Haffi!


Enn ein nýjungin

Af illri nauðsyn hefur nýrri tækni verið bætt á síðuna. Þessa tækni kalla ég TEGÁMVOM (tækni er greinir á milli véla og manna), og eins og nafnið gefur til kynna þá er það til að koma í veg fyrir athugasemdir frá vélmennum (Já, það eru vélmenni úti í heimi sem sitja fyrir framan tölvu og setja inn asnalegar athugasemdir um stinningarlyf o.fl. á síður fólks!).
Nú dettur mér reyndar í hug að vélmennin giski á svona spurningar þar sem við á, þannig að kannski er prófið ekki alveg nógu skothelt. Við skulum sjá hvernig þetta reynist til að byrja með, og ef með þarf þá bæti ég þetta eitthvað seinna meir.
Mörg andsvör (17)
Miðvikudagurinn 11. júlí 2007, kl. 17:33

Maraþon

Nú erum við Eva búin að skrá okkur í 10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoninu. Hægt er að heita á okkur hér að klára hlaupið og rennur áheitið til góðgerðarmála. Ég vil hvetja sem flesta til að taka þátt þar sem þetta er einkar hressandi. Athugið að það þarf ekki að vera í góðu formi og heldur ekki að hafa sérstakan áhuga á hlaupum. Tíminn skiptir alls engu máli, skemmst er að minnast þess þegar ég og Gunni hlupum sömu vegalengd fyrir tveimur árum með vægast sagt misjöfnum árangri. Hægt er að sjá hlaupaleiðina hér (græna línan).
Þeir sem ekki hafa áhuga á að taka þátt mættu vera hvetjarar og standa einhversstaðar á hlaupaleiðinni með ískaldan bjór fyrir okkur þyrsta hlauparana.
Mörg andsvör (14)
Laugardagurinn 21. júlí 2007, kl. 13:45

Skítamix


Ég er að hugsa um að reyna koma þessari mynd inn í næstu orðabók sem skilgreiningu á orðinu skítamix.
Þetta er tengið á spennubreytinum fyrir fartölvuna sem ég hef þurft að skipta um tvisvar áður, og nú er það enn og aftur ónýtt. Verst að hvert tengi kostar heilar 200 kr.

Ég vildi samt geta haldið áfram að nota tölvuna þar sem rafhlaðan dugir ekki of lengi, þannig að ég tók þessa fínu bréfaklemmu og eins og sjá má, þá tengist mínusinn sína leið úr brotna tenginu í gegnum bréfaklemmuna og þaðan í tengið sjálft. Plúsinn tengist bara sína venjubundnu leið í gegnum pappírinn og límbandið og í tengið. Ég myndi samt ekki fara út úr húsi án þess að taka þetta úr sambandi fyrst...

Ástæðan fyrir því að þetta brotnar alltaf er sú að ég er með svo stutta víra til að vinna með þar sem það er svona segulklumpur á snúrunni sem á að taka burt s.k. stöðurafmagnstoppa, en ég held að í næstu viðgerð þá fái hann að fjúka þar sem þetta gerir hvort eð er ekkert gagn.

Ef þið lendið í einhverju svipuðu þá getið þið hringt í mig og ég kem á staðinn með bréfaklemmu eða hefti og redda málunum.
Eitt andsvar
Þriðjudagurinn 24. júlí 2007, kl. 22:09

Leiðindablók

Nú eru flestir sammála um það hvað þessir heilhveitis blókarar á mbl.is eru þurrpumpulegir og leiðinlegir. Þeir reyna að ná athygli fólks sem les fréttirnar með því að skrifa einhverja ræpu um hverja einustu frétt sem birtist á síðunni.
Eftir að hafa rætt þetta vandamál nýlega í góðra vina hópi, ákvað ég að reyna að gera eitthvað róttækt í málunum, þannig að ég er búinn að "búa til" Greasemonkey skriftu sem hendir út blókunum sem birtast við fréttirnar. Kóðinn er að mestu leyti fenginn héðan með mjög litlum breytingum.
Til að setja þetta í ykkar vafra (þetta virkar bara í Firefox), þá þurfið þið einfaldlega að fara hingað og smella á "install now" til að setja upp Greasemonkey.
Síðan skal sækja þessa skrá og ýta á "install". Þá eruð þið laus við blókræpuna!

