Anna: Hvað
Anna: Hvað er að þessum blogger og á síðan mín aldrei eftir að verða söm?
Það er ekkert að þessum blogger, og jú, síðan þín verður söm.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 1. júlí 2003
Haldið skal
Haldið skal í útilegu!
Aðra helgina í júlí er vonast til að farið verði við þrítugasta mann í útilegu einhversstaðar á Íslandi, á stað þar sem vatn flæðir sem vín, og gras grær sem tré (?). Afar mikilvægt er að sem flestir sjái sér fært að mæta, jafnvel það pakk sem er að fara í rándýra ferð í Skóga fyrstu helgina í júlí, og væri það þeim til mikils sóma. Eins og orðtakið segir: „Að neyta fíkniefna er eins og að dansa hringdans við rollu. Þú veist aldrei hvar þú endar.“
Engin andsvör Þriðjudagurinn 1. júlí 2003
Hörður: Er
Hörður: Er sárt að detta í lukkupottinn? Hefur einhver mælt hvað hann er djúpur?
Eins og við öll vitum er sársauki afstætt hugtak, því ei eru allir með jafnan sársaukaþröskuld. Þó er almennt ekki talið mjög sárt að detta í lukkupottinn, af því að því falli fylgir gæfa og gjörvileiki. Ekki er óalgengt að eftir fall í lukkupottinn eigi fólk von á lottóvinningum, bifreiðum eða ferð með einkaþotu á tónleika í Nuuk með grænlensku dauðadiskóþjóðlagasveitinni Narsissiquack. Ekkert er þó vitað um gullpottinn sjálfan, þar sem enginn hefur fundið hann, en ef vitað væri um staðsetningu hans væri fyrir löngu búið að byrgja fyrir hann svo fleira fólk asnaðist ekki til að detta í hann. Þó má geta sér til að potturinn sé um 1,83 m djúpur.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 1. júlí 2003
Vegna mikils
Vegna mikils þrýstings er mögulegt að útilegunni verði frestað þangað til þriðju helgina í júlí. Gaman væri að fá skoðun lesenda á málinu.
Engin andsvör Miðvikudagurinn 2. júlí 2003
Þessa drengi
Þessa drengi kannast ég eitthvað við. Man samt ekki hvaðan...
Engin andsvör Þriðjudagurinn 8. júlí 2003
Vegna þess
Vegna þess að fólk er svona óákveðið ætla ég að hafa smá atkvæðagreiðslu hérna í shout outinu. Spurt er: Hvaða helgi í júlí hentar þér best fyrir fjöldaútilegu?
Engin andsvör Miðvikudagurinn 9. júlí 2003
Ari Spari:
Ari Spari: Vildi bara spyrja af hverju aldrei er gott veður um helgar nema stundum?
Það er vegna þess að stundum eru ekki helgar en þegar það er ekki óvíst að ekki sé líklegt að ekki sé helgi, þá er ekkert endilega víst að veðrið sé ekkert alltaf neitt mikið óslæmt, nema síður sé.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 22. júlí 2003
hildur: Hildur
hildur: Hildur fórnar höndum (auðvitað ekki sínum eigin) yfir þessum ósköpum. Og spyr: Haffi hví eru allir svona handónýtir í þessu bloggstússi á sumrin???
Þegar fuglarnir syngja sitt fegursta lag, sólin skín í heiði, lækirnir seytla letilega til sjávar og sumarið í algleymingi, þá eru flestir þeir er halda vefdagbækur fastir í vinnu.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 22. júlí 2003
Ester: ERiggi
Ester: ERiggi stefnan tekin á útilegu um helgina?
Jú! Stefna skal á Suðurland, eða þá kannski Þingvelli?
