Haffi!


Aprílgabbið mitt í ár

Jæja, kæru lesendur, nú er komið að aprílgabbi mínu þetta árið. Það verður mjög glæsilegt að þessu sinni, svo ekki sé meira sagt. Ég mun tilkynna aprílgabbið á þessari síðu með pompi og prakt kl. 14:00 í dag og þeir sem mæta með jólasveinahúfu og 17. júní-fána hingað fá grillaða pylsu!
Mörg andsvör (4)
Miðvikudagurinn 1. apríl 2009, kl. 11:15

Ekkert aprílgabb!

Núna eru líklega margir lesendur orðnir óþreyjufullir að bíða eftir því að ég birti aprílgabb þessa árs. Í stuttu máli þá hafið þið öll hlaupið apríl því það verður ekkert aprílgabb á þessari síðu í ár!

Og það eru engar pylsur.
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 1. apríl 2009, kl. 14:16

Tölvupóstur til Ryvita

Ég og vinnufélagi minn erum mjög duglegir að borða Ryvita hrökkbrauð og eitt sinn þegar við vorum að lesa á pakkann þá datt okkur í hug að senda póst til Ryvita; ég held að innihaldið skýri sig sjálft. Það varð svo úr að annar góður vinur, Böðvar Hlöðversson sendi póstinn.

Dear recipient,

My name is Böðvar and I'm the CEO of an IT company in Iceland.

I've been enjoying your delicious crispbreads for a long time now. I can't start the day without indulging in a sweet and tasty crispbread with a spread of golden butter and maybe a slice of cheese or two. However, I've often wondered if there's a better way to top those rye filled little buggers than just with butter and cheese. To my surprise, I noticed a serving suggestion on the outside of the container and thought to myself that this would be the ideal way to start the day. Then I found out that there was no way of knowing what the serving suggestion actually consisted of!

I've attached a scan of the serving suggestion on the container. You can see clearly that there are two crispbreads. Then things start going wrong. First there's some white stuff that might be cheese spread or cottage cheese or something entirely different. Then there seem to be red and yellow peppers, but then again they don't look like ordinary peppers but something smaller. Then it seems to be topped with parsley or some other herb that looks like parsley.

So as you can see, this can be quite confusing for an ordinary person. Which brings me to the question I want to ask you, kind sir/madam; could you print some more information on the crispbread package so that I can replicate the serving suggestion as it is on the picture? I understand that this might take some time for you to change, so I would also kindly like to ask you to send me the recipe via electronic mail so I can start as soon as possible.

Thank you in advance,
Böðvar Hlöðversson, CEO
Heildrænar allsherjarlausnir á sviði samskipta við gagnvirk rafeindatæki
Iceland


Myndin sem fylgdi með í viðhengi:
Tillaga að framreiðslu
Mörg andsvör (5)
Fimmtudagurinn 2. apríl 2009, kl. 19:52

Svar frá Ryvita

Það er komið svar frá Ryvita við tölvupóstinum sem var sendur til þeirra fyrir stuttu síðan. Sjá neðangreint:

Dear Sir,

Thank you for your email, concerning the serving suggestion. We can confirm that it is cream cheese, a piece of sweet red pepper, and a piece of small yellow pepper with a piece of parsley.

You can also select a whole range of serving suggestions from our website www.ryvita.com and click on the link Toppings Suggestions.

Thank you for taking the time to contact us, and for choosing Ryvita.

Kind Regards
Beverley
Ryvita Care Team


Ég held að þetta svari spurningunni ágætlega þ.a. það er líklega óþarfi að svara þessum pósti.
Mörg andsvör (2)
Sunnudagurinn 12. apríl 2009, kl. 08:39

Auður kjörseðill

Ef ég fer með Tippex á kjörstað og mála vandlega yfir alla flokka á kjörseðlinum, hvort telst þá kjörseðillinn sem auður eða ógildur? Er kannski betra að taka bara með sér autt blað og setja í kassann í staðinn? Skiptir máli hvernig blaðið er á litinn?

