkinn hans er búinn og allar áfengisbúðir lokaðar?
Mörg andsvör (5)
Fimmtudagurinn 19. júní 2008, kl. 23:46

Hverjir eru hérna?

Mig langar að gera óformlega könnun á því hverjir eru að skoða síðuna nú um stundir. Ég get gert ráð fyrir að Oggi og Bynni kíki hingað reglulega enda eru þeir einir um að gera athugasemdir hérna. Þið hin, látið heyra í ykkur!
Mörg andsvör (15)
Sunnudagurinn 29. júní 2008, kl. 17:20