Engin andsvör Föstudagurinn 25. júlí 2003
Nú er
Nú er svo komið að land það sem við ís er kennt er á leiðinni frá pistlahöfundi. Í staðinn kemur land Spánverja, þar sem bjór flæðir sem vín, og viftur seljast sem kaldar lummur vegna hita. Mun ferð þessi, ef svo mætti kalla, standa yfir í einn fjórða hluta af tveim mánuðum eða 14 daga. Á meðan ferðinni stendur mun pistlaskrifum ekki vera sinnt af sömu alúð og einlægni og áður. Óska ég því öllum á Íslandi góðrar ferðar (samkvæmt eðlisfræðinni er ég kyrr í flugvélinni og frá mér séð er Ísland að þeytast í burtu).
Engin andsvör Föstudagurinn 8. ágúst 2003
Thad
Thad sem á eftir fer er skrifad á Spáni. Ekki er tekin ábyrgd á thvi ad thad vanti einhverja íslenska stafi.
Eins og ádur hefur komid fram er ég í landi Spánverja. Hér er annars ekkert ad frétta, nema ad thad er afar gott vedur. Thá er ég ad fara á leik med Barcelona á fostudaginn á Nou Camp, sem tekur um 100.000 manns í saeti, og thýdir thad ad ég verd mjog lítid hlutfall af heildarfjolda áhorfenda.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 19. ágúst 2003
Nú má
Nú má einhver þarna úti fara að halda partý og bjóða mér í það...
Engin andsvör Þriðjudagurinn 26. ágúst 2003
Leti!
Mennina skortir djörfung og dáð,
duga þeir ei til að blogga.
Vefsíðan orðin skítug og snjáð,
skrifað er ennþá í Mogga.
Já, fólk virðist ekki duga til bloggs lengur. Heyrst hafa yfirlýsingar undanfarið þess efnis að ákveðnir bloggarar ætli að minnka magn bloggskrifa sinna eða jafnvel leggja þau alveg niður í óákveðinn tíma. Ja, heyr á endemi! Er æska þessa lands virkilega orðin svona löt? Svo bera þau fyrir sig afsakanir eins og: „Það er svo mikið að gera í skólanum“ og „Ég verð svo þreytt(ur) í höndunum á því að blogga“. Svei! Þetta hefði enginn sagt í mínu ungdæmi. Þá voru lyklaborðin miklu stífari og ófullkomnari og þá voru heldur ekki til neinar alvöru matvinnsluvélar. Veit æska landsins ekki af því að það er vísindalega sannað að reglulegt blogg stuðlar að betri námsárangri, skilvirkari meltingu og eflir andlegan og líkamlegan þrótt? Sveiattan! Vona ég að þessir aðilar sjái að sér og haldi áfram bloggi, sér og öðrum til ánægju og heilsubótar.
Engin andsvör Mánudagurinn 1. september 2003
Væri ég
Væri ég afar þakklátur ef lesendur færu aftur að setja fyrirspurnir inn á korktöfluna.
Þeim sem ekki hafa nóg að lesa fyrir skólann er bent á að lesa allar færslur þessa vefseturs frá byrjun, því hér er einkar mikið af fróðlegu og skemmtilegu efni.Engin andsvör Þriðjudagurinn 2. september 2003
Football-leikur
Til að undirstrika það hve þetta vefsetur hefur mikla alþjóðlega skírskotun, er næsta færsla á engilsaxnesku.
Next Saturday there will be a landsleikur in soccer between Iceland and Þýskaland. This is a very important landsleikur for the Icelandic national soccer team, because if they win the landsleikur on Saturday, they might get to the Evrópukeppni next year. If they will end up in the annað sæti, they will have to go to the umspil, where they play a few landsleikir with some other teams for a laust sæti in the Evrópukeppni. I encourage everyone to watch the leikur on Saturday, and drink lots of bjór and brennivín while doing so. This will help make the landsleikur a very eftirminnilegur viðburður in your life.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 4. september 2003
hildur: er
hildur: er ég þá dauð???
Nei, en Albert Einstein er löngu dauður.
Engin andsvör Föstudagurinn 5. september 2003
hildur: of
hildur: of ef ég er dauð, þýðir það þá að ég þurfi ekki að skila inn heimaverkefnum???