(Nei, kjörseðillinn heitir ekki Auður)
Mörg andsvör (2)
Mánudagurinn 20. apríl 2009, kl. 16:28

Má Steingrímur J. ekki líma saman módel?

Skemmtilegar auglýsingar í Fréttablaðinu í dag, það er eins og Steingrímur sé að líma saman módel. Þetta hlýtur að hafa verið planað.

Steingrímur J.
Eitt andsvar
Föstudagurinn 24. apríl 2009, kl. 14:00

Hrakleg útreið auðra í kosningunum

Auði flokkurinn fékk ekki nema um 3% atkvæða í kosningunum núna á laugardaginn, sem er smánarleg útkoma svo ekki sé meira sagt. Við náðum ekki einu sinni manni á þing. Það virðist sem gamalreyndur áróður flokksbundins fólks hafi skilað árangri í þetta sinn; dæmi um nefndan áróður er:

„Ef þú skilar auðu þá ertu í raun að kjósa þá sem þú vilt ekki að komist á þing!“
„Ef þú skilar auðu þá ertu bara að segja að þér sé alveg sama um kosningarnar!“
„Það er miklu betra að kjósa Flokkinn og strika út heldur en að skila auðu!“

Ég þarf varla að útskýra af hverju þessar fullyrðingar eru rangar. Ég er a.m.k. ekki sáttur við útkomuna en ég held að auðir þurfi að vinna sér inn traust kjósenda fyrir næstu kosningar.
Mörg andsvör (8)
Miðvikudagurinn 29. apríl 2009, kl. 17:10

Andbrandari

Bólivíumaður, Rússi og Íslendingur ganga inn á bar. Þegar þeir setjast sjá þeir að það situr önd á barborðinu. Bólivíumaðurinn pantar sér bjór og segir: „Í Bólivíu er ekki mikið um endur, en við erum t.d. með kólibrífugla sem geta flogið aftur á bak.“

Rússinn pantar sér Vodka og segir: „Iss, í Rússlandi erum við með albatrossa sem eru með eitt mesta vænghaf í heimi!“

Íslendingurinn pantar sér vatnsglas og segir: „Á Íslandi er ekkert voðalega mikið af fuglum, en stundum má sjá gæsir á túnum og það er þónokkuð um endur á Tjörninni. Svo koma stundum mávar á Tjörnina til að næla sér í brauð.“

Íslendingurinn klárar síðan vatnsglasið og fer heim til sín. Þar setur hann spólu með gömlum Derrick þáttum í myndbandstækið og horfir á. Þættirnir eru það eina sem veitir honum einhverja gleði í annars innihaldssnauðu lífi hans. Hann hafði áður mjög gaman að dansi og mannamótum en eftir að konan fór frá honum og hundurinn dó þá hefur hann alveg misst áhugann á því, fyrir utan það að fara stundum á barinn og fá sér vatnsglas á leiðinni heim úr vinnunni. Þar spjallar hann stundum við ferðamenn sem koma á barinn af hótelinu í næsta húsi til að fá sér t.d. bjór eða aðra hressingu.


Þetta er sem sagt andbrandari (e. anti-joke). Mig langaði bara að prófa að semja einn slíkan eftir að ég rakst á þannig á netinu um daginn. Þetta þýðir náttúrulega ekki að ég sé hættur að segja aulabrandara.
Mörg andsvör (6)
Mánudagurinn 4. maí 2009, kl. 16:50

Úrslit Evróvisjón

Þar sem ég er þekktur fyrir það að spá alltaf nákvæmlega rétt fyrir úrslitum Evróvisjón nema þegar ég hef rangt fyrir mér þá ætla ég hér með að birta spá mína fyrir þetta árið:

Rúmenía verður í fyrsta sæti, aðallega vegna frábærrar textagerðar.

