Yfirlýsing vegna
Yfirlýsing vegna yfirlýsinga um að hér sé ekki nóg af yfirlýsingumÞað er bara nokkuð til í því.
Mörg andsvör (2) Miðvikudagurinn 13. júlí 2005
Lenti í
Lenti í miðri umræðu um list um helgina, og þá sérstaklega myndlist. Það kom nú ekkert sérstakt út úr þeirri umræðu, nema það að það er hægt að græða alveg helling á að klessa málningu á striga og selja hann svo, þannig að nú er ég orðinn að listmálara og kominn með umboðsmann og allt. Búast má við að fyrstu málverkin fari að líta dagsins ljós í vetur og að peningarnir fari að streyma inn um sama leyti.
Mörg andsvör (4) Mánudagurinn 18. júlí 2005
Ég vil
Ég vil hér með skora á þessa svörtu sauði, sem ekki eru með almennilega heimasíðu eða blók, að bæta úr því hið snarasta! Tæknisinnaðir drengir eins og Hlynur og Gunni eiga að sjá sóma sinn í því að halda úti u.þ.b. einni lítilli heimasíðu á þeirri miklu tækniöld sem við lifum á. Þetta er einfaldlega hneyksli og ekkert minna!
Mörg andsvör (18) Fimmtudagurinn 21. júlí 2005
Nú ætla
Nú ætla ég að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu næstkomandi laugardag, og hlaupa 10 km, þrátt fyrir að vera haltrandi sjúklingur. Þar sem Gunni ætlar einnig að taka þátt, verður þetta gert að góðgerðarhlaupi undir yfirskriftinni „Haltur leiðir vondan“. Hlaupið verður til styrktar Karlrembufélagi Húnavatnssýslu (KAHÚNA). Þeim sem vilja styrkja gott málefni er bent á að faxa peningana beint til samtakanna í númerið 44-REMBA.
Einnig er vert að geta þess að það er komið nýtt lag mánaðarins.
Mörg andsvör (19) Miðvikudagurinn 17. ágúst 2005
Gömlu vinir.Velkomnir
Gömlu vinir.
Velkomnir aftur.
Æ, hvað ilmurinn af skólabókunum er alltaf yndislegur. Það er líka gaman að hitta hleifinn og langlokuna úti í bakaríi. Og kókómjólkina, ekki má gleyma henni. Kennararnir í VR-II alltaf jafn hressir og skemmtilegir. Æðislegt að sitja í tímum á morgnana og læra um allt milli himins og jarðar. Sitja í tölvuverinu, jafnvel við hliðina á Hlyni og leysa skemmtileg og ögrandi verkefni. Frábært.
Hitta alla hina nemendurna með glaðlegan svip því þeir hlakka svo mikið til að fara í næsta tíma. Ómetanlegt.
Ég vildi að ég gæti alltaf verið í skólanum.
Mörg andsvör (5) Miðvikudagurinn 31. ágúst 2005
Ég er
Ég er sko orðinn sannkallaður Paw Krua, en það er tælenska og þýðir „faðir eldhússins.“ Ég er nefnilega búinn að læra að brasa dýrindis grænmetisrétt, sem kallast einfaldlega „steikt grænmeti í ostrusósu“ og verður að segjast að niðurstöðurnar voru bara aldeilis ágætar. Næsta skref verður líklega að skella sér í Sælkerabúðina eða IKEA til að kaupa wok-pönnu til að gera lífið einfaldara.
Annars hafði ég hugsað mér að bæta við nýjum lið á setrið sem kallast „ritdeilur“, en hann myndi virka þannig að ég myndi velja eitthvað álitaefni, skipta lesendum síðunnar (öllum sex) í tvö lið og þeir myndu svo rökræða þetta mál fram og til baka. Skiptingin í lið mun svo ekki taka tillit til þess hvaða skoðun fólk hefur í alvörunni, enda meira til gamans gert.