Það þarf ekkert endilega ekki að þýða að þú þurfir ekki að að sleppa því að skila ekki heimaverkefnum, en það gæti þó þýtt að þú þurfir alls ekkert að láta það ekki ógert að skila ekki sumum, nema síður sé.
Engin andsvör Föstudagurinn 5. september 2003
Anna: Af
Anna: Af hverju var Hr. Óheppinn alltaf svona óheppinn?
Hann var svo óheppinn, því hann varð alltaf fyrir óláni, og skýrir það nafngiftina.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 11. september 2003
hildur: Hvernig
hildur: Hvernig er hægt að taka mark á fólki, dúndrar maður þá bara fótboltanum í það eða...???
Nei, þú þarft að standa ofan á fólkinu og taka markið þannig...
Engin andsvör Fimmtudagurinn 11. september 2003
Síðasta laugardag
Síðasta laugardag sá ég landsleik í knattspyrnu milli Íslands og Þýskalands. Var leikur sá markalaus að endemum en hafði þó ágætt skemmtanagildi. Þó stakk það í augu að aðalstyrktaraðili íslenska landsliðsins var enginn annar en þýski sjálfrennireiðaframleiðandinn Volkswagen. Voru búningar þjálfara sem og leikmanna merktir í bak og fyrir með merkjum framleiðandans. Hlýtur það að vekja upp spurningar um það hvort Þjóðverjar séu með þessu að reyna að múta íslenska landsliðinu til að leggja sig ekki fram sem skyldi í viðureignum þjóðanna. Býst ég við að Þjóðverjar sjálfir væru ekki hrifnir af því að sjá sitt lið merkt í bak og fyrir með auglýsingum frá 10-11 eða Björnsbakaríi. Legg ég því til að fjársterkir aðilar kaupi auglýsingar á þýska búninginn ella verði allur þýskur áróður fjarlægður af íslenska landsliðsbúningnum hið snarasta!
Engin andsvör Fimmtudagurinn 11. september 2003
Þá er
Þá er undirritaður formlega orðinn IAESTE (International Agency of Electronic Student Trade and Everything) fulltrúi tölvunarfræðiskorar Háskóla Íslands.
Hérna er hægt að sjá sönnur þess. Eins og undirritaðs er von og vísa, þá verður hraustlega tekið á þessum málum, án allra vettlingataka. Fæstir vita af því að á Íslandi búa „útlendingar“ þ.e. fólk sem ekki talar reiprennandi íslensku, heldur hrognamál ýmisskonar. Einnig er hægt að greina „útlendinga“ frá Íslendingum á hegðun og atferli. Starf mitt sem IAESTE fulltrúa verður líklega að hjálpa „útlendingunum“ að finna Gullfoss og Geysi og búðir sem selja lundapóstkort.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 11. september 2003
Líkingar
Langar mig að vekja athygli á nýrri málvenju sem ég hef verið að þróa, sem snýst um það að nota skemmtilegar líkingar, máli sínu til stuðnings. Hér eru nokkur dæmi:
Mér leið eins og eskimóa á tunglinu þegar ég hitti Sigga blindfullan niðri í miðbæ í gær.
Bjarni varð eins og arabi í Kringlunni á Þorláksmessu þegar hann sá Böðvar með ísinn.
Sigþrúður segist verða eins og kýr í handsnyrtingu þegar hún þarf að fá sprautu.
Þú ert alveg eins og bavíani nýkominn úr leikhúsi!
Ég verð spenntur líkt og kind á heróíni þegar ég horfi á handbolta.
Eins og sjá má getur þetta lífgað mikið upp á samtöl, og hefur einnig fræðslugildi. Því hvet ég alla til að venja sig á þetta sem fyrst, ella verður litið á þá sem samkynhneigða hrúta á bifreiðaverkstæði.