Ísland verður í 11. sæti, sem er a.m.k. betra en 16. sætið.
Mörg andsvör (3)
Fimmtudagurinn 14. maí 2009, kl. 10:11

Vinstra hnéð á Arnari

Ég rakst á frétt á mbl.is með fyrirsögninni: „Vinstra hnéð að angra Arnar“ og það eina sem ég gat séð fyrir mér var að vinstra hnéð á Arnari væri alltaf að hringja í hann á matmálstíma til að selja honum tryggingar eða bjóða honum viðbótarlífeyrissparnað.

Kannski er ég bara svona skrítinn, en ég held samt ekki.
Mörg andsvör (4)
Fimmtudagurinn 14. maí 2009, kl. 11:07

Augljóst samsæri í Evróvisjón

Nú er komið í ljós að spá mín fyrir úrslitum Evróvisjón var nokkuð nákvæm, ég las bara aðeins vitlaust í draumsýnirnar.
Í fyrsta lagi er augljóst að þegar ég sá 11. sæti hef ég séð rómverskar tölur (II) sem að sjálfsögðu þýddu 2. sætið, og biðst ég velvirðingar á þeim mistökum.
Varðandi það að ég spáði Rúmeníu 1. sætinu þá hefur gerst eitthvað svipað þar. Ef maður tekur fyrstu þrjá stafina í Rúmenía og snýr röð þeirra þá fær maður Núr. Svo snýr maður m-inu á hvolf og fær w og bætir við e-inu og í-inu og þá er komið Núrweí sem er eiginlega Noregur. Ég skil bara ekki af hverju þessar sýnir mínar þurfa alltaf að vera svona torræðar.
Svo hjálpaði náttúrulega ekki að þarna var enn og aftur í gangi augljóst samsæri Vestur-Evrópulanda um að kjósa hvert annað og má sjá að ekki komust mörg lönd frá Austur-Evrópu í efstu tíu sætin.
Mörg andsvör (6)
Mánudagurinn 18. maí 2009, kl. 10:02

Mín hugmynd að kvikmynd

Ég teiknaði um daginn mynd í Inkscape af unganum Fiðriki, og þessi mynd gaf mér hugmynd að þrívíddarteiknimynd sem gæti orðið ansi vinsæl.

Myndin fjallar sem sagt um u.þ.b. mannhæðarháan páskaunga sem kemur allt í einu út úr risastóru páskaeggi í Kringlunni einn góðan veðurdag. Þetta er samt enginn venjulegur ungi, ó nei!
Þessi ungi er nefnilega lifandi dauður og hefur aðeins lyst á mannakjöti og er því réttilega kallaður Náunginn. Hann byrjar á því að fara út úr Kringlunni og í næsta kirkjugarð til að ná sér í smá næringu en einnig á hann það til að drepa fólk sér til matar. Síðan smíðar hann sér greni, eða nágreni, í Öskjuhlíðinni úr spýtum og laufblöðum þar sem hann hefst við á meðan hann er ekki úti að veiða. Síðan kemur víkingasveitin og reynir að drepa hann en sú tilraun fer út um þúfur. Restina af handritinu á ég svo eftir að hugsa betur, en a.m.k. endar allt nokkuð vel.

Hér er svo myndin sem ég teiknaði, þetta gæti verið veggspjaldið sem væri notað til kynningar:

Náunginn

Hvað segið þið, eru einhverjir fjárfestar tilbúnir í þetta verkefni? Ætti maður kannski að tala við Nýsköpunarmiðstöð?
Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 22. maí 2009, kl. 10:18

Sköpunargleði eða hæfileikar?

Ég fór að pæla í því um daginn hvað ég hef verið duglegur að skapa hluti hérna á þessu vefsvæði í gegnum tíðina.

