Ég hef stundum lent í vandræðum með sviga og broskalla, t.d. þegar ég er að skrifa tölvupóst og þarf nauðsynlega að nota broskall til að koma því á framfæri að eitthvað sé ekki sagt í fullri alvöru.
Skoðum dæmi (svona er þetta málfræðilega réttast):
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :))
Hér sjáum við að broskallinn lítur furðulega út þar sem hann virðist vera með tvo munna. Við gætum sett bil á eftir munninum og þá liti þetta svona út:
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :) )
Þetta lítur frekar einkennilega út þ.a. við verðum að finna betri leið. Nú þekkja þeir sem hafa komið hafa nálægt forritun að maður skal aldrei láta sviga standa ólokaðan eða loka sviga sem aldrei var opnaður, þ.a. við myndum skrifa þetta á þennan hátt:
Þetta er setning (og þessi setning í sviga endar á broskalli :)
Hér er aðeins einn svigi opnaður og einum lokað og þetta lítur bara nokkuð smekklega út, þ.a. allir góðir menn leysa þetta á þennan hátt. Mörg andsvör (5) Sunnudagurinn 25. apríl 2010, kl. 16:24
HTML5 myndbönd
Ég er aðeins búinn að vera að fikta í HTML5 myndböndum, þ.e. að setja myndbönd beint inn í HTML-ið (á sama hátt og venjulegar myndir) í staðinn fyrir að notast við Flash. Ég var að bæta þessari virkni inn á Sveigur.net og það virðist virka ágætlega. Það þarf reyndar að setja myndbandið á tvö snið til að þau virki í öllum vöfrum, þ.e. OGG og MP4. Hér er smá sýnishorn af því hvernig þetta lítur út:
P.S. Þegar ég horfi á þetta myndband núna skil ég ekki alveg hvað ég var að hugsa þegar ég bjó það til. En svona erum við listamenn víst, algjörlega óútreiknanlegir. Eitt andsvar Laugardagurinn 1. maí 2010, kl. 22:19
Uppskriftabókin mín
Ég var að fá alveg magnaða hugmynd að uppskriftabók sem ég vil endilega deila með tryggum lesendum mínum. Hugmyndin gengur sem sagt út á það sem ég vil kalla víxluppskriftir. Víxluppskrift er sem sagt uppskrift þar sem búið er að taka einhverja þekkta uppskrift og víxla nöfnunum til að fá eitthvað alveg nýtt út. Það þekkja til dæmis flestir bananabrauð. Ef það er gott, af hverju að prófa þá ekki brauðbanana?
Hér eru dæmi um nokkrar uppskriftir sem myndu vera í bókinni:
Bananabrauð? Nei, brauðbanani.
1 stk. banani.
Brauðdeig að eigin vali.
Opnið eina mjóa rönd á bananann og takið „kjötið“ úr. Setjið brauðdeig inn í bananahýðið og bakið í ofni þar til brauðið er tilbúið. Voilà, brauðbananinn er tilbúinn!
Kjúklingapasta? Nei, pastakjúklingur.
1 stk. heill kjúklingur
Pasta
Pastasósa
Sjóðið pastað og setjið síðan sósuna út á það. Troðið pastanu inn í kjúklinginn og steikið hann í ofni þar til kjötið er fulleldað.
Kokkteilsósa? Nei, sósukokkteill.
1 stk. Bernaisesósa
1 stk. Sveppasósa
Blandið sósunum saman og út kemur eitthvað sem enginn hefur smakkað áður. Hér er tilvalið að prófa önnur tilbrigði og það er ekkert því til fyrirstöðu að blanda fleiri sósum saman.
Hafa lesendur hugmyndir að fleiri réttum í bókina? Mörg andsvör (3) Fimmtudagurinn 13. maí 2010, kl. 22:05
Misræmi milli skilta við þjóðveginn
Nú er mér gjörsamlega nóg boðið! Hafið þið tekið eftir skiltum sem þessum við þjóðvegina?
Myndin er tekin í bíl á ferð og því ekki í neitt sérstökum gæðum, en það skiptir ekki öllu máli.
Þetta skilti þýðir sem sagt að framundan sé notalegur bekkur til að sitja við og tré í næsta nágrenni.
Eini gallinn er að það er bara aldrei neitt fjárans tré við bekkinn! Til hvers í skrambanum er verið að teikna þetta bjánalega tré á skiltið ef það er svo ekkert árans tré?! Væri það ekki bara þjóðráð að planta einu fjandans tré við hvern bévítans bekk? Ellegar þarf að eyða fullt af peningum í að afmá þessi déskotans tré af skrattans skiltunum!
Ef þessi ósköp eru ekki nóg til að gera lesendur bandbrjálaða af reiði þá skuluð þið búa ykkur undir það versta, því þetta er sko ekki búið enn. Ónei. Til að bæta gráu ofan á svart þá er misræmi á milli skiltanna að auki! Við skulum skoða aðra mynd af skilti sem finna má í Húnavatnssýslu:
Sjáið þið þetta?! Tréð hallar á myndinni! Og hvað haldið þið svo? Það var ekkert bölvað tré við fjandans bekkinn! Til hvers í fjáranum er verið að setja mynd af hallandi tré á skilti þegar það er svo ekkert fjárans tré?!
Lausleg könnun við þjóðveg 1 leiddi í ljós að meirihluti skiltanna (þegar farið er rangsælis kringum landið) er af fyrri gerðinni, en minna er um skiltin af seinni gerðinni. Flest skiltanna með hallandi tré eru á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Ætli trén séu eitthvað öðruvísi í þeim landshluta?! NEI, ÞVÍ ÞAÐ ERU ENGIN FJANDANS TRÉ VIÐ FJANDANS BEKKINA! Mörg andsvör (5) Þriðjudagurinn 22. júní 2010, kl. 23:16