P.S. Þess má geta að þetta er 400. færslan á þessu blóki. (Talandi um blókræpu!)
Mörg andsvör (13)
Mánudagurinn 30. júlí 2007, kl. 23:59

Gjafavörur

Nú kannast flestir við hugtakið „gjafavörur.“ Hver er skilgreiningin á gjafavörum? Eru það ekki vörur sem fólk kaupir til að gefa öðrum, þ.a. fólk kaupir almennt ekki gjafavörur fyrir sjálft sig?

Af hverju ætli fólk kaupi þær ekki fyrir sjálft sig?
Nú, kannski af því að það langar ekki í þær!

Ég ætla hér með að leggja til að allar gjafavöruverslanir og gjafavörudeildir verði lagðar niður, og að allar gjafir verði keyptar í alvöru búðum.
Mörg andsvör (13)
Fimmtudagurinn 9. ágúst 2007, kl. 11:22

Aktívismi

Ég var í 10-11 nýlega við innkaup. Aðalástæða innkaupanna var að kaupa kókómjólk til drykkjar. Þegar ég teygði mig í MS kókómjólkina var mér bent á að MS hefur í áratugi stundað einokun á íslenskum mjólkurvörumarkaði og hlotið til þess ríkisstyrki, og að ég ætti að kaupa frekar Kappa frá Mjólku til að styðja samkeppni. Ég hugsaði með mér að það væri nú ekki mikið mál þannig að ég ákvað að kaupa mér Kappa.
Þá vandaðist aldeilis málið, því aðeins var í boði að kaupa þrjá Kappa í pakka, en ég hafði aðeins hug á að kaupa mér tvær fernur. Einnig var Kappi ekki í kæli, þannig að hann var frekar volgur, og að auki hefur mér alltaf fundist gamla MS kókómjólkin bragðbetri.
Á þessari stundu ákvað ég að láta mig hafa það að kaupa þrjár fernur, þó þær væru volgar og kókómjólkin ekki eins bragðgóð.

Þarna notaði ég athafnir mínar til að reyna að breyta heiminum. Ég var orðinn svolítið eins og nútíma-Gandhi.
Ef Gandhi væri á lífi í dag mynda hann bara kaupa Kappa kókómjólk, og ekki bara þrjár, heldur kannski sex eða níu fernur, og það þó þær væru alveg gríðarlega volgar.

Þegar ég stóð í röðinni leið mér svolítið eins og Martin Luther King. Ég lagði á mig erfiði til að breyta heiminum til að gera hann að betri stað fyrir mig og alla í mínum sporum. Ég hugsaði til allra sem drekka MS kókómjólk að staðaldri, allra sem hafa látið hneppa sig í þrældóm brúnnar einokunarmjólkur sem kemur úr ríkisstyrktum spenum.
Ég borgaði með bros á vör, sæll og glaður yfir því að hafa lagt mitt að mörkum. Ég var orðinn aktívisti.

Þegar ég sat og drakk volgu kókómjólkina sem er ekki eins bragðgóð og hin, ákvað ég að það væri komið nóg af aktívisma í bili.
Mörg andsvör (5)
Mánudagurinn 13. ágúst 2007, kl. 14:33

Hlaupið í Reykjavík

Núna er aðeins einn dagur í Reykjavíkurmaraþonið. Þar sem nokkuð stór hluti lesenda ætlar að taka þátt, vildi ég benda ykkur á að ef þið takið með ykkur tónhlöðu í hlaupið, þá er góð hugmynd að setja lagið Chariots of fire í gang ca. 1-2 mínútum áður en þið áætlið að koma í mark.
Mörg andsvör (7)
Föstudagurinn 17. ágúst 2007, kl. 11:14

