Haffi!


Kindur og þulur

Nú fór undirritaður í ferð til Egilsstaða á dögunum, og eins og flestir vita þá er það nokkuð löng leið sem þarf að fara til að komast þangað. Á þessari löngu leið sá hann 1.573 kindur, sem er ekki í frásögur færandi nema að því leyti að undirritaður fór að hugsa um hvort kindur væru hentug gæludýr.
Nú hefur undirritaður nokkrum sinnum komist í návígi við kindur (og séð þær í sjónvarpinu), og í öll þau skipti hafa kindurnar horft á hann ýsuaugum, svona rétt eins og þær viti að það er einhver þarna nálægt en þeim er annars alveg skítsama. Ef þessi hlutur kemur of nálægt kindunum þá er eins og einhver sjálfvirkur búnaður fari í gang og láti þær hlaupa aðeins fjær hlutnum (sem í þessu tilfelli er undirritaður) og þar halda þær áfram að borða gras og stara á mann tómum augum. Af þessu hefur undirritaður dregið þá ályktun að kindur eru vélmenni, sem þó eru af holdi og blóði, því þær hafa a.m.k. engar tilfinningar og öll viðbrögð þeirra minna á vélmenni. Því má telja að kindur séu afar óhentug gæludýr, því ekki eru miklar líkur á að kindur vilji láta leika við sig eða klappa sér, því þær hafa aðeins áhuga á að borða gras.
Líklega er ekki hægt að kenna þeim neinar kúnstir, a.m.k. myndu þær bara stara tómum augum á þann sem reyndi að kenna þeim eitthvað, og hugsa um hvar næsta beitarland sé. Þó má ekki líta svo á að kindur hugsi mikið, því þær eru bara forritaðar til að hugsa um gras. Þó það sé falleg tilhugsun að hafa gælukind sitjandi í fanginu á sér þegar maður er að horfa á sjónvarpið, þá er það að öllum líkindum ómögulegt, svo ekki sé talað um allan skítinn og ullina sem fer út um allt, því það er alls ekki hægt að gera kindur kassavanar. Því mælir undirritaður ekki með því að fólk taki að sér gælukindur og biður fólk um að vara sig á sölumönnum sem selja s.k. „ullarhvolpa“, því það eru alls ekki til hundar sem hafa ull í staðinn fyrir feld.
Að öðru: Af hverju í hundblautum déskotanum horfir þulan í sjónvarpinu alltaf á undirritaðan þegar hún er að þylja upp sjónvarpdagskrána? Oft eru margir fleiri í stofunni þegar þetta á sér stað, en samt horfir hún alltaf beint í augun á undirrituðum. Honum þótti svo nóg um þegar karlþulan gerði það sama. Þeim tilmælum er hér með beint til þeirra sem þylja upp dagskrána í sjónvarpinu að horfa aðeins lengra til vinstri eða hægri í framtíðinni. Takk fyrir.
Mörg andsvör (2)
Föstudagurinn 23. júlí 2004

Ég gafst

Ég gafst upp á þessum árans teljara frá Teljari.is og fékk mér bara minn eigin. Hver man hvað gamli teljarinn var kominn upp í?
Mörg andsvör (20)
Laugardagurinn 14. ágúst 2004

Ég hef

Ég hef ákveðið að stofna hljómsveitina Sheet Fook Ho. Mig vantar þó ennþá nokkra hluti:

Trommuleikara
Söngvara
Bassaleikara (ekki nauðsynlegt)
Rótara
Grúppíur
Allan búnað sem hljómsveitum fylgir (nema gítar)
Fullt af peningum


Er einhver sem býður sig fram?
Mörg andsvör (11)
Miðvikudagurinn 18. ágúst 2004

Þeir sem

Þeir sem sakna gömlu korktöflunnar og teljarans og jafnvel gamla kommentakerfisins sem nú er búið að loka, geta farið á þessa síðu, og jafnvel skrifað í gömlu korktöfluna.
Mörg andsvör (2)
Föstudagurinn 27. ágúst 2004

Hér með

Hér með tilkynnist að hljómsveitin Sheet Fook Ho mun halda sína fyrstu hljómsveitaræfingu í september. Enn er nóg pláss fyrir fleiri hljómsveitarmeðlimi. Annars eru þær kröfur gerðar til hljómsveitarmeðlima að kunnátta sé í lágmarki og hvatt er til áfengisdrykkju á meðan æfingu stendur. Nánari tímasetning kemur síðar, en æfingin verður haldin í æfingahúsnæði hljómsveitarinnar að Kleifarási.
Engin andsvör
Mánudagurinn 30. ágúst 2004