Engin andsvör Laugardagurinn 13. september 2003
Þá eru
Þá eru Víkingar loksins komnir heim, þ.e. í úrvalsdeildina í knattspyrnu. Eftir áralanga fjarveru eru þeir loksins búnir að endurheimta sæti sitt og vonandi munu Valur og Fram falla í fyrstu deild, þar sem þau eiga heima. Það er gjörsamlega óþolandi að lið eins og Fram, Valur, ÍBV, og KR skuli geta haldið sætum sínum í úrvalsdeildinni árum saman á kostnað alvöru liða eins og Víkings. Það er álíka óeðlilegt og að KR séu Íslandsmeistarar. Vonast ég til að lögum verði breytt hið snarasta til að leiðrétta þetta.
Engin andsvör Laugardagurinn 13. september 2003
hildur: á
hildur: á að mæta í kvöld?
Sokkalega!
Engin andsvör Mánudagurinn 15. september 2003
Nýjung!
Nú er
Nýjung!
Nú er kominn svartur listi hér til hliðar, sem fólk getur lent á ef það er lélegt í bloggi. Hægt er að komast af svarta listanum með því að blogga reglulega.
Engin andsvör Mánudagurinn 15. september 2003
Loksins!
Þá er
Loksins!
Þá er búið að setja upp myndirnar af heimshornaflakki undirritaðs sem lengi hefur verið beðið eftir. Hlekkinn finnið þið hér til hliðar, og þarf aðeins að smella á hann til að skoða myndirnar.
Einnig er hægt að smella hér.Engin andsvör Þriðjudagurinn 16. september 2003
Nú geta
Nú geta börnin tekið gleði sína á ný því nú er búið að setja skemmtilega nýjung á vefsetur þetta.
Smellið hér til að prófa hana!Engin andsvör Þriðjudagurinn 16. september 2003
Nýjung!
Nú geta lesendur sent ástarkveðjur á vefnum. Það eina sem þarf að gera er að skrifa hana inn á korktöfluna hér til hliðar og vona að aðilinn sem kveðjan er ætluð skoði síðuna. Einnig getur fólk sent inn fyrirspurnir er varða ástarmálin og annað því tengdu undir dulnefni, og verður þeim svarað eftir bestu getu.
Dæmi um fyrirspurnÉg er örvhentur, smámæltur og tvíkynhneigður kroppinbakur, blökkumaður og dvergur með málheltu, Tourette´s sjúkdóm og áhuga á skák. Hvernig get ég náð mér í kvenfólk?
Einn í vanda.Engin andsvör Miðvikudagurinn 17. september 2003
Hér er
Hér er afar falleg mynd af pistlahöfundi. Reyndar eru fleiri á myndinni og er þrautin þyngri að greina undirritaðan á henni. Ekki ósvipað Vallabókunum (Hvar er Valli?).
Engin andsvör Fimmtudagurinn 18. september 2003
Ef einhverjir
Ef einhverjir lesendur vita hvenær ég get farið að skila inn framlagi mínu í næstu Evróvisjón-undankeppni, endilega látið mig vita.
Engin andsvör Fimmtudagurinn 18. september 2003
Anna: Jæja
Anna: Jæja þá hani, reddaðu mér gaur!
Kæra Anna!
Ég get því miður ekki reddað þér gaur bara sísona, en ef þú ert mjög örvæntingarfull þá er mikið af einhleypum strákum í tölvunarfræðiskor Háskóla Íslands. Þeir eru upp til hópa einnig mjög örvæntingarfullir. Það eina sem þú þarft að gera er að senda þeim tölvupóst.
Haffi (ekki hani)
Engin andsvör Föstudagurinn 19. september 2003
ein í
ein í vanda: Hvernig er best að ignora stráka sem vilja alltaf fara úr öllum fötunum í kringum mann???
Kæra ein í vanda!
Þessi vandi er mjög algengur hér á Íslandi. Á honum eru ekki margar lausnir en ég get þó nefnt tvær. Ein er sú að ganga um með bundið fyrir augun, en það hefur þó ýmsar hliðarverkanir í för með sér. Önnur og betri er sú að hugsa um bleikan fíl næst þegar einhver byrjar að afklæða sig og þá er víst að þú munt ekki taka eftir því.