Furðulegt ímyndunarafl

Ég hef stundum á tilfinningunni að ég sé með bilað ímyndunarafl. Að minnsta kosti á ímyndunaraflið mitt til að ganga aðeins of langt í einstaka tilfellum. Þetta gerist sérstaklega þegar ég heyri fólk nota ákveðin orðatiltæki. Við skulum skoða nokkur dæmi:Ég efast reyndar um að ég sé einn um þetta vandamál, og það væri gaman að heyra svipuð dæmi frá lesendum.
Mörg andsvör (4)
Fimmtudagurinn 23. ágúst 2007, kl. 14:35

Eftirmálar hlaups

Nú ætla ég að standa við loforðið og setja inn myndir úr hlaupinu sem við tókum þátt í þann 18. ágúst. Tvær myndanna eru fengnar á hinni fínu síðu hlaup.is, en þar má finna alls kyns fróðleik um hlaup, og einnig er þar vefverslun fyrir hlaupara. Tímana má sjá hér en þar má sjá að Gunni var með besta tímann í hópnum, eða 52:59, en sjálfur náði ég tímanum 53:32 sem er fínn tími. Eins og ég hef þó bent á áður, þá skiptir tíminn ekki öllu máli heldur er aðalmarkmiðið að klára hlaupið.

Hér má sjá mig og Gunna hlaupa meðfram sjónum. Ég held að ég hafi þarna verið farinn að fá svita í augun og þess vegna er ég svona asnalegur á myndinni:


Hér er Hlynur að hlaupa á sömu slóðum:


Svo er hér mynd af næstum öllum hópnum (við týndum nokkrum úr hópnum, en náðum ekki að finna Ellu áður en af myndatökunni varð):

Mörg andsvör (8)
Mánudagurinn 27. ágúst 2007, kl. 19:31

Tölfræði

Þar sem brátt eru fimm ár liðin frá því að þetta vefsetur hóf göngu sína, þá er við hæfi að líta aðeins yfir farinn veg hvað tölfræðina snertir (það eru sko ýmsir kostir við að vera með blókið á eigin gagnagrunni!). Myndir segja víst meira en 1000 orð (í þessu tilfelli u.þ.b. 1370) þ.a. hér slengi ég fram línuriti sem sýnir ýmsa tölfræði um fjölda blóka frá höfundi per mánuð, fjölda athugasemda per mánuð og hlutfallið á milli fjölda athugasemda og blóka:



Eins og sjá má vantar þarna inn athugasemdirnar í upphafi en þær eru því miður týndar og tröllum gefnar. Að öðru leyti eftirlæt ég lesendum að túlka þessar tölur.
Mörg andsvör (8)
Þriðjudagurinn 4. september 2007, kl. 19:27

Meiri tölfræði

Án nokkurra málalenginga þá birti ég hér nýtt súlurit sem ætti að skýra sig sjálft.

Já, þetta er graf!

Þó verður að taka fram að taka skal niðurstöðum er tengjast árinu 2007 með varúð þar sem það er að sjálfsögðu ekki liðið enn. Einnig hófst notkunin ekki fyrr en í lok janúar 2004 þ.a. það vantar tæplega mánuð þar upp á, en það ætti ekki að breyta mjög miklu.

Aftur eftirlæt ég lesendum að túlka niðurstöðurnar, en ég verð þó að minnast á að ég myndi ekki nenna að halda þessari síðu úti ef ég fengi ekki athugasemdir við greinarnar. Því vil ég benda öllum þeim á sem lesa síðuna reglulega að segja sína skoðun við sem flestar greinar, hver svo sem sú skoðun er.
Mörg andsvör (10)
Föstudagurinn 7. september 2007, kl. 16:54

Hlaup í rigningu

Í tilefni þess að nú er gamla góða lárétta haustrigningin komin aftur, þá langar mig að varpa fram smá pælingu. Nú hefur það stundum verið sagt að það borgi sig ekki að hlaupa í rigningu því maður fái hvort sem er jafn mikla rigningu á sig.
Ég hef einhvern veginn aldrei trúað þessu, og hef oft pælt í því hvað sé rétt.
Nú hlýtur að skipta máli úr hvaða átt rigningin kemur; að ofan, lárétt að framan eða lárétt að aftan. Í stað þess þó að skrifa hér allar getgátur mínar langar mig að varpa þessu vandamáli til minna glöggu lesenda, og vonandi vita þeir hvaðan á sig stendur veðrið.
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 12. september 2007, kl. 23:55

Lúði eða nörd?