Mörg andsvör (5) Miðvikudagurinn 7. september 2005
Ritdeilur hinar fyrstu
Nú er Davíð Oddsson búinn að ákveða að hætta í pólitík fyrir fullt og allt eftir langan og farsælan feril. Nú sýnist sitt hverjum um það hvort verk hans sem borgarstjóri og forsætisráðherra hafi verið Reykvíkingum og Íslendingum til hagsbóta.
Þar sem ég er í liðinu sem er með Davíð, ætla ég að slengja fram þessari fullyrðingu: Íslendingar hafa fengið aukið frelsi, orðið ríkari og ánægðari. Erlendar skuldir hafa verið greiddar niður, fyrirtæki einkavædd og síðast í gær mátti heyra fréttir um það að Ísland væri í öðru sæti yfir þau lönd í heiminum sem best væri að búa í, á eftir Norðmönnum. Þess vegna má segja að verk Davíðs hafi verið okkur öllum til hagsbóta.
Nú er liðsskiptingin svona:
Með Davíð: Móti Davíð:
Ég Gunni
Bynni Oggi
Eva Hlynur
Aðrir lesendur eru auðvitað hvattir til að taka þátt, og mega þeir velja sér lið eftir hentugleika, en það verður þó að vera jafnt í liðum. Þá er bara um að gera fyrir alla að tjá sig um málið, sama hvort þeir hafi alvöru skoðun á því eða ekki.
Mörg andsvör (24) Fimmtudagurinn 8. september 2005
Að góðum vini gengnum
Nú er hinn geðgóði
Guttormur allur. Stórbeinótta nautið sem gat ávallt fengið gesti Húsdýragarðsins til að brosa sínu breiðasta. Hann sýndi okkur að þó maður sé örlítið þybbinn og yfir kjörþyngd, þá er það ekkert til að hafa áhyggjur af. Það var alltaf hægt að horfa í augu hans og sjá að hann hafði engar áhyggjur yfirhöfuð, nema kannski af því að hann væri svangur og langaði í gras. Hann undi sér alltaf vel í haganum, þar sem hann gat borðað grasið sitt í góðu yfirlæti með félögum sínum og horft í augu gestanna með sínum áhyggjulausa svip. Farvel, kæri vinur, nú ert þú líklega kominn í Hagann mikla, þar sem þú getur borðað gras til eilífðar með bros á vör eins og þér einum er lagið.
Mörg andsvör (5) Föstudagurinn 16. september 2005
Ritdeilur II
Nú er komið að málefni sem allir kannast við, en það eru svitabönd. Sitt sýnist hverjum og oft þegar rætt er um alvarleg málefni sem þetta verður mönnum heitt í hamsi. Þátttakendur eru þó beðnir um að sýna stillingu og rökfestu og spara stóru orðin. Nú leyfi ég mér að slengja fram fullyrðingu:
Svitaband er barn síns tíma, hallærislegur eftirbátur níunda áratugarins sem ætti að vera löngu farinn úr öllum skápum og skúffum landans. Þessu til stuðnings læt ég eftirfarandi mynd fylgja með:

(Svitaband heitir jú sweatband á ensku fyrir þá sem vilja nota google)
Með: Á móti:
Eva Ég
Bynni Oggi
Hlynur Gunni
Mörg andsvör (20) Þriðjudagurinn 20. september 2005
Ritdeilur III
Ég ætla að nýta hugmynd Bynna í þetta skiptið (ég meina, hver gæti verið í liði með Emacs á móti Vi?), þ.e. spurningin er hvort Haffi sé stórbrotinn snillingur eða froðufellandi geðsjúklingur. Eins og endranær byrja ég umræðuna með fullyrðingu:
Eins og við höfum séð í næstum þrjú ár, þá er Haffi augljóslega andlega vanheill, ég bendi t.d. á færslur eins og
þessa um Löduna sem sýnir að honum sárnar umfjöllun um auma bílategund! Einnig bendir
greinin um Vladimir Stavrov sterklega til þess að ekki séu öll ljós kveikt á efri hæðinni hjá höfundinum.
Með Haffa: Á móti Haffa:
Oggi Haffi
Bynni Eva
Hlynur Gunni
Mörg andsvör (17) Mánudagurinn 26. september 2005