Haffi
Engin andsvör Föstudagurinn 19. september 2003
Einn feiminn:
Einn feiminn: Hvernig get ég náð mér í kvenmann ef ég er of feiminn til að tala við annað fólk og þorri heldur ekki útúr húsinu af feimni við annað fólk?
Kæri Einn Feiminn!
Feimni er algengt vandamál í samfélaginu, og þarf fólk af báðum kynjum að kljást við þetta vandamál. Þó er til góð lausn við vanda þessum, og heitir hún
MIRC (oft kallað Irkið). Þar kemur feimið fólk saman án þess að fara út úr húsi og talar við annað fólk undir nafnleysi og þarf því ekki að hafa áhyggjur af feimninni. Þá er oft nóg að fara inn á svokallaðar
spjallrásir á
Irkinu og skrifa inn eftirfarandi texta:
Hæ, ég er ýkt opinn og myndarlegur 18 ára gamall gaur og vill tala við stelpur á sama aldri sem eru líka geðveikt sætar og skemmtilegar. Msg me! Þá er næsta víst að einhver stelpa sem á við sama vandamál að stríða muni svara þér. (Aths. Ekki er víst að stelpurnar sem svara þér séu sætar eða skemmtilegar).
Haffi
Engin andsvör Föstudagurinn 19. september 2003
Oggi: Haffi
Oggi: Haffi er það rétt hjá Önnu að þú sért hani?
Fyrirspyrjandi er líklega að vísa til nokkurra skilaboða sem sett höfðu verið á korktöfluna hér til vinstri. Þar hafði undirritaður notað málsháttinn:
Stundum kennir eggið hananum. Virðist téð Anna hafa misskilið notkun málsháttarins og hélt því í fávísi sinni að haninn táknaði undirritaðan. Það er þó auðvitað ekki rétt þar sem undirritaður átti að vera
eggið. Vonast er til að þetta hendi ekki aftur.
Engin andsvör Föstudagurinn 19. september 2003
Anna: Akkurru
Anna: Akkurru er Binni farin af svarta listanum?
Ákveðið var að sýna nýliðum meiri linkind (e. softsheep) við niðurröðun á lista. Vert er að taka fram að hægt er að kæra veru sína á svörtum lista á korktöflunni hér á vefsetrinu.
Engin andsvör Mánudagurinn 22. september 2003
Anna: Er
Anna: Er ég ein sem nota shout outið?
Virðist svo vera sem annað fólk kunni ekki að nota þennan annars sniðuga aukahlut hér á vefsetrinu. Kann undirritaður fyrirspyrjanda miklar þakkir fyrir að færa sér þetta í nyt.
Engin andsvör Mánudagurinn 22. september 2003
Anna: Eru
Anna: Eru karlmenn ekki til þess að nota þá?
Þetta eru einkunnarorð Femínistafélags Reykjavíkur og nágrennis (FRON) þó undirritaður viti ekki hvort þau séu sannleikanum samkvæm.
Engin andsvör Mánudagurinn 22. september 2003
Anna: Hvernig
Anna: Hvernig nær maður áttum?
Að reyna að ná áttum er vinsæl íþrótt í Evrópu. Það sem maður þarf í veiðina er:
1 stk. vindhani
4 stk. önglar
4 stk. áttavitar
Önglarnir eru bundnir í vindhanann með jöfnu bili og áttavitarnir settir á önglana. Þá er ekkert annað eftir en að bíða eftir því að áttin bíti á. Berist fram með rauðrófum, uxahalasúpu og knæpuháfmeri í villisvínasósu.
Engin andsvör Mánudagurinn 22. september 2003
Oggi: er
Oggi: er það rétt að hænan leggist á bakið þegar hún leggst á egginn? og er vont að láta hænu leggjast á sig ef maður er egg?