Nú get ég alveg viðurkennt það að ég hef ansi oft verið mjög nálægt því að geta talist nörd eða lúði. Ég get jafnvel nefnt eitt skipti þar sem ég var hættulega nálægt því.
Það var einn fagran dag þegar ég var í námi við Háskóla Íslands. Ég og Oddgeir höfðum skroppið út í bakaríið á Fálkagötu til að næra líkama og sál. Á leiðinni fórum við (eins og svo oft áður) að ræða um prímtölur. Nú er svo sem ekkert lúðalegt við það að ræða prímtölur, en umræðan vatt upp á sig og varð sífellt, ja, lúðalegri. Ég man ekki nákvæmlega um hvað umræðan snérist, en það var eitthvað um misfljótlegar leiðir til að athuga hvort tala sé prímtala.
Svo vorum við búnir að sitja í þónokkrar mínútur í bakaríinu, báðir með grafísku reiknivélina á lofti, og búnir að finna fjöldann allan af prímtölum þegar við uppgötvuðum nokkurn veginn á sama augnabliki hvað þetta var ótrúlega lúðalegt.
Ég leyfi mér samt að halda því fram að þó ég hafi stundum verið nálægt þessum mörkum, að þá hafi ég aldrei farið yfir þau. Eru lesendur ekki sammála mér?
Mörg andsvör (18)
Mánudagurinn 17. september 2007, kl. 15:10

Hvernig skilgreinum við nörd?

Sú var tíðin að það taldist slæmt að vera nörd. Ég þurfti að ganga meðfram veggjum í Réttó forðum daga vegna þess að ég flokkaðist sem nörd. Í þá daga var skilgreiningin á nördi miklu ljósari. Til dæmis gat maður flokkast sem nörd ef maður hafði skemmt stýrikerfi á tölvu a.m.k. einu sinni. Reyndar snérist það aðallega um að hafa áhuga á tölvum.
Nú er öldin hins vegar önnur. Núna sér maður fólk skrifa í blöðin, berja sér á brjóst og segja: Ég er [setjið áhugamál hér]nörd. Til dæmis er hægt að slá „íþróttanörd“ á Google og fá slatta af niðurstöðum. Íþróttanörd! Þetta er augljóslega þversögn! Nú er svo komið að skilgreiningin á nördi er nokkurn veginn þannig, að nörd er manneskja sem hefur áhuga á einhverju. Ég meina, give me a f$#!%ing break! Einu sinni var bent á mann og gert grín að manni fyrir að vera nörd, en núna er sama fólkið farið að lýsa því yfir að það sé nörd, og rosalega stolt að því. Gat fólk ekki bara leyft okkur að hafa þetta hugtak út af fyrir okkur? Greinilega ekki.
Nú er svo komið að alvöru nördar þurfa að skilgreina sig sem lúða. Lúði er hugtak sem maður heyrði svo sem stundum í þá gömlu góðu, en einhvern veginn hljómaði það betur að vera nörd. Hvenær ætlið þið svo að taka það hugtak af okkur? Hvað í fjandanum eigum við að kalla okkur þá?!
Mörg andsvör (11)
Fimmtudagurinn 20. september 2007, kl. 00:46

Limra - Víkingar

Á vígstöðvum knattspyrnuvalla
kljást Víkingar við aðra kalla
Þeir berjast oft vel
þó dynji á él
en andskotinn, við munum falla
Mörg andsvör (4)
Mánudagurinn 24. september 2007, kl. 20:55

Hjátrú

skrítla-járnsmiður

Smellið á myndina til að stækka hana
Mörg andsvör (23)
Fimmtudagurinn 27. september 2007, kl. 22:37