Dæmi: Tónlist, skrítla, Flash-myndband, þrívíddarmyndbönd, pappírsbíll, panorama mynd, vektormyndir, andbrandari, uppskriftir, auglýsingagerð, saga fyrir börn, gagnrýni, aktívismi, ljóðagerð, æviágrip og margt fleira.

Ég held að það sé sem sagt óumdeilt að ég sé duglegur að skapa. Hins vegar virðist ég ekki hafa úr miklum hæfileikum að spila eins og sömu dæmi sýna glögglega, auk þess að það er augljóst að ég hef ekki náð að fókusa þessum litlu hæfileikum á eitthvað eitt svið.

Hér er smá graf til að skýra þetta betur:
Graf

Hvað get ég gert til að bæta úr þessu?
Mörg andsvör (5)
Föstudagurinn 29. maí 2009, kl. 10:59

Góð ráð til Hollendinga fyrir landsleikinn

Ég mæli með því að þeir tapi leiknum eða geri jafntefli við okkur, því í ljósi sögunnar þá gæti það gert þá að heimsmeisturum á næsta ári.
Við unnum Ítali 2-0 hér fyrir nokkrum árum og eftir það tap þá tapaði ítalska landsliðið ekki leik fyrr en eftir að hafa unnið HM. Næst má svo nefna Spánverja sem gerðu jafnetfli við okkur hérna heima og stóðu svo uppi sem Evrópumeistarar stuttu síðar.
Annars ætla ég að skella mér á leikinn á morgun og að sjálfsögðu held ég með Íslandi þó ég sé 1/4 Hollendingur eins og oft hefur komið fram. Ég verð með jólasveinahúfu og 17. júní fána í eystri (austari) stúkunni ef einhver vill hitta mig á svæðinu.
Mörg andsvör (4)
Föstudagurinn 5. júní 2009, kl. 14:57

Gúrkutíð!

Jamm, sumarið er sú tíð er gúrkurnar eru grænar og tómatarnir rauðir.
Annars finnst mér eins og ég hafi ekki lagt nógu mikið til málanna upp á síðkastið, fólk hefur jafnvel verið að hafa samband við mig og biðja mig um að leggja til lausnir á fjármálakreppunni á Íslandi þar sem það eru ekki nógu margir sem vita ekkert hvað þeir eru að tala um búnir að blóka um það hingað til. Hér eru mín ráð til ráðamanna:



Og svo til að dreifa athygli lesenda frá þeirri staðreynd að ég lagði ekkert merkilegt til málanna þá er hér myndband af handahófi frá YouTube:



Mörg andsvör (6)
Föstudagurinn 12. júní 2009, kl. 13:18

Nýjar gæsalappir hjá mbl.is

Í þessari grein á mbl.is má sjá í texta undir mynd að þeir eru að nota gæsalappir* sem kallast Guillemets sem ég hef ekki áður séð notaðar í íslensku máli en ég minnist þess hins vegar að hafa séð þetta í kennslubókum í dönsku (ekki mjög sællar minningar) í gamla daga. Ástæðan fyrir því að ég hnaut um þetta er að ég hef séð þær mjög nýlega í annarri grein á sama vefsvæði, þ.a. maður hlýtur að spyrja sig hvort þetta sé sérstök stefna hjá þeim eða hvort það sé bara kominn nýr blaðamaður hjá þeim sem er alinn upp í Danmörku.
Einhvern tímann hefði það a.m.k. þótt saga til næsta bæjar að Morgunblaðið (þar sem ennþá má sjá z-una notaða í sumum greinum) væri að taka upp nýjar gæsalappir, en ætli fólk sé ekki uppteknara af öðrum hlutum í dag.

*Það er kannski ekki rétt að kalla þetta gæsalappir þar sem þetta líkist ekki beint gæsalöppum, nema þá ef téð gæs væri pínulítið vansköpuð.
Mörg andsvör (2)
Fimmtudagurinn 18. júní 2009, kl. 13:27