Eins og allir vita hafa egg aðeins einn samhverfuás, sem gengur lóðrétt í gegnum eggið. Ás þessi er þó með öllu ósýnilegur. Samhverfuásinn hefur það í för með sér að eggið er afar sterkt og illbrjótanlegt, sé átakinu beitt í sömu átt og hann. Sé því hins vegar beitt þvert á samhverfuásinn er eggið auðbrjótanlegt. Þetta veit hænan og leggst því aðeins beint ofan á eggin þannig að átakið er í sömu átt og ásinn. Þá leggst hún á bakið til að hún geti séð ef hætta steðjar að hreiðrinu, þ.e. ef refur eða minkur ásælist eggin. Þetta verður einnig til þess að ekki er vont að láta hænu leggjast á sig sé maður egg.
Engin andsvör Mánudagurinn 22. september 2003
Yngri kynslóðin
Pistlahöfundur hefur legið undir ámæli fyrir að tala ekki tungumál unglinganna. Því verður næsta færsla á unglingamáli.
Ég fór á alveg ýkt steikta mynd um helgina, sem hét
Herdeild hinna svolítið skrýtnu séntílmenna og það var alveg geðveikt! Sean Connery var alveg útúrgrillaður í myndinni og svo var alveg ýkt flippaður skipstjóri með sverð og svona. Ég var sko einn happý gaur eftir myndina því hún var svo geðveikt góð. Ýktar tæknibrellur og ógeðslega flott bardagaatriði! Svo var einn gaur í myndinni alveg geðveikt grillaður, hann var stundum svona ýkt lúðalegur en stundum var hann alveg geðveikt massaður þannig að fötin rifnuðu af honum! Ef einhver böggaði hann þá varð hann sko alveg brjálaður Johnson, og þá hugsaði maður bara, hey, tjillaðu á spjaldinu, maður! Ég fór alveg útúrgrillaður úr bíóinu en ég var sko alveg orðinn tjillaður á malbikinu daginn eftir.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 23. september 2003
Undirritaður hefur
Undirritaður hefur í hyggju að koma hinni svonefndu „flash mob“ (ísl. skyndimúgur) hefð í gang á Íslandi. Virkar hún þannig að hópur fólks kemur saman á ákveðnum stað og tíma og gerir ýmsar kúnstir. Hægt er að lesa nánar um þessa hefð
hér. Vonast er til að undirtektir verði góðar, því góð þátttaka er skilyrði fyrir því að þetta virki. Þá var hugsunin að múgurinn stæði á fjölförnum stað og horfði og benti upp í loftið í ca. 5 mínútur, þá byrja allir að öskra og hlaupa í burtu eins hratt og þeir geta.
Engin andsvör Föstudagurinn 26. september 2003
Bynni: Varðandi
Bynni: Varðandi þennan ,,leiftur múg", hafa menn ákveðið stað og stund ?
Nei, ekki hefur verið ákveðið með stað og stund og heldur er ekki mikið útlit fyrir að af þessu verði, því aðeins örfáir hafa staðfest komu sína. Það er ekki múgur.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 30. september 2003
Oggi: Hey
Oggi: Hey Haffi varðandi þenna Bynna afhverju kom hann ekki í bandítíman í dag?
Þessi Bynni þjáist af tognun í ökkla eftir að hafa dansað yfir sig af Bandímannadansinum (e. Bandyman) við lagið „Candyman“ með Aqua á Tuttuguogtveimur (22) um helgina.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 30. september 2003
Oggi: Hvernig
Oggi: Hvernig myndir maður sem missti hendurnar í víetnam stríðinu og fæturnar í háskaför í persaflóastríðinu fyrra og tungunar í því seinna ná sér í konu sem lítur út eins og Claudia Schiffer?
Þessi óheppni maður þyrfti líklega bara að senda henni tölvupóst, því ég held að Claudia Schiffer sé svo gömul að það sýni henni enginn áhuga lengur. Annars þarf hann að finna einhverja sem lítur eins út.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 30. september 2003
Undirritaður mælir
Undirritaður mælir með því að fólk sem áhuga hefir á lögfræði lesi
þetta hér.
Engin andsvör Þriðjudagurinn 30. september 2003