Fyrst maður
Fyrst maður hefur ekkert betra að gera í veikindafríinu en að liggja í leti, þá ákvað ég að endurvekja lag mánaðarins, en með breyttu sniði. Núna hef ég ákveðið að með lögum vikunnar fylgi tónlistarmyndbandið, lesendum síðunnar til ánægju- og yndisauka (einnig kemst ég hjá því að brjóta lög (afsakið orðaleikinn)). Einnig mun bakflæðið breytast aðeins, en þó bara að því leyti að nú mun bakflæðið ekki vera hreinsað út þegar ný lög koma, heldur verður sama bakflæðið alltaf á staðnum. Því væri þeim aðilum til sóma sem myndu hafa fyrir því að geta lagsins í bakflæðinu svo lesendur viti a.m.k. við hvað það á.
Mörg andsvör (4) Þriðjudagurinn 25. júlí 2006
Jæja, nú
Jæja, nú er ég búinn að vera enn duglegri og er loksins búinn að setja upp
MySpace síðu, eins og allir virðingarverðir tónlistarmenn þurfa að gera. Mér skilst að þarna séu umboðsmenn að skoða síðurnar reglulega til að finna einhverja hæfileikaríka tónlistarmenn, þannig að ekki er ólíklegt að ég verði kominn með stóran plötusamning upp í hendurnar á næstu vikum.
Mörg andsvör (12) Föstudagurinn 28. júlí 2006
Ég lofaði
Ég lofaði
Herði því nýlega að semja nýtt lag, og nú er kominn tími til að standa við fögur fyrirheit. Nýja lagið heitir
Crazy Jesus, en eins og nafnið gefur til kynna er það hápólitískt og er hér stungið á kýlum eins og venjulega. Lagið var eins og mörg önnur tekið upp í Apavatnskirkju og eins og áður spilar Strengjasveit Apavatns og nágrennis (STRAPON) undir til að auka á dramatíkina. Þá fékkst DJ Snot til að endurhljóðblanda lagið og varð til úr því
annað lag sem ekki er síðra.
Lagið er þó búið til útfrá einu af mínum fyrri lögum og hefur mjög sterka tengingu við það. Sá eða sú sem getur sagt mér hvert lagið er og hver tengingin er fær að launum stórglæsilegan rauðan baðslopp (auðvitað nýþveginn) úr Rúmfatalagernum að verðmæti 1500,- kr.
P.s. Það er loksins komin mynd af mér
hérna.
Mörg andsvör (4) Föstudagurinn 25. ágúst 2006
Ég er
Ég er víst ekki alveg nógu duglegur að skrifa eitthvað hérna, og nú ætla ég að reyna að gera bragarbót á því. Undanfarið hef ég aðeins skrifað færslur í tilefni þess að eitthvað hefur breyst á síðunni en annars hefur innihaldið verið heldur rýrt. Bara til að halda áfram með leiðindin þá vildi ég benda á það að það er komin enn ein nýjungin á síðuna, en það er hlekkur á efstu frétt á
mbl.is. Stundum pæli ég í því af hverju ég er að vesinast í að búa til þessa síðu fyrir allt að þrjá virka lesendur (ég innifalinn). Ég held að þetta sé aðallega vegna þess að mér finnst gaman að búa til eitthvað asnalegt, eins og þessi mbl.is hlekkur sannarlega er.
Jæja, þá er komið að því að fara að tala um málefni líðandi stundar, enda er ég alltaf með puttann á púlsinum og ekki hræddur við að stinga á kýlum. Nú var söngvakeppnin Eurovision einhverntímann um daginn minnir mig, og ég held að hún hafi verið haldin einhversstaðar við Miðjarðarhafið. Nú fór einhver stúlka utan sem ég man ekki hvað heitir, og hún stóð sig ekkert sérstaklega vel, held ég. Annars hef ég voða litlar skoðanir á þessu.
Ég mun halda áfram að fylgjast með málinu og læt lesendur mína að sjalfsögðu vita ef ég gref upp eitthvað meira um þetta.
Mörg andsvör (14) Þriðjudagurinn 29. ágúst 2006
Þættir
Mig langar að setja saman lista yfir þætti sem sjónvarpsstöðvarnar ættu að hefja sýningar á, vegna þess að þeir eru annað hvort vel skrifaðir eða hafa nostalgíugildi (eða bæði). Nokkur dæmi:
Derrick
Klaufabárðarnir
Kærleiksbirnirnir
Línan
Leirkallarnir
Quantum Leap
Thundercats
Airwolf
Nick Knatterton (gætu hafa heitið eitthvað annað)
Two Stupid Dogs
Matlock
Rescue 911
Unsolved MysteriesÞið lesendur megið einnig bæta því sem þið viljið við á þennan lista, svo þarf bara einhvern duglegan til að senda hann á sjónvarpsstöðvarnar.
Mörg andsvör (40) Föstudagurinn 8. september 2006