Hér eru

Hér eru komnir nokkrir lagatitlar fyrir hljómsveitina Sheet Fook Ho:


Óendanlega orkudjúpi einvíði kassinn
Kúbollan mín
Hey Siggi, go Siggi!
Tilbrigði við bandý


Nú þurfum við bara að semja lögin og gefa þau út! Ef þið hafið hugmyndir að fleiri lagatitlum, skellið þeim í bakflæðið.
Mörg andsvör (3)
Föstudagurinn 3. september 2004

Jæja, þá

Jæja, þá er kallinn bara á leiðinni í segulómun. Þá kemst ég að því hvort ég sé með brjósklos eða klemmda taug. Annars má maður ekki vera vera með málmhluti í sér þegar maður fer í svona segulómun, þannig að ég gæti verið í vondum málum með skrúfurnar. Læknirinn sagði reyndar að líklega væru þær ekki ferrómagnetískar þannig að ég ætti að sleppa. Hins vegar hlýtur maður að hugsa um hvað myndi gerast ef þær væru ferrómagnetískar. Verða þá skrúfurnar segulmagnaðar og fer ég að festast við ísskápa og aðra málmhluti? Vonandi ekki.
Annað mál. Lítill fugl hvíslaði því að mér að drengur nokkur, sem við skulum kalla G. Unnar, sé að fara að opna blókarsíðu. Hann sagði mér einnig að þessi drengur ætli að leggja sjálfan sig að veði í tilraun sem tekur tvo mánuði, og mun hann skrifa allt um framgang tilraunarinnar á síðuna. Hér verður hvorki ljóstrað upp um hver drengurinn er né út á hvað tilraunin gengur, því þetta kemur allt í ljós von bráðar.
Mörg andsvör (6)
Mánudagurinn 6. september 2004

Ég hef

Ég hef bara aldrei heyrt annað eins. Tvímælalaust ein besta frétt ársins.
Eitt andsvar
Þriðjudagurinn 14. september 2004

Ég sem

Ég sem hélt að bara gamalt fólk fengi brjósklos. Björtu hliðarnar eru þó þær að ég fæ að fara í aðgerð, sem þýðir líklega að ég fæ kæruleysispillu, og ef ég er mjög heppinn fæ ég morfín. Það er samt frekar ólíklegt. Svo fæ ég að vera eitthvað á spítala, sem þýðir að fólk kemur í heimsókn með nammi og (vonandi) andrésblöð. Svo eru reyndar einhverjar líkur að ég þurfi ekki að fara í aðgerð, en við skulum vona að svo fari ekki.
Mörg andsvör (2)
Föstudagurinn 17. september 2004

Ég gæti

Ég gæti aldrei verið í vinnu þar sem bannað er að segja „úps.“ Til dæmis gæti ég aldrei orðið skurðlæknir, því ég er alltof mikill klaufi. Ég myndi alltaf skera á vitlausar æðar, fjarlægja fót í staðinn fyrir æxli o.s.frv. Ég er mjög gjarn á að segja „úps“ við hvert tækifæri þar sem ég geri alltaf eitthvað bjánalegt. Einu sinni ætlaði ég að verða flugmaður, en sem betur fer varð ekki mikið úr því. Hver vill sitja í flugvél og allt í einu heyrist „úps!“ úr flugstjórnarklefanum? Þess vegna held ég að ég sé á réttri braut í hugbúnaðarverkfræði en ekki t.d. í byggingarverkfræði, því það væri svo vandræðalegt að vera alltaf að segja „úps“ þegar byggingarnar manns hrynja.
Annars vildi ég vekja athygli á því að það er komið nýtt lag vikunnar, sem er að þessu sinni mjög áhugavert.
Mörg andsvör (10)
Miðvikudagurinn 22. september 2004

Ég er

Ég er að hugsa um að stofna FFSNBEUESÍE (Félag fólks sem notar bara eitt upphrópunar- eða spurningarmerki í einu). Tvö eða fleiri upphrópunarmerki segja ekkert meira en eitt, maður nær ekkert að leggja meiri áherslu á mál sitt með því. Svo hafði ég líka hugsað mér að stofna Rannsóknastofnun sjávarútvegsins (RASS).
Mörg andsvör (3)
Mánudagurinn 27. september 2004

Hvetjið Gunna

Hvetjið Gunna til að opna bloggsíðu!
Engin andsvör
Þriðjudagurinn 28. september 2004

Botnið þessa: Bandýið

Botnið þessa:

Bandýið er mikið böl,
bændastéttin segir.

Mörg andsvör (13)
Miðvikudagurinn 29. september 2004