Grín
Kannist þið við það þegar þið eruð þátttakendur í einhverjum umræðum þar sem fleiri en tveir eru að ræða saman að ykkur dettur eitthvað fyndið í hug til að segja en svo nær einhver annar orðinu og þið gleymið hvað það var sem þið ætluðuð að segja? Þá verður til einhvers konar þrýstingur innra með manni sem langar að komast út. Þetta getur verið mjög óþægilegt.
Stundum man maður þetta fyndna og nær að koma því út en stundum gengur það ekki. Þá minnkar þrýstingurinn smátt og smátt en ég held að hann hverfi aldrei alveg þ.a. með tíð og tíma safnast upp þessi þrýstingur sem einhvern veginn þarf að hleypa út.
Þetta getur komið sér mjög illa því þegar þessi þrýstingur kemst út þá getur hann komið út sem svokallaður „grínkippur“ þ.e. þá lendir maður í því að segja eitthvað fyndið á algerlega óviðeigandi augnabliki. Enn verra eru svo s.k. „grínflog“ en þá kemur út fullt af gríni algerlega án fyrirvara. Ég vil biðja fólk um að vara sig á þessu.
Mörg andsvör (4) Föstudagurinn 17. júlí 2009, kl. 19:46
Hugmynd fyrir hlaupið að ári
Eins og einhverjir vita tók ég þátt í 10 km hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 22. ágúst síðastliðinn. Árangurinn var ekkert til að hrópa húrra fyrir en þó skárri en ég átti von á eftir að hafa ekkert hreyft mig í sumar.
Í sumar var bryddað upp á þeirri nýbreytni að hafa s.k. héra eða hraðastjóra sem hlauparar gátu elt til að ná ákveðnum tíma. Þannig var einn hraðastjóri með helíumblöðru sem var merkt 55 mínútur þ.a. þeir sem vildu vera 55 mínútur að hlaupa gátu séð blöðruna úr fjarska og elt hana.
Þetta gaf mér stórsniðuga hugmynd! Á næsta ári gæti ég fest í mig einhvern góðan slatta af blöðrum til að létta mig og þannig væri hlaupið ekkert mál! Nú þarf bara að fara að reikna hversu mikið helíum ég þyrfti til að létta mig án þess þó að ég lyftist of mikið frá jörðinni.
Þess má geta að eftir að ég sá kvikmyndina
Up í bíó nýlega þá sá ég að þessi hugmynd er algerlega raunhæf þar sem ef þetta var hægt þar þá ætti ég að geta gert eitthvað svipað.
Mörg andsvör (3) Fimmtudagurinn 3. september 2009, kl. 12:57
Pabbi
Líkt og flestir lesendur ættu að vita þá varð ég pabbi nýlega og hef því ekki haft mikinn tíma til að skrifa neitt hér. Vonandi rætist úr því einhvern daginn en á meðan getið þið stytt ykkur stundir með því að lesa barnabloggið á
Sveigur.net. Ég mun ekki skrifa neitt barnatengt á þetta vefsetur hér þar sem það er aðeins hugsað fyrir „alvarlegri“ málefni.
Eitt andsvar Laugardagurinn 19. september 2009, kl. 19:38