Haffi!


Er Árni Johnsen að ljúga að okkur?

Í hinu fræga lagi sem Árni Johnsen gaf okkur og fjallar um kartöflugarða má heyra eftirfarandi setningu:

„Það var í miðjum Þykkvabænum, svona 1,6 kílómetra frá sænum.“

Nú fór ég á Google Maps og mældi vegalengdina á milli Þykkvabæjar og sjávar og hún reyndist vera 1,9 mílur eða u.þ.b. 3 kílómetrar. Það er alveg möguleiki að á myndinni sé háfjara en ég efast samt um að munurinn milli flóðs og fjöru á þessum stað sé 1,5 kílómetrar.
Kortið má annars sjá hér (tvísmellið á bláa merkið og þysjið svo nær):

View Larger Map

Mér er því spurn; er Árni Johnsen að ljúga að okkur? Af hverju hefur enginn rannsakað þetta mál fyrr? Það er kominn tími til að Árni skýri sitt mál rækilega fyrir íbúum þessa lands.
Mörg andsvör (6)
Fimmtudagurinn 7. ágúst 2008, kl. 18:33

Maraþon

Hverjir ætla að hlaupa 10 km í maraþoninu á laugardaginn? Ég verð við skrítna klifurlistaverkið á MR lóðinni eftir hlaup fyrir þá sem vilja hitta á mig (Nei, ég verð ekki með jólasveinahúfu og 17. júní-fána).
Mörg andsvör (13)
Miðvikudagurinn 20. ágúst 2008, kl. 12:14

Bandýmót

Ég var á bandýmóti í Danmörku í ágúst með Bandýfélagi Kópavogs. Það gekk mjög vel. Liðið skoraði fjögur mörk alls á mótinu, en fékk bara á sig ca. sextíu mörk. Ég held að fá lið státi af álíka árangri.
Mörg andsvör (6)
Þriðjudagurinn 23. september 2008, kl. 23:38